Morgunblaðið - 07.06.2018, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018
„Ægir var síðast í rekstri, þ.e. í hefð-
bundinni löggæslu- og eftirlitsferð í
maí og júní 2015, þ.e. fyrir þremur
árum,“ segir Ásgrímur L. Ásgríms-
son, framkvæmdastjóri aðgerða-
sviðs Landhelgisgæslunnar.
Í framhaldinu var skipinu lagt um
tíma á Sauðárkróki en fór í slipp á
Akureyri um haustið í hefðbundna
málningarvinnu. Siglt var þaðan til
Reykjavíkur í desember 2105. Ægir
var svo færður frá Faxagarði í
Reykjavík á núverandi legustað við
Skarfabakka 18. október 2016 og
þar hefur skipið legið síðan.
Varðskipið Ægir fær lágmarks
viðhald þar sem það liggur við
Skarfabakka og því er haldið heitu.
„Skipið er vaktað samkvæmt samn-
ing við vöktunarþjónustufyrirtæki
og starfsmenn Landhelgisgæsl-
unnar fara reglulega um borð í það
til eftirlits,“ segir Ásgrímur.
Til stendur að þrífa skipið svo það
líti vel út á afmælisdaginn, sem er
þriðjudagur í næstu viku.
Hefur ekki verið
í rekstri í þrjú ár
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ægir varð fyrstur íslenskra varð-
skipa til þess að klippa á togvíra
landhelgisbrjóts. Það gerðist 5.
september 1972 þegar klippt var á
forvír vörpu bresks togara sem
breitt hafði yfir nafn og númer.
Síðar kom í ljós að um var að ræða
togarann Peter Scott H-103. At-
burðurinn gerðist 38,6 mílur út af
Horni. Skipherra á Ægi var Guð-
mundur Kjærnested.
Ægir sló einnig botninn í stríðin
með því að eiga síðustu klipp-
inguna 24. maí 1976 en þá skar
hann á annan togvír togarans Jac-
inth FD-159 á Öræfagrunni.
Samtals klippti Ægir aftan úr 51
togara af þeim 147 sem klippt var
á í 50 og 200 sjómílna stríðunum
og á milli stríða. Ekkert skip
Landhelgisgæslunnar klippti aftan
úr fleiri togurum en Ægir. Sá sem
næstur kemur er Þór með 28
klippingar. Togararnir voru bresk-
ir og vesturþýskir.
Þessar upplýsingar má finna í
stórfróðlegri samantekt Guð-
mundar St. Valdimarssonar báts-
manns, sem átti langan feril á
Ægi, eða allt frá árinu 1997.
Þar kemur fram að í þorska-
stríðunum og á milli stríða skutu
varðskipsmenn á Ægi alls 14 sinn-
um að breskum og vesturþýskum
togurum innan landhelginnar.
Skotið var bæði púðurskotum og
föstum skotum, járnkúlum. Fræg
er viðureign Ægis við breska
togarann Everton, sem stöðvaður
var með átta föstum skotum við
Grímsey vorið 1973.
Alls var siglt 10 sinnum á Ægi í
þorskastríðunum, þar af sjö sinn-
um af breskum freigáturm.
Ægir hefur allt frá byrjun kom-
ið að björgun margra skipa á
löngum ferli. Um er að ræða far-
þegaskip, flutningaskip og fiski-
skip. Mörgum var bjargað við erf-
iðar aðstæður.
Klippti á
víra alls 51
togara
Í brúnni Guðmundur Kjærnested.
Ægir öflugur í
þorskastríðunum