Morgunblaðið - 07.06.2018, Side 37
veita meðferð. Dæmigerður skjól-
stæðingur hjá okkur fær ífarandi
verkjameðferð sem dugar oft í 3-4
mánuði. Skjólstæðingurinn getur
óskað eftir að fá tíma aftur og þá er
tekin ákvörðun um það. Það er eðli-
legt að hægt sé að bjóða upp á
þessa ífarandi meðferð kannski 2-4
fjórum sinnum á ári.
Ef það þarf að gera hana mikið
oftar, vegna sama vandamáls, þarf
maður að hugsa sig um hvort rétt
sé að gera þetta. Þótt þessu fylgi
mjög litlar aukaverkanir er þetta
ákveðið inngrip í líkamann.“
Huglægi þátturinn mikilvægur
Bjarni segir mikilvægt að taka
saman gögn um líðan sjúklinga.
„Verki er hægt að skilgreina sem
upplifun á ástandi sem getur skýrst
af líkamlegum áverka. Þetta getur
líka verið huglægt fyrirbæri. Við
reynum að minnka þessa upplifun
tiltekið mikið. Stundum tekst okkur
að taka verkina alveg í burtu en
það er ekki markmiðið. Markmiðið
er að minnka huglæga upplifun 50-
70%.
Þegar fólk kemur til okkar í
fyrsta sinn erum við með spurn-
ingalista og tökum stöðuna á því
hvert ástandið er í viðtali og skoð-
un. Hvernig lýsa skjólstæðingar
verkjum á skalanum frá núll upp í
tíu? Núll eru engir verkir en tíu
verstu hugsanlegu verkir.
Við metum upplifun þeirra af
verkjum og hvaða áhrif þeir hafa á
færni, svefn og annað slíkt. Þetta
tökum við alltaf fyrir í fyrsta viðtali
þannig að við eigum allavega
grunnupplýsingarnar, hvernig stað-
an var þegar fólk kom til okkar á
þessari mínútu á þessum degi.
Þetta getur breyst frá einum tíma
til annars. Huglæg upplifun sjúk-
linga er svo mismunandi. Það eru
svo margar breytur,“ segir Bjarni
og tekur dæmi af verkjum í hrygg.
Nú sé viðurkennt að 70-80% af
verkjum í hrygg sé ekki hægt að
hengja á tiltekinn verkjavald. Er-
lendar rannsóknir bendi til að
fimmtungur einstaklinga sé með
langvarandi verki. Yfirfært á Ís-
land samsvari það hlutfall um 70
þúsund einstaklingum.
„Átta af hverjum tíu Íslend-
ingum munu fá í bakið allavega
einu sinni á ævinni. Venjulega
gengur það til baka en hluti sjúk-
linga verður með langvarandi
vandamál, fara að fá verkina oftar.
Svo versnar þetta og batnar [til
skiptis]. Við reynum að rjúfa þenn-
an vítahring,“ segir Bjarni.
Komast ekki á næsta stig
Sigurður Ásgeir segir slíka verki
geta hindrað sjúklinga í að taka
framförum hjá sjúkraþjálfara.
„Sjúkraþjálfarar hafa leitað mik-
ið eftir aðstoð með svona með-
ferðum. Það er einfaldlega út af því
að þeir komast ekki með ein-
staklinginn upp á næsta stig. Hann
er alltaf jafn slæmur og sjúkra-
þjálfarinn er allur af vilja gerður að
meðhöndla hann, koma honum í
eigin æfingar, en sjúklingurinn nær
aldrei yfir næsta þröskuld út af
þessum verkjum. Hugmyndin með
verkjameðferð er að hjálpa fólki að
komast sem mest í eigin hreyfingu
og viðhalda eigin bata,“ segir Sig-
urður Ásgeir.
„Bakverkir eru eitt algengasta
heilsufarsvandamálið. Þetta er
mjög þjóðhagslega kostnaðarsamt.
Fólk er lengi frá vinnu og í með-
ferðum eins og sjúkraþjálfun og/
eða á lyfjum. Margir einstaklingar
eru á örorku vegna þessa. Okkur
dreymir um að taka heildrænt á
þessu, þ.e.a.s. að bjóða meðferð-
armöguleika eins og við erum að
gera og í öflugu samstarfi við aðra
s.s. bakdeildina í Stykkishólmi.“
Sigurður Ásgeir bendir svo á að
margt eldra fólk sé með verki út af
slitgigt. Margir séu á löngum bið-
listum eftir aðgerð sem virðist
stundum lengjast þrátt fyrir átaks-
aðgerðir. „Aðrir eru ekki nógu
slitnir til að komast á biðlista en
samt illa haldnir af verkjum. Fólk
eldist og er virkara fram eftir aldri
en áður þekktist, stundar golf og
aðrar íþróttir, ferðast og vill taka
þátt. Það vill ekki láta neitt stoppa
sig. Þess vegna bjóðum við upp á
þessar verkjameðferðir, eins og á
stærri liðum, og þar koma þessi
segulómunartæki okkar við sögu,
ásamt annarri sérhæfðri verkja-
meðferð sem við bjóðum upp á,“
segir Sigurður Ásgeir (sjá umfjöllun
hér fyrir ofan).
Sigurður Ásgeir segir verkja-
meðferðir í stoðkerfi vera nokkra
afgangsstærð í kerfinu. „Landspít-
alinn hefur átt nóg með að sinna því
sem hann á að sinna. Þess vegna
hefur tilhneigingin verið sú undan-
farna áratugi að mikið af þessum
smærri verkum, eða dagverkum,
hefur flust út í bæ, samanber Orku-
húsið eða aðrar sérgreinastöðvar.
Það er einfaldlega vegna þess að
það hefur ekki verið aðstaða til þess
á Landspítalanum,“ segir Sigurður
Ásgeir og rifjar upp að á sínum tíma
hafi liðspeglanir um skamman tíma
verið gerðar á skurðstofu á Landa-
koti.
„Með einu pennastriki var því
breytt í öldrunarrými. Það breytti
því ekki að læknarnir voru með
marga á lista sem fengu ekki þessar
aðgerðir.“
Sigurður Ásgeir segir einkarekst-
ur þar sem hann á við geta sparað
mikið fé í heilbrigðiskerfinu. Hann
telur aðspurður að kostnaðarvitund
í einkarekstri sé oft meiri en í al-
mennum rekstri.
„Þegar menn eru með eigin
rekstur er hraðinn meiri og þeir
anna fleirum án þess að það komi
niður á gæðum. Þannig að kostn-
aðarvitundin er væntanlega meiri
þar sem um eigin fjármuni er að
ræða en ef menn starfa eingöngu
hjá öðrum. Ég bjó nánast í Orku-
húsinu fyrstu 2-3 árin og hér á okk-
ar stöð settum við sjálfir upp inn-
réttingar og sjáum sjálf um þrif ef
því er að skipta. Til viðbótar við
Orkuhúsið starfaði ég til fjölda ára á
slysadeildinni og var frumkvöðull í
utanspítalaþjónustu. Ég var með
Óðni í Smugunni 1994 og sinnti sjó-
mönnum til fjölda ára. Ég var á
þyrlunni í mörg ár og bjó til um 1
klst. myndbandsspólur sem fóru í
öll skip á landinu. Þar sýndi ég
hvernig ætti að sauma, setja upp nál
og svoleiðis. Ég vildi að afrakstur-
inn af sölunni færi til slysadeildar til
að byggja upp frekari þjónustu fyrir
sjómenn þar. Þetta rann hins vegar
einhvern veginn inn í hít spítalans.
Það er því miður svo að frumkvöðla-
starfsemi á oft erfitt uppdráttar
innan svona stofnana. Menn gætu
rætt um að opna verkjamóttöku á
Landspítalanum, í þeim dúr sem við
erum að gera, en ég er ansi hrædd-
ur um að það yrði ákaflega lítið úr
því.“
Heyrir ekki undir samninginn
Sigurður Ásgeir segir þau læknis-
verk sem Corpus Medica sinnir að-
eins að litlu leyti að finna í heildar-
samningi sérfræðinga. „Við erum
þess vegna ekki á samning en við
höfum rætt við Sjúkratryggingar
Íslands um mögulegan endur-
greiðslurétt fyrir okkar skjólstæð-
inga. Sú gagnrýni hefur verið sett
fram að sérfræðikostnaðurinn sé
eins og opinn tékki fyrir þjóðfélagið,
m.a. af fv. landlækni. Stjórnmála-
menn þurfa þá eftir atvikum að taka
á því og ákveða hvað þeir ætla að
kaupa mikið af þjónustunni fyrir
hönd samfélagsins en annað verður
þá á frjálsum markaði. Menn
gleyma því svolítið, og mér finnst
það skipta miklu máli, að það er allt-
af verið að tala um að samningurinn
sé fyrir lækna, sjúkraþjálfara eða
hvern þann heilbrigðisstarfsmann
sem er sjálfstætt starfandi. Sjúkra-
tryggingar eru fyrir þjóðfélags-
þegnana sem stjórnmálamennirnir
starfa fyrir. Þeir eiga rétt á endur-
greiðslum og til að einfalda hlutina,
svo hver einasti sjúklingur sé ekki
að fara í Sjúkratryggingar Íslands
til að fá endurgreitt, er gerður
heildarsamningur við meðferðar-
aðila. Það er búið að snúa hlutunum
á hvolf og segja að þetta sé samn-
ingur fyrir meðferðaraðila en þetta
er samningur fyrir samfélagsþegn-
ana og um það snúast sjúkratrygg-
ingar,“ segir Sigurður Ásgeir.
FRÉTTIR 37Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018
Renndu við hjá okkur
í Tangarhöfða 13
FAI varahlutir
Ódýrari kostur í varahlutum!
stýrishlutir
hafa verið leiðandi í yfir 10 ár.
Framleiddir undir ströngu
eftirliti til samræmis
við OE gæði.
Sími 577 1313
kistufell.com
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is
Með free@home hefur aldrei verið auðveldara og
hagstæðara að stjórna heimilinu, sumarbústaðnum
eða fyrirtækinu.
Ertu að byggja, breyta eða bæta?
Endilega kynntu
þér málið.
Snjalllausnir – nútíma raflögn
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Bjarni Valtýsson svæfingalæknir
segir verkjadeyfingar oftast byggð-
ar á blöndu af bólguminnkandi ster-
um og staðdeyfingu. Yfirleitt sé það
byrjunarmeðferðin, tiltölulega ein-
föld og áhættulítil. Ýmsum öðrum
aðferðum megi einnig beita. Í sum-
um tilfellum megi notast við hita-
meðferð (e. radiofrequency) en að-
ferðin byggist á að koma fyrir
nálum, sem í raun eru rafskaut, við
taugar sem bera sársaukaboð til
mænu. „Riðstraumi á útvarps-
bylgjutíðnisviði er hleypt á og um-
hverfi taugarinnar er hitað upp. Við
það falla út eggjahvítuefni í tauga-
endanum og taugin verður tíma-
bundið óvirk. Taugaendinn vex aft-
ur og einkenni koma líklegast til á
ný, þótt mismunandi sé á hvað
löngum tíma. Oftast er um mánuði
að ræða en tíminn getur líka verið
talinn í árum,“ segir Bjarni.
„Einnig er hægt að nota svipaða
tækni á taugarætur en án hita. Við
það myndast rafsegulsvið við nálar-
endann sem truflar starfsemi
taugarinnar tímabundið með
minnkandi verkjum.“
Ekki til ein aðferð fyrir alla
Bjarni segir ekki til eina meðferð
sem gagnast öllum verkjum, t.d. or-
sökuðum af slitgigt. „Þess vegna
bjóðum við upp á nokkra mismun-
andi meðferðarmöguleika. Við get-
um beitt blóðflöguríku blóðvatni í
stað stera. Þar er tekið heilblóð úr
einstaklingum, það spunnið og blóð-
vatnið tekið frá. Því er síðan spraut-
að í liði, við sinar og fleira til að
minnka bólgur og örva gróanda.
Blóðvatnið örvar einnig stofn-
frumur sem til eru af náttúrunnar
hendi í vefjum. Til að auka þéttni
stofnfruma er hægt að taka fitu-
frumur á tiltölulega einfaldan hátt
úr kviðvegg og meðhöndla á sér-
stakan hátt hér á staðnum þannig
að það nýtist sem byggingarblokk
og auki áhrif blóðvatnsmeðhöndl-
unar,“ segir Bjarni.
Bein greru hraðar
Bjarni segir Corpus Medica nota
nýja leið við meðhöndlun á stoð-
kerfi. „Segulómunarmeðferð
(MBST) var þróuð þegar farið var
að nota segulómun í greining-
arskyni. Tekið var eftir að bólgu-
verkir minnkuðu, bein og sinar
greru hraðar. Segulsviðið er til-
tölulega lítið, en örvar starfsemi
fruma, þ. á m. í stoðkerfi. Þessi
meðferð er vel þekkt og þróuð í
Þýskalandi og í Mið-Evrópu. Þessi
tækni er nú notuð í um 40 löndum.
Hún hefur verið notuð í um 20 ár
við ýmsum stoðkerfisvandamálum.
Mesta reynslan af þessari meðferð
er á slitgigt og við beinþynningu.“
Stöðug endurnýjun í gangi
Bjarni útskýrir aðferðina nánar.
„Til að gera langa sögu stutta og
einfalda eykur þetta orkuna í frum-
unum. Þær fara að endurnýja sig
og vinna eðlilega. Það er ekkert
blóðflæði í brjóskinu. Brjósk þarf
næringu og súrefni frá vefjunum í
kring. Brjóskið er alltaf undir álagi,
sérstaklega í þessum stóru álags-
liðum. Þar fá þær ekki næga nær-
ingu og súrefni og deyja því hraðar
en þær endurnýjast. Þannig er
þetta yfirleitt í skrokknum. Það er
stöðug endurnýjun í gangi. Frumur
deyja og nýjar frumur koma í stað-
inn. Þetta þarf að vera í jafnvægi til
að allt sé eðlilegt. Með auknum
aldri verður endurnýjun hægari.
Rannsóknir benda til að rúmmál
brjósks hafi aukist eftir segulómun.
En okkur var kennt í læknisfræði
að brjósk endurnýjaði sig ekki,“
segir Bjarni.
Þess virði að reyna á hana
Sigurður Ásgeir segir þetta hafa
hljómað of vel til að vera satt.
„Við áttum fyrst bágt með að trúa
þessu. Við fórum því til Þýskalands
og ræddum við lækna sem höfðu
reynslu af þessari meðferð en þýsk-
ur verkfræðingur er upphafsmaður
hennar. Við heimsóttum meðferðar-
stöðvar sem nota aðferðina.
Læknar þar gáfu henni sín bestu
meðmæli. Þannig að við ákváðum að
láta slag standa. Það er þess virði að
láta reyna á þessa meðferð hér-
lendis því ekki eru þekktar neinar
aukaverkanir af meðferðinni,“ segir
Sigurður Ásgeir.
Örvar frumur
til beinmyndunar
Bjarni segir þá jafnframt nýlega
hafa fengið í hús svonefndan bein-
þéttnibekk fyrir þá sem eru með
beinþynningu. Bekkurinn komi til
viðbótar við 2 aðra meðferðarbekki.
„Beinþynningarbekkurinn örvar
beinfrumur. Við beinþynningu verð-
ur meira niðurbrot en endurnýjun á
beinum þannig að beinin þynnast.
Þetta er alls staðar mikið vandamál,
sérstaklega á Vesturlöndum. Stór
hluti eldra fólks er með beinþynn-
ingu sem eykur hættuna á bein-
brotum og vandamálum sem því
fylgja,“ segir Bjarni.
Segulómun bætir brjósk
Læknarnir á Corpus Medica fara nýjar leiðir við meðferð
Segulómun örvar endurnýjunarmátt frumna í líkamanum
Morgunblaðið/Eggert
Sérfræðingur Bjarni hefur starfað sem læknir í nokkrum löndum.