Morgunblaðið - 07.06.2018, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 07.06.2018, Qupperneq 57
MINNINGAR 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018 þessum hópi. Hún var langbesti spilarinn en aldrei fundum við fyrir keppnisskapi eða óþreyju við spilaborðið. Hún kunni spila- kerfið utan að og var óþreytandi við að leiðbeina okkur hinum. Með tímanum þéttist hópurinn, vináttan styrktist og sennilega var það samveran og spjallið sem hélt hópnum saman frekar en metnaður tengdur briddsinu. Guðrún skilur því eftir sig stórt skarð ekki bara við spila- borðið heldur miklu frekar inn- an vinkvennahópsins. Guðrún starfaði lengi á Hag- stofunni. Hún hafði lært stærð- fræði í Svíþjóð og vann sig fljótt upp innan Hagstofunnar enda var hún sérlega talnaglögg og nákvæm í vinnubrögðum. Hún sinnti starfinu af alúð, vann ómælda yfirvinnu og sögðum við oft í gríni að hún ætti skilið að verða tilnefnd ríkisstarfsmaður ársins, mörg ár í röð. Guðrún skipti um starfsvettvang fyrir tveimur árum. Þá minnkaði álagið á hana og frítíminn jókst. Hún var dugleg að hreyfa sig, gekk til vinnu flesta daga og fór í langar göngur um helgar. Ekki síst þess vegna komu þessu bráðu veikindi öllum á óvart og við skynjum að lífið er ekki sjálfgefið. Hárfín lína getur skil- ið að líf og dauða og því er mik- ilvægt að nýta tímann vel. Og það gerði Guðrún Ragnheiður. Hún ræktaði garðinn sinn og bar hag fjölskyldu sinnar og vina fyrir brjósti. Hún lagði sig líka fram við að styðja þá sem minna mega sín og fyrirhugaði ferð í haust sem sjálfboðaliði til Palestínu. En Guðrúnu var ekki ætluð sú ferð, hennar beið annað og stærra hlutverk í ókunnum lendum. Við kveðjum Guðrúnu Ragn- heiði með virðingu og þakklæti og sendum Sigrúnu mömmu hennar og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Þeirra er missirinn mestur. Minningin um kæra vinkonu mun fylgja okkur um ókomin ár. Fjóla, Freyja, Guðrún Margrét, Helga, Solveig, Elísabet og Sigrún. Kær vinur og fyrrverandi samstarfsmaður okkar í Verð- andi, Guðrún Ragnheiður Jóns- dóttir, er látin 58 ára að aldri. Guðrún réðst til starfa hjá fé- lags- og hjálparsamtökunum Verðandi í Stokkhólmi 27. febr- úar 1989. Starfssvið hennar var í byrjun fjármálastjórnun og starfsmannahald samtakanna. Hún ávann sér fljótt virðingu samstarfsmanna sinna og hæfi- leikar hennar og leiftrandi áhugi á starfseminni varð til þess að verkefni hennar urðu fljótt stærri og viðameiri. Hinn 1. janúar 1994 fékk hún stöðu sem fulltrúi á vettvangi hjá samtökunum. Í því fólst vinna innanlands en einnig er- lendis þar sem hún tók þátt í hjálparstarfi í Rússlandi og Vestur-Afríku. Starfið fólst m.a. í baráttu fyrir lýðræði með því að vera til aðstoðar við kosn- ingar og stuðningur við jafnrétt- issamtök á staðnum. Í starfi sínu hjá Verðandi varð Guðrún brátt ómissandi, vegna áhuga síns og þekkingar á öllum stigum starf- seminnar. Margir leituðu til hennar og hún var óþreytandi við að aðstoða fólk. Guðrún sat einnig í ritstjórn tímarits sam- takanna, þar sem hún vann að mörgum verkefnum. Við erum mörg sem minn- umst Guðrúnar með söknuði. Hlýja hennar, tryggð og um- hyggja fyrir öðrum var einstak- ur eiginleiki í fari hennar. Hún var stoð og stytta, vinur sem aldrei brást. Hún hafði lag á því að láta fólki líða vel og láta það vaxa í því sem það var að gera. Hún var hreinskilin og óhrædd að segja sínar skoðanir. Hún var lítillát og talaði gjarnan um störf sín innan heimilishjálparinnar og í frystihúsinu, fremur en að leggja áherslu próf og einkunn- ir. „Ég er vön að vinna við hitt og þetta,“ sagði hún og þannig fékk hún vinnuna hjá Verðandi. Við kveðjum Guðrúnu með söknuði. Hugur okkar leitar til fjölskyldu hennar og vina sem við sendum innilegar samúðar- kveðjur. Um leið erum við þakk- lát fyrir að hafa fengið að kynn- ast henni og fyrir allt það sem hún gerði fyrir Verðandi og Sví- þjóð. Fyrrverandi samstarfsmenn í Verðandi, Raoul Hansson, Danuta Ur- banska, Inge Faldt, Gunvi Haggren, Berit Fernqvist. Það er fyrst og fremst einstök manneskja sem við minnumst nú þegar þú ert fallin frá. Mann- eskja sem var vinur og lét sig varða vellíðan annarra. Þú elsk- aðir fjölskyldu þína og varst vin- ur vina þinna, hópi sem við er- um þakklát fyrir að tilheyra. Við sáum það fljótt hve þú varst ná- in fjölskyldu þinni og hve mikill kærleikur og samheldni var ríkjandi í ykkar hópi. Við, vinir þínir á Hagstofunni, deildum með þér mörgum gleði- stundum, hvort sem var á vinnu- tíma eða utan hans. Við vissum að við áttum alltaf hauk í horni þar sem Guðrún Ragnheiður var, sem var ætíð tilbúin að miðla þekkingu sinni og byggja upp samstarfsfólk sitt og veita innblástur. Svo var líka iðulega stutt í hláturinn. Oft þurftum við líka að stilla saman strengi þeg- ar áskoranirnar kröfðust þess. Þá var svo dýrmætt að eiga að vinkonu sem var djúpvitur, heið- arleg, skynsöm og með hjartað á réttum stað eins og sönnum leið- toga sæmir. Við sáum að þú gerðir oft og tíðum óheyrilegar kröfur til sjálfrar þín og lagðir hart að þér og það urðu einhverjir til að ganga á lagið með það. Þrátt fyrir það hafðir þú líka hæfileik- ann, sem okkur skortir svo mörg í dag, að þú kunnir að lifa í núinu og njóta. Þú gafst þér tíma fyrir fólkið þitt, fjölskyld- una og vinina. Þú sóttir fjöldann allan af listviðburðum, ferðaðist og spilaðir blak og brids. Sem einstaklingur varstu sönn í orði og á borði. Hafðir já- kvætt viðhorf og vannst mark- visst að málefnum jarðar og friðar. Enginn einn getur gert allt, en allir geta gert eitthvað eru orð sem eiga vel við. Þú fórst ferða þinna gjarnan gang- andi eða hjólandi, gættir hóf- semi og skynsemi í neyslu og nýtingu og notaðir frítíma þinn í félagsstörf í þágu friðar. Nú er skarð fyrir skildi þegar þú ert fallin frá. Við erum svo óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið að vera samferða þér þennan tíma sem okkur var gef- inn. Við sendum innilegar sam- úðarkveðjur til fjölskyldu Guð- rúnar. Heiðrún Erika, Auður Ól- ína, Gunnar Axel og fleiri vinir af Hagstofu Íslands. Það var mikið lán fyrir okkur hjá Virk – starfsendurhæfing- arsjóði þegar Guðrún Ragnheið- ur Jónsdóttir ákvað að þiggja stöðu sérfræðings hjá sjóðnum í maí 2016. Það varð enda ljóst á fyrstu dögum hennar í starfi að hér var á ferðinni bæði mjög öfl- ugur starfsmaður og samstarfs- maður sem ávann sér strax traust og hylli allra sem kynnt- ust henni og störfuðu með henni. Guðrún Ragnheiður hafði til að bera alla þá kosti sem prýða afburðastarfsmann. Hún var vinnusöm, glaðlynd, samvisku- söm, mjög klár, ábyrg, heiðarleg og ekki síst jákvæð. Ég gat allt- af verið örugg með þau verkefni sem hún tók að sér og oftar en ekki kom hún með nýjar lausnir og nálganir sem aðrir sáu ekki fyrir. Hennar framlag til upp- byggingar og þróunar á Virk á undanförnum tveimur árum hef- ur verið mjög verðmætt og í raun ómetanlegt. Guðrún Ragnheiður var auk þess sérstaklega góður vinnu- félagi og mjög vel liðin af öllum samstarfsmönnum. Hún tók virkan þátt í félagslífi á vinnu- staðnum og var ávallt tilbúin að leggja sitt af mörkum til að byggja upp góðan og öflugan vinnustað. Hún hafði einlægan áhuga á öðru fólki og var auk þess áhugasöm og vel að sér um margt, m.a. þjóðfélagsmál, bók- menntir og ferðalög. Samtöl við hana voru því alltaf bæði skemmtileg, fróðleg og upp- byggjandi. Það er mikill missir að Guð- rúnu Ragnheiði á skrifstofu Virk og söknuður samstarfsmanna er mikill. Við hjá Virk kveðjum Guðrúnu Ragnheiði með bæði þakklæti og eftirsjá og sendum innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu hennar. Vigdís Jónsdóttir, fram- kvæmdastjóri Virk – starfs- endurhæfingarsjóðs. Hún Guðrún Ragnheiður var vinnufélagi minn á Hagstofunni um árabil. Hún var ráðin sem sérfræðingur í vísitöludeild, varð síðar yfirmaður deildarinnar og loks deildarstjóri þjóðhagsreikn- inga. Hún var afburðastarfsmað- ur og hörkudugleg, hafði mikla stærðfræðiþekkingu og varð mikill sérfræðingur um flest er laut að verðmælingum, vísitölum og efnahagstölfræði. Hún tók mikinn þátt í alþjóðasamstarfi um verðtölfræði og gat sér afar gott orð á því sviði. Þetta var svo sem gott og blessað og eins og að var stefnt, en svo kom það til að Guðrún var frábær mann- eskja og vinnufélagi, glaðlynd, skaprík, skemmtileg og umfram allt gefandi. Auk þessa áttum við nokkur sameiginleg áhuga- mál, svo sem tónlist og veiði í Soginu þar sem hún hafði veitt með föður sínum og bræðrum og ég með föður mínum og bræðr- um. Samstarfi okkar lauk þegar ég hvarf frá Hagstofunni fyrir röskum áratug, leiðir okkar skildi þó ekki, vináttan hélst og við hittumst endrum og sinnum, gjarnan í hádeginu á Fylgifisk- um ásamt Eiríki Hilmarssyni, félaga okkar. Þetta voru nota- legar stundir og endurnærandi eins og vænta mátti þegar Guð- rún átti í hlut. Það er sárt að missa slíka manneskju, slíkan vin. Það er sárt að missa hana Guðrúnu Jóns. Eftir standa minningar; um samstarfið, samveruna og þessa frábæru konu. Eftir stendur ekki síður þakklæti fyrir sam- fylgdina, félagskapinn og vinátt- una. Hallgrímur Snorrason. Guðrún Ragnheiður réð mig til starfa í vísitöludeild Hagstofu Íslands þegar ég var að klára háskóla. Ég er henni þakklát fyrir að hafa gefið mér, ungri og reynslulítilli, þetta tækifæri, ekki síst vegna þeirra forrétt- inda að fá að kynnast henni sjálfri. Í Guðrúnu eignaðist ég glæsilega fyrirmynd að því hvernig ég vil lifa og starfa. Guðrún Ragnheiður var ynd- islegur yfirmaður en algjör fork- ur til vinnu. Vann langa daga og mætti oft á laugardögum. Slíkt gerir fólk ekki nema vegna brennandi áhuga og metnaðar í starfi. Kæmi það fyrir að Guð- rún færi fyrr úr vinnunni var yfirleitt einhver skýring, tón- leikar eða annar viðburður sem hún ætlaði að sækja. Þegar Guð- rún ákvað að flytja sig til í starfi hefði auglýsingin eftir eftir- manni hennar þurft að vera á þá leið að ekki dytti nokkrum í hug að sækja um. Sömu kröfur um glöggskyggni, talnaminni, elju, vinnusemi, samskiptafærni, hjálpsemi, álagsþol og ósérhlífni hefði enginn uppfyllt. Þótt Guðrún Ragnheiður ynni mikið gerði hún margt annað líka og var í miklum tengslum við fjölskyldu og vini. Meðal annars spilaði hún bridge, rækt- aði gulrætur í garðinum og spil- aði blak. Eitt sinn fór hún ein frá Hagstofu Íslands á blakmót evrópskra hagstofa þar sem hún spilaði með liði sænsku hagstof- unnar. Ég veit ekki til þess að hún hafi þekkt liðsfélagana neitt fyr- ir fram. Enda voru henni veitt verðskulduð hugrekkisverðlaun fyrir þátttöku á mótinu. Í gegnum daglegt samstarf við Guðrúnu finnst mér ég þekkja stóra hluta fjölskyldu hennar og vina. Foreldrar henn- ar, systkini, systkinabörn og fósturbörnin, sem hún kallaði svo, áttu stóran sess í hjarta hennar. Ég hugsaði oft til þess hversu heppin systkinabörn hennar væru að eiga svona frá- bæra frænku. Það er mikil synd að við fáum ekki að njóta samvista við Guð- rúnu Ragnheiði lengur. Hennar verður sárt saknað en minnst af hlýju af mjög mörgum. Lára Guðlaug Jónasdóttir. Í árslok árið 1996 var auglýst laust starf í vísitöludeild Hag- stofu Ísland. Umsækjendur voru margir og þar á meðal Guðrún Ragnheiður. Hún stundaði nám í Svíþjóð, starfaði þar í mörg ár og vann hjá sænskum samtök- um, Verdandi, við uppbyggingu á félagasamtökum aðallega í Pétursborg og Gambíu. Ég leitaði eftir umsögn yfir- manns hennar í Stokkhólmi og í lok samtalsins sagði hann. „Þó að það séu liðin tíu ár kann ég enn starfsumsókn hennar utan- bókar, hún var frekar einföld, tvær setningar: Ég er Íslend- ingur. Ég er vön að vinna.“ Ég hafði á orði á góðri stundu að líklega væri hún eina manneskj- an sem hefði verið ráðin til starfa í tveimur ríkjum með sömu atvinnuumsókn. Guðrún okkar eins og nánasta samstarfsfólk nefndi hana starf- aði á Hagstofunni í rúmlega 19 ár og var einn nánasti sam- starfsmaður minn. Frá upphafi kom í ljós að hún var afburða- manneskja og dugnaður hennar og nákvæmni einstök. Hún var vinnusöm og dugleg, eiginleikar sem nýttust vel undir miklu álagi sem starfinu fylgdi. Guðrún okkar átti auðvelt með að tengja saman ólíkar heimildir, var mjög rökföst og stóð ætíð föst á því sem hún taldi rétt, en samt aldrei ósann- gjörn. Hún hafði þolinmæði til að hlusta á aðra og reyna að átta sig á innihaldi þess sem sagt var og jafnframt þann sjaldgæfa hæfileika að gera alla að vinum sínum og þá skipti engu hvort þeir væru sammála henni eða ekki. Það eina sem hún þoldi illa var ef henni var ekki sýnd full virðing í samræðum eða sam- skiptum. Alltaf tókst henni að koma þeim sem við var rætt í skilning um, með vingjarnlegum en ákveðnum hætti, að slík framkoma væri ekki liðin. Ég hefði aldrei viljað vera í sporum þeirra og eftir á hafði hún ekki mörg orð um málið, en brosti samt eilítið út í annað. Í samskiptum var það ætíð hún sem gaf af sér, sýndi vinum sínum áhuga og mikla um- hyggjusemi og var að auki gædd eðlilegri forvitni um hag allra. Hjálpsemi og umhyggja hennar leiddi til þess að flestir sem hún hafði samskipti við opnuðu sálarkima sína og ræddu um hina ólíklegustu hluti, hún gat alltaf gefið góð ráð sem voru vel þegin. Þetta voru tímar mikilla breytinga og þróunar í gerð og útreikningi á vísitölu neyslu- verðs og við tókum einnig virkan þátt í erlendu samstarfi og skrif- uðum saman nokkra ráðstefnu- pappíra. Allt var unnið undir álagi og mikilli tímapressu. Þessi tími var samt afar skemmtilegur og ætíð litið á skoplegu hlið hlutanna því Guð- rún okkar hafði beitta kímni- gáfu. Þegar munnurinn herptist eilítið og augun kipruðust saman komu stuttar en hárfínar at- hugasemdir sem alltaf enduðu með dillandi hlátri sem lifir í minningunni. Mikill harmur er kveðinn að ættingjum og vinum við fráfall hennar en eftir lifir minningin í huga og hjarta allra sem hana þekktu, um einstaka manneskju og vin. Við Helga færum móður hennar, systkinum og ættingjum innilegar samúðarkveðjur. Rósmundur Guðnason. Kveðja frá Hagstofu Íslands Hagstofan kveður í dag náinn og vel metinn samstarfsmann Guðrúnu Ragnheiði Jónsdóttur sem starfaði á Hagstofu Íslands í rúm 19 ár. Guðrún starfaði í vísitöludeild Hagstofunnar árin 1997 til 2012 og sem deildar- stjóri frá árinu 2007. Á árinu 2012 tók hún við sem deilda- stjóri í deild þjóðhagsreikninga og opinberra fjármála og starf- aði þar til ársins 2016 er hún lét af störfum. Áður en Guðrún Ragnheiður hóf störf á Hagstof- unni var hún við nám og störf í Svíþjóð. Á ferli sínum á Hagstofunni starfaði Guðrún á mörgum svið- um sem snerta efnahagstölfræði Íslendinga á tímum þegar mikl- ar umbætur urðu í hagskýrslu- gerð. Starfsemi vísitöludeildar- innar varð önnur og aðferðir við útreikning og gerð neysluverðs- vísitölunnar breyttust sem átti sér alþjóðlegar rætur og þar var Guðrún Ragnheiður í forystu. Ein veigamesta breytingin var þegar grunnur neysluvísitöl- unnar var reistur á árlegri út- gjaldarannsókn sem var óslitin frá árinu 2000. Á hverju ári var skipt um útgjaldagrunn vísitöl- unnar sem var meginbreyting í vinnu við neysluvísitöluna og jók til muna álag á starfsmenn deildarinnar. Guðrún Ragnheiður stjórnaði og kom gagnaúrvinnslunni í fast form og birti niðurstöðurnar reglulega og er sú úrvinnsla enn notuð í dag. Að skipuleggja vinnsluna og koma á reglulegri úrvinnslu og útgáfu var verulegt átak og þar nýttist dugnaður, skipulagsgáfa og framtakssemi hennar vel. Árleg útgáfa á nið- urstöðum útgjaldarannsóknar var mikil framför og jók hróður Hagstofunnar. Guðrún Ragnheiður sá einnig um ýmsar Hagtíðindaútgáfur svo sem fyrir vísitölu neyslu- verðs og alþjóðlegan verðsam- anburð. Á þessum árum jókst þátt- taka Hagstofunnar í erlendu samstarfi verulega og tók Guð- rún Ragnheiður virkan þátt í því. Hún var virk í starfsemi ým- issa vinnuhópa á sviði verðvísi- talna og þjóðhagsreikninga. Hún var ætíð glæsilegur fulltrúi Ís- lands og tók virkan þátt og skrifaði og lagði fram pappíra ásamt samstarfsfólki sínu um ýmis aðferðafræðileg mál á sviði neysluverðsvísitalna. Hún var skýr í framsetningu og naut virðingar og vinsælda meðal samstarfsfólks jafnt hér á landi sem erlendis. Árið 2012 tók Guðrún Ragn- heiður við starfi deildarstjóra í deild þjóðhagsreikninga og opin- berra fjármála. Á þeim tíma stóðu yfir miklar umbætur og voru nýir staðlar teknir í notkun árið 2014. Guðrún Ragnheiður var í forystu í þeirri vinnu og lagði af mörkum mikið og óeig- ingjarnt starf ásamt samstarfs- mönnum við að koma nýja staðl- inum í notkun með góðum árangri. Guðrún Ragnheiður var vin- sæl meðal samstarfsmanna og lét sér annt um hagi þeirra. Þeir leituðu gjarna til hennar eftir stuðningi við úrlausn ýmissa mála bæði hvað varðaði starf og einkahagi og þáðu frá henni góð ráð. Hún var rökföst í framsetn- ingu og hafði sérstakan eigin- leika að sjá hluti í stærra sam- hengi. Vinnusemi hennar, samviskusemi, alúð og dugnaður var mikill og fyrir framlag henn- ar og einlægt samstarf þakkar Hagstofan. Hagstofan sendir móður hennar, systkinum og öðrum ættingjum innilegar samúðar- kveðjur. Ólafur Hjálmarsson hagstofustjóri. Í dag kveð ég góða vinkonu og yndislega manneskju. Ég kynntist Guðrúnu þegar ég var um það bil að ljúka við doktorsritgerð mína en sumarið 2000 vann ég að gagnasöfnun á Hagstofu Íslands. Guðrún hafði starfað hjá Hag- stofunni frá árinu 1997 en það ár flutti hún til Íslands eftir tíu ára búsetu í Svíþjóð. Þar sátum við hlið við hlið um nokkurra vikna skeið og ég fann strax að Guð- rún var bæði hjálpsöm og greið- vikin en líka einstaklega skemmtileg kona. Eftir að ég lauk námi mínu í Svíþjóð lágu leiðir okkar aftur saman þegar ég hóf sjálf störf hjá Hagstofunni. Vinátta Guð- rúnar var ómetanleg. Til hennar var alltaf hægt að leita með stór og smá vandamál. Það var alltaf jafngott að sækja hana heim og sitja í fallega, sjálfbæra garð- inum hennar. Guðrún var einstök. Hún var réttsýn, lét til sín taka í mann- úðarmálum og hafði, þrátt fyrir mikla vinnusemi, alltaf tíma fyr- ir ættingja sína og vini. Sjálf átti hún engin eigin börn en þau eru mörg börnin sem hafa notið góðs af kærleika hennar. Dóttir mín var ein þeirra en Guðrún bauðst til að aðstoða hana í stærðfræði þegar hún var að lesa undir samræmdu prófin. „Ég fann svo vel að hún hafði trú á mér,“ sagði dóttir mín í samtali þegar við ræddum um fráfall Guðrúnar. Samverustundir okkar Guð- rúnar urðu því miður alltof fáar. Nú er hún farin frá okkur en eftir lifir minningin um einstaka manneskju og góða fyrirmynd. Móður Guðrúnar, systkinum, systkinabörnum og öðrum að- standendum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Missir ykkar er mikill. Ólöf Garðarsdóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.