Morgunblaðið - 07.06.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018
götu. Meðan á leikjunum stendur
verða barnakvikmyndir sýndar í
öðrum sölum.
Stokkið á HM-vagninn
Fjöldi fyrirtækja virðist ætla að
nýta sér HM-stemninguna meðal
landsmanna. Auk fjölda svokallaðra
HM-tilboða á veitingastöðum og af-
sláttar á sjónvörpum má nú sjá í
verslunum HM-útgáfur af sýrðum
rjóma, osti, skyri og sælgæti. Þá
eru ótaldir skrautmunir á borð við
HM-armband og HM-stuðnings-
mannahringinn. Og ballið er ekki
byrjað.
matarmarkaðinum Boxi í Skeifunni.
Ekki er nauðsynlegt að fara niður
í miðbæ til að horfa á leiki Íslands. Í
Kópavogi verður sýnt frá fyrsta
leiknum gegn Argentínu á veglegu
tjaldi á Rútstúni. Í Hafnarfirði verð-
ur fyrsti leikurinn sýndur á risaskjá
á Thorsplani. Upphitun hefst
klukkutíma fyrir leik, eða á hádegi,
og lofa bæjaryfirvöld fjölskyldu-
stemningu. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um að sýna fleiri leiki en
líklegt má telja að það verði hægur
vandi ef góð stemning myndast.
Þá verða allir leikirnir á HM
sýndir í Bíó Paradís við Hverfis-
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Einstök stemning myndaðist þegar
leikir Íslands á EM fyrir tveimur
árum voru sýndir á Ingólfstorgi og
á Arnarhóli. Nú þegar rúm vika er í
fyrsta leik Íslands á HM í Rússlandi
er spennan farin að magnast. Leikir
liðsins verða víða sýndir á stórum
skjáum þar sem fólk getur safnast
saman.
„Ég held að þetta verði geggjað,
frábær fjölskyldustemning,“ segir
Pétur Marteinsson, einn eigenda
Kaffihúss Vesturbæjar.
Nokkur fyrirtæki í Vesturbænum
hafa tekið sig saman og ætla að
sýna leiki Íslands á stórum skjá á
túninu við Vesturbæjarlaugina. Auk
Kaffihúss Vesturbæjar er um að
ræða Melabúðina, Brauð & co. og
Hagavagninn. Hugmyndin er að
veitingasala verði í tjöldum á svæð-
inu. Ákveðið hefur verið að kalla
svæðið Melavöllinn.
„Við viljum gjarnan búa til
hverfisstemningu í kringum HM.
Þetta er þjóðhátíð á meðan HM er.
Við erum búin að leigja stóran skjá
og svo mun fólk koma með tjald-
stóla og teppi og horfa á fótbolta.
Ég hef fulla trú á að fólk streymi
þangað úr hverfinu, á alla sex leiki
Íslands á HM,“ segir Pétur kok-
hraustur. Sjálfur verður hann meðal
álitsgjafa á RÚV og mun því birtast
grönnum sínum á risaskjánum.
Allir leikir Íslands verða sýndir í
Hljómskálagarðinum og allir leikir
mótsins verða sýndir á Ingólfstorgi.
Í Hljómskálagarðinum verður veit-
ingaaðstaða og leiktæki fyrir börn.
Leikir Íslands verða líka sýndir á
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stuðningur úr lofti Vélar Air Iceland Connect skarta baráttukveðjunum Húh! og Áfram Ísland! næstu vikur.
Fljúga á einni af merktu vélunum yfir Laugardalsvöll í dag þegar Ísland mætir Gana í vináttuleik í knattspyrnu..
„Þetta er þjóðhátíð“
Leikir Íslands á HM víða sýndir á risaskjáum Melavöll-
urinn endurvakinn Fjölmörg fyrirtæki komin í HM-gír
Morgunblaðið/Hari
HM-tilboðin Nú er hægt að grípa HM-sýrða rjómann og HM-pítsaostinn úti í
búð. Þá eru sérhannaðir skartgripir líka komnir í sölu af þessu tilefni.
9 DAGAR Í FYRSTA LEIK ÍSLANDS
Sunnanáttirnar hafa nú verið nærri
samfelldar frá því 29. apríl, eða í
næstum 40 daga. Ekki var nema einn
heiðarlegur norðanáttadagur í öllum
maí. Þetta segir
Trausti Jónsson
veðurfræðingur
aðspurður.
Vestanáttir
hafa líka verið al-
gengari en þær
austlægu á þess-
um tíma, en þó
hefur austlægum
nokkuð brugðið
fyrir, segir
Trausti. Vestan-
áttardagar í maí voru þannig 18, en
austanátt var ríkjandi í 13 daga. Vest-
lægar og suðlægar áttir hafa verið
ríkjandi þessa fyrstu daga í júní.
Sunnanáttir í háloftunum voru tíðari í
maí en áður er vitað um. „Það er eitt-
hvað verið að tala um norðanáttir í
næstu viku – en hvort af þeirri breyt-
ingu verður er enn mjög óljóst,“ segir
Trausti.
Eins og fram hefur komið hafa af-
leiðingarnar verið vætutíð á landinu.
Maí var úrkomusamur á landinu öllu
og óvenju blautur á landinu vestan-
verðu.
Nýliðinn maímánuður var m.a.
óvenjulegur að því leyti að hlýrra var
um landið norðaustanvert heldur en
suðvestanlands – ekki aðeins að til-
tölu heldur líka í hreinum tölum.
„Svo langt gekk hann meira að
segja að meðalhitinn í Reykjavík var
0,1 stigi lægri heldur en meðalhiti
landsins alls. Slíkt hefur ekki gerst
áður svo vitað sé. Maímeðalhiti í
Reykjavík hefur sumsé alltaf hingað
til verið hærri heldur en meðalhiti
allra byggða landsins saman,“ segir
Trausti á bloggi sínu. sisi@mbl.is
Sunnanáttir hafa
verið ríkjandi
í nærri 40 daga
Meðalhitinn í Reykjavík í maí var
lægri en meðalhiti landsins alls
Trausti
Jónsson
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Ég lít á þetta sem nýtt upphaf og
held að það séu bjartir tímar fram-
undan,“ segir Sunna Elvira Þorkels-
dóttir, sem nýverið var útskrifuð af
legudeildinni á Grensási, tæpum
fimm mánuðum eftir að hafa lamast
eftir fall af svölum á heimili sínu í
Malaga á Spáni.
Sunna segir að fram undan sé
áframhaldandi endurhæfing en hún
hefur nú komið sér fyrir í lítilli íbúð
ásamt dóttur sinni. „Mér líður vel í
dag og sjálfstraustið eykst bara með
hverjum deginum. Það er auðvitað
frábært að vera loksins komin aftur
heim eftir tæplega fimm mánaða
flakk. Ég og dóttir mín búum núna
tvær saman og það gefur mér mikið
að geta séð um okkur báðar sjálf,“
segir Sunna og bætir við að endur-
hæfingin á Grensási hafi reynst
henni gríðarlega vel.
Gæti starfað sem lögfræðingur
„Eftir mikla þjálfun og æfingar er
alveg ótrúlegt hvað maður getur
gert. Það má í raun segja að ég sé
hætt að vera sjúklingur og orðin ég
sjálf á nýjan leik,“ segir Sunna sem
kveðst ætla að skoða atvinnumál
þegar líða tekur á haustið. Þá komi
vel til greina að starfa áfram sem
lögfræðingur líkt og fyrir slysið.
„Það opnaðist alveg nýr heimur
fyrir manni við þetta slys. Ég fékk
betri innsýn í heim fatlaðra og ég
held að það geti verið vettvangur
sem ég gæti starfað á þegar fram
líða stundir,“ segir Sunna.
Slysið enn til rannsóknar
Í kjölfar falls Sunnu á Spáni var
fyrrverandi eiginmaður hennar, Sig-
urður Kristinsson, grunaður um að-
ild að slysinu en sú rannsókn er enn í
gangi hjá lögreglu. Auk þess er Sig-
urður grunaður um aðild að stór-
felldum fíkniefnainnflutningi í skák-
málinu svokallaða en skv. heimildum
Morgunblaðsins er skammt þar til
rannsókn í málinu lýkur.
Að sögn Sunnu er hún ekki með
réttarstöðu sakbornings í skákmál-
inu. Páll Kristjánsson, lögmaður
Sunnu Elviru, gat þó ekki staðfest
það en sagði að það kæmi sér ekki á
óvart ef svo væri.
Fimm mánaða flakki loksins lokið
Sunna er útskrifuð af legudeildinni á Grensási og sér fram á bjartari tíma Segir koma vel til greina
að starfa áfram sem lögfræðingur Fyrrverandi eiginmaður liggur áfram undir grun vegna slyssins
Sunna Hún sér fram á nýtt upphaf.
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 109.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
sp
ör
eh
f.
Jólaferð tilWiesbaden
Aðventan er tími ljóss og friðar. Ilmurinn af jólaglöggi og
brenndum möndlum liggur í loftinu.Við höldum til Wiesbaden,
þar sem upplýstar stjörnur svífa yfir litríkum jólahúsum á
jólamarkaðnum.Við förum í dagsferð til Rüdesheim þar sem
hinn skemmtilegi jólamarkaður þjóðanna er og getum fylgst
með hvernig handverk frá hinum ýmsu þjóðum er unnið.
6. - 9. desember
Fararstjóri: Íris Sveinsdóttir
AUKA BROTTFÖR