Morgunblaðið - 07.06.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Flugið hefur alltaf heillaðmig; að geta farið um loft-in blá og notið frelsisinsog verið í einhverjum
óendanleika,“ segir Stefanía Veiga
Sigurjónsdóttir flugnemi. Hún er
nítján ára og fór síðastliðinn mánu-
dag í sitt fyrsta sólóflug; það er að
fljúga ein síns liðs. Er nú þegar
komin með 25 flugtíma og hefur
jafnframt lokið bóklegu námi einka-
flugmanns. Þegar 45 flugtímum er
náð getur hún svo tekið próf og öðl-
ast réttindi til að fljúga með farþega.
Raunar setur Stefanía markið enn
hærra og stefnir á atvinnuflugið,
sem ætti að vera nálægt markmið.
Setur allan kraft í flugnámið
„Áhuginn á fluginu kom
snemma,“ segir Stefanía Veiga. „Afi
minn, Eðvarð Finnsson, er flugstjóri
og starfaði lengi hjá Luxair, Flug-
félagi Íslands og seinna Icelandair.
Sem lítil stúlka fór ég oft með hon-
um í flug og þegar ég var tíu ára
bauð hann mér í afar eftirminnilega
ferð héðan frá Reykjavík upp í Kjós
og austur á Þingvöll og Selfoss. Ég
fékk að taka í stýrið og þar með varð
ekki aftur snúið.“
Stefanía Veiga ákvað á síðasta
ári að setja allan sinn kraft í flug-
námið og fór í bóklega hlutann; stíft
220 kennslustunda námskeið sem
tekur tíu vikur.
„Bóklega námið er mjög yfir-
gripsmikið en þar tökum við greinar
eins og siglingafræði, flugeðlisfræði,
veðurfræði, vélfræði og fleiri mikil-
væg undirstöðufög,“ segir flug-
konan, sem nálgast viðfangsefni sín
afar skipulega og nær þannig að
áorka miklu. Hún vinnur frá klukk-
an sex á morgnana og fram yfir há-
degið sem móttökustjóri hjá World
Class í Laugum. Eftirmiðdaginn
hefur hún gjarnan tekið í flugnámið
og svo framhaldsskólann á kvöldin;
áfanga í fjarnámi við Verzló og
Menntaskólann á Tröllaskaga. Fær
svo væntanlega stúdentsprófið í lok
þessa árs.
Öryggið er fyrir öllu
„Ég nota hverja einustu mínútu
í vinnu og nám og þannig gengur
þetta upp. Þegar maður er ungur er
mikilvægt að nýta tímann vel.
Flugnámið hefur líka verið afar
skemmtilegt, þar hef ég kynnst
miklum fjölda krakka á aldur við
mig sem langar að verða flugmenn –
og flest hafa þau einhver tengsl við
þennan heillandi heim. Eiga for-
eldra eða ömmur og afa sem hafa
verið í fluginu, rétt eins og ég,“ segir
Stefanía, sem hefur flogið bæði á
Cessna 152 og Cessna 172 Skyhawk
sem eru mjög algengar kennslu-
vélar.
„Það er tæpt á mjög mörgu í
flugnáminu, bæði bóklega og verk-
lega hlutanum. Áherslan er síðan
alltaf sú að fólk geti og kunni rétt
viðbrögð við ýmsum aðstæðum sem
upp kunna að koma. Öryggið er fyr-
ir öllu. Það má í sjálfu sér segja að
það sé ekkert ýkja flókið að fljúga;
það vandasamasta er að lenda vél-
inni og hafa í loftinu alltaf undan-
komuleið fari eitthvað úrskeiðis,
hvort sem það er vélin, veðrið eða
annað,“ segir Stefanía Veiga. Hún
reiknar með að fljúga mikið í sumar
enda þarf flugnemi að vera kominn
með um 100 tíma í loggbókina þegar
nám til atvinnuréttinda hefst. Við
brautskráningu þar þurfa tímarnir
að vera orðnir 170 og þá er fólk búið
að fá þjálfun til dæmis á tveggja
hreyfla vélar, í blindflugi og ýmsum
öðrum kúnstum.
Ögrar körlunum
En hvað gerir flugið heillandi?
Sjálfsagt margt en á Stefaníu er
helst að skilja að áhuginn liggi í
undirmeðvitundinni.
„Þegar fjölskyldan fór fyrir
löngu til Mallorca fannst mér ekkert
gaman að liggja í sólinni, mér fannst
flugið að heiman og heim vera há-
punkturinn. Að einhver ókyrrð væri
í lofti var líka bara gaman þótt aðrir
væru hræddir og úr lofti séð finnst
mér skýin síbreytileg og falleg. Og
síðast en ekki síst með með flugið;
það er gaman að ögra viðteknum
gildum í flugheiminum, sem er afar
karllægur. Konum í hópi flugmanna
má gjarnan fjölga.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flugkona Þegar maður er ungur er mikilvægt að nýta tímann vel, segir Stefanía Veiga, hér stödd á flugvellinum.
Skýin eru falleg
Stefanía Veiga Sigurjóns-
dóttir flýgur um loftin
blá. Hún ætlar að verða
atvinnuflugmaður og
leggur hart að sér í námi
og starfi svo draumurinn
megi rætast.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Kennsluvélar Mikill áhugi er meðal ungs fólks á flugnámi um þessar mund-
ir enda eru starfsmöguleikar miklir og ýmis spennandi tækifæri bjóðast.
Bryndrekar Íslands verða til sýnis á
sunnudaginn í Samgöngusafninu í
Skógum undir Eyjafjöllum. Tveir
drekar eru til á landinu og eru í eigu
Björgunarsveitarinnar Kára í Öræfa-
sveit og Björgunarfélags Akraness.
Drekar þessir, sem eru af gerðinni
Thyssen sem er afbrigði af Benz
Unimog, hafa reynst vel enda sterk-
byggðir í meira lagi. Þeir eru rúm-
lega 30 ára gamlir og komu til
landsins í kringum aldamótin. Voru
áður í eigu þýska hersins og fyrr á
árum notaðir í landamæravörslu til
dæmis við Berlínarmúrinn.
„Þetta er öflugt tæki sem hefur
nýst okkur vel, til dæmis þegar gerir
vitlaust veður undir Hafnarfjalli og á
Kjalanesi og draga þarf upp flutn-
ingabíla og stórar rútur sem hafa
fokið út af veginum þar,“ segir
Björn Guðmundsson, björgunar-
sveitarmaður á Akranesi. – Bryn-
drekinn í Öræfasveitinni nýtist með
líku lagi, til dæmis þegar koma þarf
fólki til aðstoðar í ofsaveðri á
Skeiðarársandi og þar sem vind-
strengir af Vatnajökli verða.
„Við efnum til bryndrekamótsins í
tilefnin af 90 ára afmælis slysa-
varnafélagsins sem er á þessu ári.
Þarna gefst fólki kostur á að skoða
bryndrekana og spjalla við björg-
unarsveitarfólk sem notar þá í starfi
sínu. Mætumst á miðri leið í Skóg-
um, en í safninu þar er sérstök
deild með ýmsum munum sem
tengjast sögu slysavarna- og björg-
unarstarfs á Íslandi,“ segir Hrafn-
hildur Ævarsdóttir, formaður Kára í
Öræfunum.
Bryndrekar björgunarsveitanna verða til sýnis í Skógum
Áður við Berlínarmúrinn en nú
við Hafnarfjall og í Öræfunum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Thyssen Dreki Skagamanna er stór
og sterkbyggður í meira lagi.
Smart sumarföt, fyrir smart konur.
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
TIL LEIGU
Skipholt 31 – 105 Reykjavík
Skrifstofuhúsnæði
2. og 3. hæð hússins
Stærð samtals 1.200 fm.
Virðisaukaskattslaust.
Ólafur Jóhannsson
Rekstrarfræðingur
Löggiltur leigumiðlari
Löggiltur fasteignasali
534 1023 / 824 6703
olafur@jofur.is
Allar nánari upplýsingar veitir:
Til leigu tvær samliggjandi skrifstofuhæðir samtals um 1.200 fm. Um er að ræða 2. og 3. hæð hússins (efstu hæð). Lyfta í
sameign. Gott útsýni og gluggar allan hringinn. Tveir rafmagnsstofnar eru inn í húsið og tveir ljósleiðarar, lagnaskápur fyrir
netkerfi með lögnum í allar skrifstofur á hæðum og tengibox fyrir ljósleiðara. Aðgangsstýrt bílaplan með yfir 50 stæðum er
við húsið. Getur hentað mjög vel fyrir t.d. tölvufyrirtæki eða almenna skrifstofustarfsemi. Uppl. um leiguverð gefur Ólafur í
síma 824-6703. Laust strax.
Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is
Til leigu verslunar- og skrifstofuhúsnæði að Grandagarði 13, 101 Reykjavík, alls um 196,8 fm.
Laust í júní 2018. Í boði er langtíma leigusamningur. Húsnæðið býður upp á ýmsa möguleika fyrir
verslunar eða veitingastarfsemi. Mikil uppbygging er fyrirhuguð á þessu sv ði á næstu árum.
Á jarðhæð er verslunarrými með góðum verslunargluggum út að götu. Bakatil er aðkoma og bílastæði.
Gengið er upp á 2. hæð um sameiginlegan sti agang þar sem eru sameiginlegar snyrtingar.
Á hæðinni r eldhús, tvær skrifstofur og opið vinnurými.
Neðri hæð er 80,3 fm., efri hæð 93,0 fm. og hlutdeild í sameign 23,5 fm.
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Ólafur
S: 824 6703
Magnús
S: 861 0511
Sigurður J.
S: 534 1026
Helgi Már
S: 897 7086
Bergsveinn
S: 863 5868
TIL LEIGU
Grandagarður 13 – 101 Rvk
Gerð: Verslunar- og
skrifstofuhúsnæði
Stærð: 196,8 m2
Allar nánari upplýsingar veitir:
Bergsveinn Ólafsson
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja-
og skipasali, löggiltur leigumiðlari
og rekstrarfræðingur
863 5868 | 534 1028
bergsveinn@jofur.is