Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 73
MENNING 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018
Hljómsveitin Auðn spilarþað sem gjarnan hefurverið þýtt sem svart-málmur á íslensku en
það er þýðing á black metal sem
er tegund af þungarokki sem á
rætur að rekja til Noregs í kring-
um árið 1990. Mikið vatn hefur
runnið til sjávar síðan og stefnan
verið í stöðugri þróun og mótun.
Auðn er því
hluti af hreyf-
ingu innan
svartmálms sem
talað er um sem
þriðju kynslóð
svartmálms.
Aukið hefur ver-
ið í rokk og grípandi gítar-riff,
ásamt afar dreymandi og mel-
ódískum köflum á milli, og þessi
blanda svartmálms er því bæði
meira grípandi og tilraunakennd-
ari en uppruninn var.
Ég veit nú ekki hvort það er
eitthvað sem ber að halda til haga,
en slík þróun svartmálms er ekki
allra. Þeir sem vilja halda sem
fastast í upprunann kjósa jafnvel
að uppnefna þessa tegund svart-
málms „hipstera-blackmetal“ og
finnst það eitthvað verra. Ég gæti
hins vegar ekki verið meira ósam-
mála þessu og tel að allar tónlist-
arstefnur sem hafa pláss til að
þróast og vaxa í allar mögulegar
og ómögulegar áttir séu lifandi og
fyrir vikið meira spennandi. Ef
alltaf er notast við sama form og
sömu hugmyndir verður fljótlega
ákveðið hjakk og þá vantar átak-
anlega upp á hugmyndaflug og
ferska orku.
Auðn er með allt það besta úr
upprunalega svartmálminum, eins
og drungalegan hljóm, hraða
trommukafla og gítarveggi, en
bætir einnig við einhverju nýju frá
sér og endurnýjar þannig hjólið
án þess að finna það upp. Þemu
sveitarinnar í textagerð eru afar
dimm og þunglyndisleg og ríma
vel við nístandi kaldan og oft dap-
urlegan hljóm plötunnar. Því já,
það er hægt að fanga sorg og dep-
urð í tónlist, og það tekst Auðn
hér með glæsibrag. Textarnir
bæta samt í sjálfu sér litlu við
hljóðheiminn og ég var til að
mynda búin að hlusta margoft á
plötuna áður en ég hlustaði loks
með textablaðið fyrir framan mig.
Ég varð svosem ekkert fyrir von-
brigðum, en þarna er engu að síð-
ur um mjög hefðbundna þunglynd-
is-ljóðlist að ræða. Hráslagalegar
náttúrulýsingar og erfiðar tilfinn-
ingar á borð við depurð, eftirsjá
og angist eru gegnumgangandi, en
hvað ætti svo sem að ganga betur
við harðneskjulega hljóðmyndina?
Lögin á Farvegum fyrndar eru
níu og flest þeirra firnasterk.
Heildarlengd plötunnar er um 50
mínútur og lögin, sem eru í lengra
lagi, gera þá kröfu til hlustandans
að gefa sér tíma. Þannig er þessi
plata bara. Þú skellir henni ekkert
á í bakgrunninn meðan þú ert með
matarboð eða hlustar bara á eitt
lag og ferð svo strax að hlusta á
eitthvað annað. Nei, þessa plötu
áttu fyrst að hlusta á ein/n, jafnvel
í heyrnartólum, og hugsa um líf
þitt og hvað það er sem bærist
innra með þér. Ekki er verra að
fara út að ganga eða hjóla með
hana í eyrunum, og hún gekk til
dæmis frábærlega upp í göngu- og
hjólaferð um Viðey um daginn.
Sterkustu lög plötunnar eru
„Skuggar“, „Í hálmstráið held“ og
„Blóðrauð sól“ og hið síðastnefnda
er algjör hittari, ef hægt er að
tala um slíkt hjá svartmálmssveit.
Gítarhljómur og gítarútsetningar
eru sterkasta hlið Auðnar, og
reyndar er allur hljómur plöt-
unnar framúrskarandi og nær að
heltaka mann svo maður hverfur
gjörsamlega inn í tónlistina. Plat-
an sýnir að Auðn er hljómsveit á
feiknamiklu flugi og verður sterk-
ari með hverri dapurlegri nótu til
viðbótar.
Sterkari með hverri dapurlegri nótu
Ljósmynd/Lilja Draumland
Geisladiskur
Auðn – Farvegir fyrndar bbbbn
Season of Mist gaf út plötu Auðnar í lok
árs 2017. Auðn eru gítarleikararnir Að-
alsteinn Magnússon og Andri Björn
Birgisson, söngvarinn Hjalti Sveinsson,
bassaleikarinn Hjálmar Gylfason og
trommuleikarinn Sigurður Kjartan Páls-
son. Platan var tekin upp í Sundlauginni
af Birgi Jóni Birgissyni og Rolf Grove.
Kristján Björnsson tók upp raddir í Bak-
aríinu hljóðveri. Stephen Lockhart í
Studio Emissary hljóðblandaði og
hljómjafnaði.
RAGNHEIÐUR EIRÍKS-
DÓTTIR
TÓNLIST
Auðn „Er með allt það besta úr upprunalega svart-
málminum, eins og drungalegan hljóm, hraða
trommukafla og gítarveggi, en bætir einnig við ein-
hverju nýju frá sér og endurnýjar þannig hjólið án
þess að finna það,“ segir gagnrýnandi meðal annars
um málmsveitina knáu og er almennt hrifinn af nýj-
ustu breiðskífu hennar, Farvegir fyrndar.
Bandarísku bókasafnasamtökin,
The American Library Association
eða ALA, hafa tekið þá ákvörðun
að nefna ekki lengur barnabóka-
verðlaun sín eftir rithöfundinum
Lauru Ingalls Wilder, þeirri er
skrifaði m.a. um Húsið á sléttunni
sem samnefndir sjónvarpsþættir
eru byggðir á, þar sem barnabæk-
ur hennar þykja innihalda kyn-
þáttahatur. Samtökin segja þessa
ákvörðun ekki tilraun til ritskoð-
unar á bókum Wilder eða tak-
mörkunar á aðgengi að þeim, að
því er fram kemur í frétt á vef
dagblaðsins Guardian.
Samtökin tilkynntu ákvörðun
þessa sunnudaginn síðastliðinn, að
stjórn sambands bókasafnsþjón-
ustu við börn, Association for
Library Service to Children eða
ALSC, hefði samþykkt einróma að
breyta nafni verðlaunanna en þau
voru fyrst veitt árið 1954 af Wild-
er sjálfri. Margir ástsælustu
barnabókahöfundar Bandaríkj-
anna hafa hlotið verðlaunin, m.a.
EB White.
Í sjálfsævisögulegum bókum
Wilder má m.a. finna ummæli þess
efnis að eini góði indíáninn sé
dauður indíáni og kemur sú setn-
ing þrisvar við sögu í Húsinu á
sléttunni.
Í annarri bók, On the Banks of
Plum Creek, sem er fjórða bókin í
syrpunni um litla húsið sem Wil-
der bjó í með fjölskyldu sinni, var-
ar Mary, systir Wilder, hana við
að hún geti orðið brún eins og
indíáni og veltir fyrir sér hvað
hinum stelpunum í bænum muni
þykja um það. Í annarri bók kem-
ur andúð móður Wilder á indíán-
um berlega í ljós, hún sögð fyr-
irlíta þá og óttast.
Fordómar Laura Ingalls Wilder
fæddist árið 1867 og lést 1957. Hún
skrifaði fjölda bóka, m.a. átta í syrp-
unni um litla húsið á sléttunni.
Barnabókaverðlaun ekki
lengur kennd við Wilder
Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is
Allir vilja koma að sumarbústaðnum sínum eins og þeir skildu við
hann og tryggja öryggi sitt og sinna sem best. Öryggisbúnaður, eins
og lásar, þjófavarnarkerfi, reykskynjarar og slökkvitæki, fæst í
miklu úrvali í Vélum og verkfærum.
Öryggi í sumarbústaðnum
Blaupunkt SA2700
Þráðlaust þjófavarnarkerfi
• Fullkominn GSM hringibúnaður
• Hægt að stjórna með Connect2Home-appi
• Boð send með sms eða tali
• Viðbótarskynjarar og fjöldi aukahluta fáanlegir
Verð: 39.990 kr.
OLYMPIA 9030
Þráðlaust þjófavarnarkerfi
• Mjög einfalt í uppsetningu/notkun
• Fyrir farsímakort (GSM)
• Hringir í allt að 10 símanúmer
• Allt að 32 stk. skynjarar
• 2 stk. hurða/gluggaskynjarar og fjarstýring fylgir
• Fáanlegir aukahlutir:
viðbótarfjarstýringar, glugga/hurðaskynjarar,
svæðisskynjarar PIR, reyk- og vatnsskynjarar.
Verð: 13.330 kr.
ICQC 2018-20