Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.2018, Page 51

Læknablaðið - 01.02.2018, Page 51
Ö L D U N G A D E I L D Öldungar í Varsjá, Minsk og Vilnius Varsjá. Konunglegi kastalinn. Vilnius: Íslandsstræti.Minsk: Býflugnabóndi. Minsk: Hópurinn framan við Bolshoileikhúsið. LÆKNAblaðið 2018/104 111 Dagana 25. ágúst til 3. september 2017 hélt 27 manna hópur lækna- öldunga og maka þeirra ásamt fararstjóra Söguferða í heimsókn til Póllands, Hvíta-Rússlands og Litháen. Fyrsti áfangastaður var Varsjá. Var þar gist í tvær nætur og tím- inn notaður til að skoða þessa sögufrægu borg. Frá Varsjá hélt hópurinn til Minsk, höfuðborgar Hvíta-Rúss- lands. Þar var gist í fjórar nætur og var þar margt athyglisvert að sjá, bæði frá Sovét-tímanum og frá því honum lauk. Aðdáun vakti hið fagra Bolshoi óperu- og ballethús. Litháen var síðasta land heimsóknarinnar og var gist í höf- uðborginni Vilnius í þrjár nætur. Þar í landi er enn minnst þess stuðnings er Íslendingar veittu Litháen í sjálfstæðisbaráttu þeirra. Meðal annars ber gata í Vilnius nafnið Íslandsstræti. Umhverfi Vilnius er fagurt og má sérstaklega nefna eyjuna Trakai vestur af Vilnius en þar stendur fallegur kastali. Flogið var heimleiðis 3. september eftir góða ferð. PÁ

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.