Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 53
Ferskt hráefni Unnið er út frá þeirri hugmyndafræði að gæðin skipti meira
máli en magnið en mikið er lagt upp úr fyrsta flokks hráefni.
Framreiðslumeistarinn Auður Mikaelsdóttir fyrir framan veitingastaðinn.
Ljósmyndir/Áslaug Snorradóttir
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
„Ég var í skiptinámi í Shanghai þeg-
ar hugmyndin kviknaði. Ég hafði aldr-
ei farið svona langt að heiman og
kannski var það fjarlægðin en á þess-
um tímapunkti kviknaði hugmyndin
um að leita út fyrir höfuðborgarsvæðið
og prófa eitthvað algjörlega nýtt,“ seg-
ir Auður spurð um aðdraganda þess að
þau hjónin undu kvæði sínu í kross.
„Við erum bæði í veitingabrans-
anum; ég er framreiðslumeistari og
Andrés matreiðslumeistari, og okkur
langaði að gera eitthvað á eigin spýt-
ur,“ segir Auður sem að auki er með
tvær gráður í listfræði auk MBA-
prófs. „Við tók leitin og við fórum víða.
Borgarnes var skoðað og Hvera-
gerði … eiginlega skoðuðum við allt en
fundum ekkert sem passaði algjörlega
við það sem við höfðum í huga. Það er
svo fyrir algjöra tilviljun að ég rekst á
hús á Hornafirði og má segja að það
hafi verið ást við fyrstu sýn. Andrés
var þá staddur í Víetnam og hann
flaug heim í gegnum Kuala Lumpur til
að fara austur með mér og skoða hús-
ið.“
Staður fyrir fjölskyldur
Húsið sem um ræðir er elsta íbúðar-
húsið á Höfn í Hornafirði og var byggt
af Ottó Túliníus. „Þetta hús er bæði of-
boðslega fallegt og sögufrægt. Búið
var að gera það upp af Minjavernd og
það var Páll V. Bjarnason arkitekt sem
hannaði endurbæturnar. Þannig var
það þegar við sáum það fyrst,“ segir
Auður. Í húsinu hafði verið rekið kaffi-
hús en Auður og Andrés ætluðu sér
meira. Þau settu sitt mark á húsið og
þar slær nú öflugt hjarta. „Við búum
uppi á þriðju hæð þannig að við erum
aldrei langt undan. Í þessu húsi fædd-
ist fyrsti Hornfirðingurinn og það er
einmitt það sem hugmyndafræði okk-
ar gengur út á. Þetta er lifandi hús,
fyrir fólk og fjölskyldur. Hér geturðu
borðað, setið og notið. Við erum eins
heiðarleg í þessu og við getum. Mat-
urinn er hófstilltur í verði en við hvik-
um hvergi frá gæðunum og hafa gestir
okkar einmitt verið mjög ánægðir með
hvað þeir fá fyrir peninginn.“
Veitingastaðurinn var nefndur í höf-
uðið á manninum sem byggði húsið,
Ottó, og við nafnið bætist svo matur og
drykkur. Ekki hafi komið til greina að
hafa nafnið á ensku enda samræmist
það ekki hugmyndafræðinni á bak við
staðinn.
Þegar Auður og Andrés áttuðu sig á
því að ekkert bakarí væri á Höfn
ákváðu þau að fjárfesta í forláta stein-
ofni sem Auður segir hlæjandi að muni
sjálfsagt seint borga sig upp en fyrir
vikið geti þau boðið upp á nýbakaða
snúða í morgunsárið og súrdeigsbrauð
á daginn. Bakkelsi sé því í boði á Höfn
og hafa viðtökurnar verið frábærar.
Hverfisbarinn í kjallaranum
Að auki er að finna forláta bar í
kjallara hússins sem Auður segir að
minni sig um margt á Kaffibarinn.
„Barinn er mjög vinsæll og hingað
kemur fólk og spilar, drekkur, horfir á
fótboltann eða bara til að hittast.“ Það
er því ljóst að koma þeirra til Hafnar
hefur verið mikill hvalreki fyrir bæinn
og vænta má þess að margir muni
gera sér leið þangað í sumar enda virð-
ist besta veðrið vera fyrir austan.
Hvað Auði og Andrési varðar þá sjá
þau ekki eftir að hafa tekið þessa
ákvörðun. „Við vissum ekkert hverju
við ættum von á heldur fórum bara af
stað og höfum gert okkar besta. Við
höfum upplifað mikla manngæsku
hérna og viðtökurnar hafa verið ótrú-
legar. Við erum þakklát og auðmjúk.
Þetta er fallegasti og besti staður í
heimi.“
Besti og fallegasti staður í heimi
Hvað fær dagfarsprúða 101-fjölskyldu til að venda
kvæði sínu í kross og elta drauma sína austur á land?
Þau Auður Mikaelsdóttir og Andrés Bragason gerðu
nákvæmlega það fyrr á þessu ári þegar þau fluttu á
Höfn í Hornafirði og komu sér fyrir í elsta íbúðarhúsi
bæjarins þar sem þau opnuðu veitingastað.
Ottó í öllu sínu veldi Hjónin
Andrés og Auður fyrir framan
Ottó – mat og drykk.
Nýbakað bakkelsi Ekkert bakarí
er á Höfn í Hornafirði og því kær-
komið að fá nýbakað bakkelsi á
hverjum degi.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018