Morgunblaðið - 07.06.2018, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018
Þröstur Þórhallsson, HannesHlífar Stefánsson og HelgiÁss Grétarsson voru allirmeð 5 vinninga af sex
mögulegum eftir sjöttu umferð Opna
Íslandsmótsins sem stendur yfir
þessa dagana í Valsheimilinu á
Hlíðarenda. Að þessir þrír berjist
um Íslandsmeistaratitilinn kemur
ekki á óvart en forysta þeirra er
naum; Jóhann Ingvason, Lenka
Ptacnikova og Vignir Vatnar Stef-
ánsson eru öll með 4½ vinning. Svo
koma sex skákmenn með fjóra vinn-
inga, en keppendur eru 51 talsins.
Mótið er helgað minningu Her-
manns Gunnarssonar og vel við hæfi
að það fari fram við góðar aðstæður
í hátíðarsal Vals að Hlíðarenda. Þar
hefur verið komið upp vegg með
blaðaúrklippum og öðru efni frá
nokkrum þeirra frábæru skák-
viðburða sem Hermann starfaði við.
Talsvert hefur verið um óvænt úr-
slit. Þannig vann Jóhann Ingvason
Braga Þorfinnsson í 5. umferð og
Birkir Ísak Jóhannsson vann Jón
Viktor Gunnarsson strax í fyrstu
umferð. Heimasíða mótsins er http://
icelandicopenchess.com.
Telja má fullvíst að möguleikar
Héðins Steingrímssonar til að verða
Íslandsmeistari í fjórða sinn séu úr
sögunni eftir tap hans fyrir Vigni
Vatnari Stefánssyni í 6. umferð.
Þessi ósigur stigahæsta keppendans
opnar á þann möguleika að nýtt met
verði slegið hvað varðar yngsta Ís-
landsmeistara sögunnar. Héðinn var
15 ára þegar hann vann frækinn sig-
ur á Íslandsmótinu á Höfn í Horna-
firði haustið 1990. Vignir sem varð
15 ára í febrúar myndi með sigri
bæta met Héðins um nokkra mán-
uði. Afrek Héðins er merkilegt því
að hann varð Íslandsmeistari í
fyrstu tilraun en til samanburðar má
geta þess Hannes Hlífar, sem tefldi
fyrst á þinginu árið 1986, varð fyrst
Íslandsmeistari í 12 tilraun árið 1998
og hefur orðið Íslandsmeistari oftar
en nokkur annar eða 12 sinnum.
Þröstur Þórhallsson tefldi meira og
minna sleitulaust í landsliðsflokki frá
árinu 1985 eða þar til hann varð Ís-
landsmeistari árið 2012.
Helgi Áss Grétarsson tefldi fyrst
kornungur í landsliðsflokki árið
1991, hefur nokkrum sinnum verið
nálægt sigri en á eftir að bæta hin-
um eftirsóknarverða titli í safnið rétt
eins og Bragi Þorfinnsson.
Í skák Héðins og Vignir sem hér
fer á eftir tefldi Vignir Leningrad-
afbrigði hollensku varnarinnar óná-
kvæmt virtist sigur blasa við Héðni
en ónákvæmni í 25 leik var dýr-
keypt:
Héðinn Steingrímsson – Vignir
Vatnar Stefánsson
Hollensk vörn
1. d4 f5 2. g3 Rf6 3. Bg2 g6 4.
Rf3 Bg7 5. c4 0-0 6. 0-0 d6 7. Rc3
c6 8. b3 Ra6 9. Hb1 He8 10. d5 e5
11. dxe6 Bxe6 12. Rg5 Rc5 13. Dc2
h6?
Ónákvæmni sem Héðinn notfærir
sér þegar í stað.
14. b4! hxg5
Skárra var 14. … Rcd7.
15. bxc5 Bxc4 16. Hxb7 d5 17.
Bxg5 Dc8 18. Hfb1 Rd7 19. Dd2?!
Hb8? 20. Hxb8 Rxb8
21. Rxd5! Bxd5 22. Bxd5 cxd5 23.
Dxd5+ Kh7 24. Hb7 Hf8 25. Be7??
Eftir vel útfærða byrjun – ef frá
er talinn 19. leikurinn – gat Héðinn
unnið með 25. Bf4!, t.d. 25. … Dc6
26. Db3 Ra6 27. Be5 Hg8 28. Df7
Rxc5 29. Hb4! o.frv.
25. … Rc6! 26. Hd7 Hf7 27. Hd6
Hxe7 28. Hxc6 Db7 29. Dd6 Db1+
30. Kg2 De4+ 31. f3?
Tapleikurinn. Eftir 31. Kg1 er
ekki víst að svartur eigi meira en
jafntefli.
31. … Dxe2+ 32. Kh3 Df1+ 33.
Kh4 Dc4+ 34. f4 Df7 35. Ha6 He2
36. Kh3 g5! 37. g4 He3+ 38. Kg2
Db7+!
– og hvítur gafst upp.
Vignir vann Héðin og
aldursmetið gæti fallið
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Valli
Íslandsmótið Skákmótið fer fram í hátíðarsal Vals að Hlíðarenda.
Afmælisþakkir
Ykkur öllum, sem gerðu afmælisdaginn minn
þann 19. maí svo ánægjulegan, færi ég
alúðarþakkir og kveðjur.
Lifið heil.
Magnús Guðmundsson
Staðarbakka
TIL LEIGU
Skipholt 31 – 105 Reykjavík
Skrifstofuhúsnæði
2. og 3. hæð hússins
Stærð samtals 1.200 fm.
Virðisaukaskattslaust.
Ólafur Jóhannsson
Rekstrarfræðingur
Löggiltur leigumiðlari
Löggiltur fasteignasali
534 1023 / 824 6703
olafur@jofur.is
Allar nánari upplýsingar veitir:
Til leigu tvær samliggjandi skrifstofuhæðir samtals um 1.200 fm. Um er að ræða 2. og 3. hæð hússins (efstu hæð). Lyfta í
sameign. Gott útsýni og gluggar allan hringinn. Tveir rafmagnsstofnar eru inn í húsið og tveir ljósleiðarar, lagnaskápur fyrir
netkerfi með lögnum í allar skrifstofur á hæðum og tengibox fyrir ljósleiðara. Aðgangsstýrt bílaplan með yfir 50 stæðum er
við húsið. Getur hentað mjög vel fyrir t.d. tölvufyrirtæki eða almenna skrifstofustarfsemi. Uppl. um leiguverð gefur Ólafur í
síma 824-6703. Laust strax.
Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is
Til leigu um 452 fm. verslunar- og skrifstofuhúsnæði við Höfðabakka. Stórir gluggar sem
ná niður í gólf, loft eru með endurnýjaðri klæðningu og vandaðri innbyggðri lýsingu. Hátt til
lofts. Gólf eru me snyrti egum gráum flísum. Rýmið e að mestu opið en ti staðar ru tvæ
skrifstofur. Auðvelt er að fjölga skrifstofum. Eldtraust geymsla er innan rýmis. Laust strax.
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Ólafur
S: 824 6703
Magnús
S: 861 0511
Sigurður J.
S: 534 1026
Helgi Már
S: 897 7086
Bergsveinn
S: 863 5868
TIL EIGU
Höfðabakki 9 – 110 Rvk.
Gerð: Verslunar- og
skrifstofuhúsnæði
Stærð: 452 m2
Allar nán ri upplýsingar veitir:
Ólafur Jóhannsson
Rekstrarfræðingur,
löggiltur fasteignasali og
löggiltur leigumiðlari
534 1023 / 824 6703
olafur@jofur.is
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Ríkiskaup fyrir hönd ríkissjóðs hafa
auglýst eftir húsnæði á höfuðborgar-
svæðinu fyrir skrifstofur Landspít-
alans. Húsrýmisþörf er áætluð tæpir
5.000 fermetrar og miðað er við að
húsnæðið verði tekið á langtímaleigu
til 15 ára.
Skrifstofur Landspítalans eru nú á
Eiríksstöðum við Eiríksgötu 5, rétt
við Hallgrímskirkju. Húsið var áður í
eigu Góðtemplarareglunnar.
„Markmiðið með þessu er að losa
dýrmætt húsnæði sem er á góðum
stað fyrir klíníska starfsemi,“ sagði
Páll Matthíasson, forstjóri Landspít-
alans, í forstjórapistli á föstudag.
Eiríksgata 5 er um 3.400 fermetrar
að stærð og fær Landspítalinn því
gott viðbótarrými til að sinna sjúkling-
um.
„Við viljum búa betur að göngu-
deildarstarfsemi og skapa svigrúm
fyrir ýmis klínísk verkefni sem er vax-
andi þörf fyrir, m.a. brjóstamiðstöð,
erfðaráðgjöf og sameiginlega inn-
skriftamiðstöð svo eitthvað sé nefnt.
Mikil þörf er fyrir aukna starfsemi af
þessum toga á Landspítala og rímar
vel við áherslur heilbrigðisyfirvalda að
tryggja að svo megi verða,“ segir Páll.
Hann segir að starfsemin á Eiríks-
götu 5 sé þess eðlis að finna megi
henni annan stað. Nálægð Eiríksstaða
við kjarnastarfsemina á Hringbraut
veiti mikil tækifæri til að efla starf-
semina.
„Eins og við öll þekkjum eru
þrengsli klínískrar starfsemi gríðarleg
en með þessu vonumst við til að geta
aukið rýmið verulega auk þess að nýta
betur það húsnæði sem losnar við
þessa tilfærslu. Það verður mjög
spennandi að vinna að þessari upp-
byggingu en við gerum ráð fyrir að
geta hafið hana um næstu áramót,“
segir Páll.
Í auglýsingu Ríkiskaupa er tiltekið
að mikilvægt sé að hið nýja húsnæði
verði í nálægð aðalstarfsstöðvar
Landspítala við Hringbraut og í Foss-
vogi.
Deildir verða sameinaðar
„Samhliða því að skapa þetta aukna
rými fyrir þá klínísku þjónustu sem
Landspítali er að veita munum við
safna saman starfsemi sem vegna
þrengsla er dreifð um bæinn og sam-
eina hana í nýju húsnæði, þessu hús-
næði sem við erum að auglýsa eftir,“
segir Ingólfur Þórisson, fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs Landspít-
ala.
Um er að ræða aðalskrifstofur
Landspítala sem eru á Eiríksgötu 5,
hugbúnaðardeild sem er staðsett í
húsi við Landspítala í Fossvogi, vís-
indadeild sem er staðsett í leigu-
húsnæði á Rauðarárstíg, menntadeild
sem er staðsett í Ármúla, sam-
skiptadeild sem er að hluta á Landa-
koti, gæðadeild sem er að hluta í
Landspítala í Fossvogi og verk-
efnastofu sem er að hluta í húsi við
Landspítala á Hringbraut.
Skrifstofurými verður
breytt í sjúkrastofnun
Landspítali auglýsir eftir húsnæði fyrir skrifstofur
Átta litlir gæsarungar fylgja gæsamömmu fast eftir, en
gæsirnar koma upp á land til að bíta gras. Gæsir eru af
ætt andfugla, en ungviði þeirra er frægt fyrir að fylgja
mömmunni hvert fótmál. Það verður því lítill friður hjá
gæsamömmu fyrr en í haust þegar hún fær nýjar flug-
fjaðrir og ungarnir sínar fyrstu.
Morgunblaðið/Ómar
Gekk af stað með gæsabörnin smáu