Morgunblaðið - 07.06.2018, Síða 53
53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018
Stema kerrur - þýsk gæðavara
StemaBasic 750
124.900 m.vsk
Ásafl erumboðs- og þjónustuaðili Stema á Íslandi
Opið 8:30 - 17:00 virka daga - Sími: 562 3833
asafl.is
HJALLAHRAUNI 2, 220 HAFNARFIRÐI
Jón Jónsson mætti einn síns lið í morgun-
þáttinn Ísland vaknar en Friðrik Dór, sem
ætlaði að mæta með, var fjarri góðu gamni
og lét ekki í sig ná. „Ég veit ekkert hvar
hann er,“ sagði Jón aðspurður hvar bróðir
hans væri. „Það er meira að segja slökkt á
símanum.“ Jóni þótti líklegast að Friðrik
væri steinsofandi. „Við fórum mjög snemma
til Vestmannaeyja til að taka upp mynd-
band fyrir þjóhátíðarlagið, ég vaknaði tutt-
ugu mínútum yfir fjögur í gær en Friðrik
var svo stressaður yfir að vakna ekki að
hann vaknaði klukkan tvö, algerlega farinn
sko.“
Aðspurður hvernig hafi gengið að semja
lagið segir Jón að þetta hafi allt byrjað
heima hjá foreldrum þeirra bræðra. „Við
tókum einn heilan dag í Birkiberginu heima
hjá mömmu og pabba, þar er píanó og
svona, mamma og pabbi bara í vinnunni og
við bræðurnir bara að leika okkur. Það var
ekkert að koma, við ætluðum svo innilega
að gera eitthvað nett en svo ákváðum við að
lokum að gera bara þjóhátíðarlag, lag sem
hægt er að syngja með og þá var þetta
fljótt að fæðast.“
Aldrei komið en séð myndir
Bræðurnir verða á ferð og flugi í allt
sumar og millilenda meðal annars á HM í
Rússlandi í júní en þeir réðu sig sem far-
arstjóra hjá ferðaskrifstofunni Tripical. „Ég
náttúrlega þekki Rússland mjög vel,“ segir
Jón, sposkur á svipinn og bætir við að hann
hafi farið þangað þrettán sinnum. „Nei, ég
er að djóka, ég hef aldrei komið til Rúss-
lands, en hef séð myndir, segir hann hlæj-
andi og fullviss um að stemningin verði góð
í hópnum. „Ég ætla samt ekkert að vera
syngjandi í rútum og flugvélum, þetta verð-
ur einhver millivegur en samt mikið stuð,“
segir Jón og minnir á að enn séu til miðar í
þessa mögnuðu upplifun. rikka@k100.is
Neitar að syngja
í rútu eða flugvél
Bræðurnir og tónlistarmennirnir Jón og Friðrik Dór Jónssynir eru
afskaplega samrýndir og nýlega var það gefið út að þeir kæmu til
með að semja þjóðhátíðarlagið þetta árið. Ekki nóg með að þeir
semji eitt lag, eins og venjan er, heldur ætla þeir að skella í tvo
smelli þar sem annað lagið er meira alvöru en hitt til gamans.
Samvinna Bræðurnir Jón og Friðrik Dór
Jónssynir semja tvö Þjóðhátíðarlög þetta árið.
Þegar Björgvin Franz Gíslason var í viðtali í
Magasíninu á K100 á dögunum var hann spurð-
ur út í helstu áskoranirnar við að leikstýra,
þrátt fyrir að hann hafi gert barnaefni í mörg
ár.
Meira krefjandi en hann bjóst við
„Það kom mér á óvart hvað þetta er miklu
meira krefjandi því það er svo margt sem þarf
að ganga upp á sama tíma. Sagan þarf að vera
sterk og grípandi á meðan leikmynd gerð af
hugkvæmni, ljós og hljóðmynd þarf að styðja á
rökréttan hátt við söguna. Manni er sérstak-
lega hugleikið að halda athygli barna sem eru
ekki hrædd við að sýna það þegar þeim er farið
að leiðast,“ útskýrir Björgvin Franz.
Fallegur boðskapur
Leikritið fjallar í raun um gildi samvinnu og
mikilvægi þess að vera í takt við umheiminn.
Nótan Frú FA rífur sig lausa úr Nótnaheimum
til að hefja sólóferil með sér einni. Á leiðinni
uppgötvar hún hinsvegar hversu mikilvægt það
er að eiga samvinnu við aðrar nótur svo að lög
heimsins gangi nú hreinlega upp. Á sama tíma
er Herra Taktur í sinni eigin krísu því honum
finnst enginn vera í takt við sig lengur, hvorki
mannfólkið né nóturnar og ákveður því að taka
sér frí frá því að gefa taktinn í öllum lögum
heimsins og í heiminum. Hann uppgötvar þó að
ef hann er ekki til staðar fer heimurinn bók-
staflega úr böndunum en með samstilltu átaki
Frú FA, Herra Takts og áhorfenda, ná þau að
koma röð og reglu á heiminn í gegnum tónlist.
Þriðju bekkingar fá boð
á sýninguna
Björgvin Franz segist sem betur fer með frá-
bæran hóp með sér, sem hafi hjálpað til við að
þróa handritið og gera það ennþá sterkara.
Unnur Birna Björnsdóttir og Orri Huginn
Ágústsson leika, Björgvin Franz leikstýrir og
er annar leikritshöfunda ásamt Ólafi Reyni
Guðmundssyni. Kristinn Sturluson sér um tón-
list og hljóðmynd, Aldís Davids gerir leikmynd
og búninga og Freyr Vilhjálmsson sér um ljósa-
hönnun.
„Í leikritinu leggjum við áherslu á mikilvægi
samvinnu og að vera í takt við umhverfið. Þátt-
taka áhorfenda er því mikil en leikritið er stút-
fullt af skemmtilegri tónlist sem krakkarnir fá
að taka þátt í. Öll börn í þriðja bekk munu svo
fá boð á leikritið sem verður sýnt í haust.“
hulda@mbl.is
Björgvin Franz leik-
stýrir í fyrsta sinn
Björgvin Franz Gíslason vinn-
ur nú við að koma barna-
leikritinu Nótnaheimar á sviði
í Hörpu. Segir hann að það
hafi komið honum á óvart
hversu ólíkt sjónvarps- og
sviðsformið er. A.m.k. frá
sjónarhorni leikstjórans og
handritshöfundarins.
Leikstjóri Björgvin Franz: „Það er krefjandi
að halda athygli barna sem eru ekki hrædd
við að sýna þegar þeim er farið að leiðast.“