Morgunblaðið - 07.06.2018, Side 36

Morgunblaðið - 07.06.2018, Side 36
að ferðast til Asíu eða Afríku eða hvert sem er,“ segir Bjarni. Spítali Faisal konungs þjónar fjölskyldu konungs, eða ættbálki, sem telur um 15 þúsund manns. Þá þjónar sjúkrahúsið almennum sjúk- lingum á sérhæfðum sviðum. Um 30 milljónir manna búa í Sádi-Arabíu, um þriðjungurinn útlendingar. „Sádarnir líta á sig sem Guðs út- valda þjóð. Því Guð gaf þeim Mekka og Medína,“ segir Bjarni og bendir á að heimamenn vinni alla jafna ekki alþýðustörf. Slík verk séu í höndum aðkomufólks. Sjúkrahús Faisal konungs sé álitið vera eitt það fremsta í Mið-Austurlöndum. Bjarni og Sigurður Ásgeir hafa lengi unnið saman. Samhliða því að setja upp stöð sína hafa þeir þróað samstarf við bakdeildina á sjúkra- húsinu í Stykkishólmi. Aðstæður í Stykkishólmi breytt- ust þegar Jósep Ó. Blöndal lét í fyrrasumar af störfum sem yfir- læknir þar en hann hafði um ára- tugaskeið beitt sérhæfðum hrygg- sprautumeðferðum á sjúkrahúsinu. Bjarni fór reglubundið í Stykkis- hólm í vetur til að veita slíka með- ferð en á því er nú breyting. „Það fer nú væntanlega allt fram hér hjá okkur,“ segir Bjarni. „Við höfum hins vegar rætt um að hafa göngudeildarþjónustu hérna og móttöku sem sjúklingar gætu nýtt sér samhliða tveggja vikna dvöl í Stykkishólmi. Það kemur til við- bótar sérhæfðum meðferðum.“ Taka aðeins við tilvísunum Sigurður Ásgeir segir Corpus Medica meðferðarstöð fyrir bak- verki og aðra stoðkerfisverki. Meginmeðferðin sé sprautumeðferð með blöndu af bólguminnkandi ster- um og staðdeyfingu. „Það er mikið í umræðunni að sérfræðilæknar séu makandi krók- inn. Við viljum hins vegar aðeins fá tilvísanir frá læknum. Við viljum helst að búið sé að vinna sem mest upp þá einstaklinga sem vísað er til okkar. Við fáum upplýsingar um vandamálin, til dæmis hvort til eru myndgreiningarrannsóknir og hvaða meðferð hefur verið reynd. Svo hittum við fólk og þá kemur í ljós hvort við getum hjálpað því. Síðan fylgjum við þeim eftir varð- andi árangur meðferða en erum ekki með sömu sjúklinga aftur og aftur, eða hræra í þeirra lyfja- meðferð eða meðferð þeirra að öðru leyti.“ Bjarni tekur svo við keflinu: „Við erum ekki greiningaraðilar, þetta er ekki fyrsti komustaður. Einstaklingurinn á helst að vera bú- inn að fá önnur möguleg meðferðar- úrræði. Við reynum að vera ein- beittir í því sem við gerum. Við erum ekki í lyfjameðferð heldur í ífarandi meðferð, sprautumeðferð,“ segir Bjarni. Getur verið hreyfingaleysi Sigurður Ásgeir útskýrir þetta frekar. „Orsakirnar fyrir bakverkj- um geta verið margar, m.a. hreyfingarleysi og það getur verið að einstaklingar með slík vandamál þurfi á sjúkraþjálfun að halda en eins er oft um ýmislegt annað að ræða sem taka þarf á. Við erum ekki í slíku. Við erum að deyfa fólk og meðhöndla við verkjum. Við gef- um okkur út fyrir að vinna í anda þess sem menn hafa talað mikið um í heilbrigðiskerfinu, að meðhöndlun byrji hjá heilsugæslu. Síðan ef heilsugæslan ræður ekki við málið, þegar ástandið er orðið langvinnt og lyf og sjúkraþjálfari duga ekki til, þá sé fólki beint hingað. Þá metum við hvort hægt sé að beita svona ífarandi verkjameðferðum eða ann- arri meðferð sem við bjóðum upp á, og síðan fylgjum við því eftir hvern- ig meðferðin hefur gengið,“ segir Sigurður Ásgeir. Yfirleitt ekki lækning Bjarni tekur svo við orðinu: „Við þurfum að muna að í lang- flestum tilfellum er ekki um lækn- ingu að ræða. Það má búast við að sömu einkennin komi aftur. Við er- um tilbúnir að fylgja því eftir og Frá Sádi-Arabíu í Kópavog  Bjarni Valtýsson svæfingalæknir starfaði fyrir konungsfjölskylduna í Sádi-Arabíu  Nú rekur hann meðferðarstöðina Corpus Medica í Kópavogi ásamt Sigurði Ásgeiri Kristinssyni lækni Morgunblaðið/Eggert Læknar Sigurður Ásgeir Kristinsson og Bjarni Valtýsson starfa saman á Corpus Medica. Þeir segja mikla þörf fyrir verkjameðferð á Íslandi. 36 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018 Sigurður Ásgeir Kristinsson bækl- unarlæknir hefur langa reynslu af rekstri í heilbrigðisþjónustu. Hann stofnaði ásamt öðrum bæklunarlæknum félagið Stoðkerfi ehf. árið 1997. Tilefnið var að dag- aðgerðir bæklunarskurðlækna kom- ust illa að á sjúkrahúsum. Langir biðlistar höfðu myndast. Þrátt fyrir að hafa ekki náð samningum við Tryggingastofnun Ríkisins, TR, létu stofnendur félagsins gera upp læknastöð í Álftamýri 5. Samningar náðust svo við TR og hófst rekstur- inn árið 1998. Sigurður Ásgeir var framkvæmdastjóri og starfaði sem bæklunarlæknir. Reksturinn jókst að umfangi og keypti félagið loks allt húsnæðið að Álftamýri 3-5. Hluthöfum fjölgaði og hófst meðal annars samstarf við Sjúkraþjálfun Íslands, Íslenska myndgreiningu og innanlandsdeild Össurar hf. Árið 2003 var starfsem- in flutt í gamla Orkuveituhúsið á Suðurlandsbraut 34. Hefur starf- semin upp frá því heitið Orkuhúsið. Þar eru nú gerðar hátt í 5.000 dag- aðgerðir á ári og hvergi starfa jafn margir bæklunarskurðlæknar á ein- um stað á Íslandi. „Ég sá mikið um baksjúklinga langaði að byggja upp þar. Síðasta haust fór í að finna húsnæði og koma upp þessari starfsemi. Síðan byrjuðum við hægt og rólega upp úr áramótum. Bjarni þó meira, því ég var meira í að ljúka uppbyggingu stöðvarinnar. Ég kem nú hins vegar einnig að móttöku og meðferð sjúk- linga. Við vonumst til að tveir til þrír læknar að auki komi síðar til starfa hjá okkur. Það fer svolítið eftir samningsumhverfinu,“ segir Sig- urður Ásgeir um næstu skref. þar. Bjarni var einn hluthafa og vann bæði við svæfingar og verkja- meðferðir. Við unnum mikið saman á þeim tíma. Þegar Bjarni fór aftur að starfa erlendis [í Sádi-Arabíu] höfðum við velt fyrir okkur að það þyrfti bak- og verkjamiðstöð á Ís- landi,“ segir Sigurður Ásgeir. „Þegar Bjarni flutti svo aftur heim endurvöktum við þennan draum. Mér fannst þá kominn tími til að hætta í Orkuhúsinu. Ég væri búinn að byggja allt upp sem mig Var einn stofnenda Orkuhússins SIGURÐUR ÁSGEIR VILDI NÝJA ÁSKORUN Móttakan í Corpus Medica Sigurður Ásgeir er frumkvöðull í lækningum hér á landi. VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Bjarni Valtýsson svæfingalæknir og Sigurður Ásgeir Kristinsson bækl- unarlæknir létu gamlan draum ræt- ast þegar þeir opnuðu meðferðar- stöð í Kópavogi um áramótin. Stöðin heitir Corpus Medica og er á sjö- undu hæð Hjartaverndarhússins í Holtasmára. Þar er beitt ýmsum að- ferðum við verkjameðferð. Með þeim Bjarna og Sigurði Ás- geiri starfar Dóra Gerður Stef- ánsdóttir hjúkrunarfræðingur sem sér um daglegan rekstur. Þórunn Sigurðardóttir er læknaritari. Bjart var á skrifstofunni þegar þau buðu Morgunblaðinu í heim- sókn í lok vinnudags á þriðjudaginn var. Á skrifstofunni hjá Bjarna glampaði sólin á gyllt sverð frá kon- ungsfjölskyldunni í Sádi-Arabíu. Fylgdi í fótspor föður síns Bjarni útskrifaðist úr læknadeild Háskóla Íslands árið 1983. Hann fékk svo sérfræðiþjálfun í svæf- ingum á Landspítalanum. Með því fylgdi hann í fótspor föður síns, Val- týs Bjarnasonar, sem var fyrsti yfir- læknir svæfinga á Landspítalanum. Eftir nokkur ár á spítalanum fór Bjarni til Uppsala í Svíþjóð og lauk þar sérnámi. Hann starfaði í þrjú ár í Svíþjóð. Þaðan lá leiðin á Háskóla- sjúkrahúsið í Madison í Wisconsin. Fékk Bjarni þar stöðu sérfræðings og aðstoðarprófessors þar sem hann starfaði m.a. við verkjameðferð. Eftir áratug í Wisconsin flutti Bjarni með fjölskyldu sína heim til Íslands. Þar hóf hann störf á Land- spítalanum á ný. Vonir um að geta komið á þverfaglegri verkjadeild á Landspítala rættust ekki. Urðu það Bjarna mikil vonbrigði. Fór svo að hann hætti á spítalanum og hóf störf í Orkuhúsinu og síðar á Hand- læknastöðinni í Glæsibæ. Fjallað er um stofnun Orkuhússins í grein hér til hliðar. Stefnan tekin á Sádi-Arabíu Næstu tímamót á starfsferli Bjarna urðu árið 2010 þegar vinur hans, Halldór Benediktsson rönt- genlæknir, var ráðinn til starfa á sjúkrahúsi Faisal konungs í Riyadh í Sádi-Arabíu. Bjarni fékk áhuga á landinu og sendi inn umsókn. Hon- um var í kjölfarið boðið út til að skoða aðstæður. Úr varð að Bjarni var ráðinn á sjúkrahús Faisal kon- ungs. Þar hitti Bjarni meðal annars fjóra íslenska lækna. Meðal þeirra var gamall vinur úr menntaskóla og læknadeild Háskóla Íslands, Atli Eyjólfsson hjartaskurðlæknir. Læknarnir bjuggu í sama hverf- inu ásamt fjölda sérfræðilækna víðsvegar að úr heiminum. Hverfið er kennt við pálma og í eigu kon- ungsfjölskyldunnar sem öllu ræður. „Þarna voru margir læknar frá Svíþjóð og Danmörku en fáir frá Noregi. Það er hollt að breyta um umhverfi og samlagast annarra manna venjum. Það er ákveðin núll- stilling. Þarna eru ýmis óskráð lög sem maður þurfti að læra inn á um hvernig maður á að haga sér og gera hlutina, sem ég tel mjög gott. Það er ekki aðeins einn vegur til Rómar heldur margir,“ segir Bjarni. Einbýlishús og ókeypis ferðir Hann brosir þegar spurt er um launakjör í Sádi-Arabíu. Enginn tekjuskattur er greiddur af launum í Sádi-Arabíu og voru afnot af ein- býlishúsi hluti af starfskjörunum. Frídagar voru margir og greiddi sjúkrahúsið fyrir árlega heimferð Bjarna og fjölskyldu til Íslands. „Maður er þarna miðsvæðis í heim- inum. Frá Sádi-Arabíu er þægilegt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.