Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ HæstirétturBandaríkj-anna er mikið átakaefni í stjórnmálum þess lands, sem er at- hyglisvert. Dómarar eru ævi- ráðnir í sitt starf og þeir taka það bókstaflega. Elstu dóm- ararnir eru 85 ára, 82 ára og 80 ára. Forsetinn tilnefnir nýjan dómara í Hæstarétt ef sæti eins af 9 losnar og öldungadeildin þarf að staðfesta hana. Það tek- ur tíma, því að dómaraefnið þarf að kynna sig fyrir hverjum þingmanni og eiga við hann samtal. Þá fara fram „yfir- heyrslur“ yfir dómaraefninu og stundum æði sérkennilegar. Dómararnir eru gjarnan spurð- ir um það hvort að þeir fylgi bókstaf stjórnarskrárinnar eins og fært sé gagnvart álita- efni dagsins eða hvort þeir telji að dómurinn geti gengið inn á verksvið löggjafans ef stjórn- arskráin verði ekki að þeirra mati felld að álitaefninu. Sumir þeirra sem hafna lagasetning- arvaldinu hafa snúið við blaðinu eftir að sætið er tryggt og ekki hægt að hrófla við þeim! Mjög sjaldgæft er að dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna telji sig vanhæfan til dóm- starfa. Forfallist dómari af þeirri ástæðu, eða af öðrum lögmætum ástæðum eða sæti hans verður autt vegna andláts, er ekki kallaður inn dómari. Þá dæma þeir 8 sem eftir sitja af 9 dómurum. Falli atkvæði þá jafnt stendur niðurstaða áfrýj- unardómstólsins. Eftir að hinn kunni dómari, Antonin Scalia, lést í febrúar 2016, níu mán- uðum fyrir forsetakosningar, reyndi Obama án árangurs að fá nýjan dómara staðfestan. Nýr dómari, tilnefndur af Trump, Neil Gorsuch, mætti í réttinn 14 mánuðum eftir and- lát Scalia. Á meðan dæmdu átta dómarar. Hæstiréttur Bandaríkjanna ákveður hvaða mál hann dæmir og meginreglan er sú að þau þurfi að snúast um stjórnar- skrártengd málefni. Bæði hér á landi og t.d. í Danmörku er fá- títt að um slík álitamál sé að ræða þótt málflytjendur hafi stundum með að álitaefnið sé þeirrar náttúru. Í Danmörku hefur Hæstiréttur talið að lög- gjafinn hafi sjálfur víðtækt mat á því hvort að löggjöf samræm- ist stjórnarskrá eða ekki. Á Ís- landi var það einnig svo en það hefur aðeins færst í vöxt að Hæstiréttur horfi til stjórnar- skrár og er eðlilegt, ekki síst þar sem sístækkandi hluti ís- lensku lögbókarinnar fæðist í fjöldaframleiðslu í Brussel án nokkurs lýðræðislegs atbeina. Enginn lýðræðislegur atbeini á sér stað, þótt þannig sé látið. Íslenskir embættismenn sem stimpla mál þar spyrna aldrei við fótum svo vitað sé. Þeir telja flestir að hlutverk sitt sé að hotta á heimamenn að koma fjöldaframleiðslunni ólesinni áfram. Ríkjaskipunin er megin- ástæða þess að tiltölulega mörg mál koma til kasta Hæstaréttar í Bandaríkjunum. Ákvarðanir þinga þeirra og úrskurðir dóm- stóla og svo svæðisbundinna áfrýjunardómstóla einstakra ríkja skoða síðan valdmörk þessa og alríkisstjórnarinnar og þjóðþingsins í Washington og þar með leiðsögn stjórnar- skrárinnar. Niðurstaða Hæstaréttar sem birt var í gær varðaði stórmál, sem rúmlega þriðjungur ríkja landsins hafði sett sams konar eða sambærileg lög um. Þau snúast um skyldu starfsmanns til að gjalda framlag til laun- þegafélags þótt hann hafi ákveðið að standa utan við það. Í þessu tilviki félög opinberra starfsmanna. Þessi félög hafa mörg haft velþóknun á demó- krötum og hafa stórar fúlgur gengið frá þeim til flokksins, beint eða óbeint. Það hefur iðu- lega gerst þótt kannanir sýni að meirihluti almennra félags- manna þeirra, svo ekki sé talað um þá sem utan standa en eru látnir greiða samt, styðji repú- blikana, þótt forystan sé í hönd- um virkra demókrata. Hæsti- réttur hafði úrskurðað fyrir meira en 4 áratugum að efnið sem nú var deilt um stæðist stjórnarskrá. Nú segir Hæsti- réttur að sá dómur hafi verið rangur þá og sé það enn og fær- ir sannfærandi rök fyrir því. Demókratar eru æfir og benda sérstaklega á hinn nýja dóm- ara, Gorsuch, og segja hann hafa ráðið úrslitum. Það er ólík- legt, því að enginn efast um að Scalia hefði dæmt eins. En hitt gæti verið rétt að hefði Obama komið sínum manni að á loka- metrunum hefði niðurstaðan orðið önnur. Félagafrelsi er tryggt í ís- lensku stjórnarskránni. Heild- arsamtök launþega á vinnu- markaði og Samtök atvinnu- lífsins hafa þó í eins konar virku „samsæri“ gegn ákvæð- inu tryggt að þetta félagafrelsi er orðin tóm. Það er ekki endi- lega tengt álitaefninu vestra, þótt það gefi löngu tímabært tilefni til að skoða stöðuna hér. Eftirsóknarvert væri ef á þetta mikilvæga atriði reyndi hér. Það má ekki útiloka að Hæsti- réttur landsins hafi þrek og burði til að taka á því með sögu- legum hætti. Það skipti sköpum þegar rétturinn stóðst prófið þegar álitaefni um neyðarlög í sannkölluðu og einstæðu neyð- arástandi var lagt fyrir hann. Hæstiréttur Banda- ríkjanna er lifandi og virkur dómstóll} Sígilt álitaefni N ýlega bárust okkur þær fregnir að bandarísk stjórnvöld hefðu ástundað það síðustu vikur að brjóta stórkostlega á rétti flótta- manna sem leita skjóls í Banda- ríkjunum. Tók ríkisstjórn Donalds Trumps ákvörðun um að fangelsa flóttafólk vegna ólög- legrar komu til landsins en taka börn þeirra og flytja á aðra staði, fjarri foreldrum, á víð og dreif um ríkin. Sögðu opinberar tölur fjölda barna sem aðskilin voru frá foreldrum sínum á þennan hátt vera um 2.300. Höfum við fengið fregnir af hörmulegum aðbúnaði, að börn séu geymd í flóttamannabúðum, í járnbúrum, leidd inn í íbúðir og þaðan út með hauspoka, börn séu vannærð, án flets til að sofa. Þetta eru raun- verulegar fréttir sem berast okkur frá vinaþjóð og samstarfsaðila í vestri. Þegar alþjóðasamfélagið vaknaði upp við það sem var að gerast var þessari framkvæmd mótmælt. Brást Donald Trump við með yfirlýsingu um að hætt yrði að aðskilja börn frá foreldrum sínum og urðu margir ósköp fegnir og töldu hættuna þá frá. Allt væri fallið í ljúfa löð og engin ástæða til að vera á varðbergi gagnvart þeim stórkostlegu mannréttindabrotum sem ástunduð eru í landi frelsisins, Bandaríkjunum. En er hættan liðin hjá? Svo virðist ekki vera því enn er óvíst hvernig fara á að því að sameina aftur þær fjöl- skyldur sem sundrað hefur verið og dreift um hin víðfeðmu Bandaríki. Fáar fregnir berast okkur innan úr fangaklef- um þar sem flóttafólki er enn haldið fyrir það eitt að gera sér vonir um betra líf fyrir sig og börn sín. Fréttir berast af foreldrum sem reyna að endurheimta börn sín án árangurs. Þannig virðast bandarísk stjórnvöld hafa að- skilið börn og foreldra án þess að gæta að því hvernig ætti að sameina þessar fjölskyldur að nýju eftir lausn foreldra úr prísundinni. Hvernig fara foreldrar að því að finna börnin sín á víð og dreif um Bandaríkin en einnig hvernig gengur fólki á flótta að sanna uppruna barna sinna? Sautján ríki Bandaríkjanna hafa nú höfðað mál gegn þessari ákvörðun forsetans. Segja þau stjórnvöld enga áætlun hafa gert um það hvernig sameina eigi fjölskyldurnar. Þá hefur dómari í Kaliforníu gefið út að sameina beri all- ar fjölskyldur óskráðra innflytjenda innan þrjátíu daga en innan fjórtán daga séu börnin yngri en fimm ára. Virðist sem yfirlýsing Donalds Trumps frá lið- inni viku sé haldlítil á meðan ekki hefur verið tryggt að að- skilnaður gangi til baka. Alþjóðasamfélagið verður að hafa hátt í þessu máli. Þessi meðferð á fjölskyldum á flótta er svo yfirgengileg að það verður að bregðast við af fullri hörku svo engum dyljist að þessi framkvæmd sé ekki bara í trássi við alþjóðlegar skuldbindingar heldur alla almenna vitund um meðferð á manneskjum. Helga Vala Helgadóttir Pistill Er hættan liðin hjá? Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. Helgavala@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Veronika Steinunn Magnúsd. veronika@mbl.is Samkvæmt nýjum tölum frá Hag- stofu hóf 261 innflytjandi nám í framhaldsskólum hérlendis árið 2012. Aðeins 29% þeirra útskrif- uðust fjórum árum síðar. Lágt brautskráningarhlutfall innflytjenda er áhyggjuefni að sögn Arnórs Guðmundssonar, forstjóra Menntamálastofnunar. Hann segir að mikilvægt sé að bæta kennslu í íslensku sem öðru tungumáli á grunnskólastigi. Þá eigi margir inn- flytjendur erfitt uppdráttar í grunnskóla og svo áfram í fram- haldsskóla, því þeir hafi ekki náð fullum tökum á íslenskunni. „Við erum meðvituð um þetta og höfum vakið athygli á þessu og vonast til að farið sé í aðgerðir í þessum mál- um.“ „Það er verkefni í gangi með Árborg, Hafnarfirði og Reykjanesi varðandi stöðumat fyrir innflytj- endur þegar þeir koma. Margir eru vel að sér í hinum ýmsu fögum og það er mikilvægt að greina þeirra styrkleika og hvernig hægt sé að styðja þá áfram,“ segir Arnór. Að- spurður hvers vegna Reykjavík- urborg sé ekki meðtalin í þeim áformum segir Arnór að samráð hafi verið við Reykjavíkurborg um aðild að verkefninu en að ákvörðun af hálfu borgarinnar liggi ekki fyrir. Í febrúar vann Menntamála- stofnun greiningu á þörfum nem- enda með íslensku sem annað tungumál. „Við áttum í framhaldi af greiningunni fund með mennta- málaráðuneytinu og vorum beðin að skoða betur hvað þyrfti að gera til að endurskoða þetta,“ segir Arnór. Hann bætir við að nú sé unnið að því hvað ætti að gera varðandi nám- skrá fyrir erlenda nemendur. „Það er eitthvað sem á eftir að útfæra. Við sjáum þessa þörf og við munum þurfa að sinna henni hvað okkur varðar, varðandi námsmat, náms- gögn og fleira.“ Þá eru mismunandi úrræði meðal grunnskólanna varðandi ís- lenskukennslu sem annað tungu- mál, að sögn Arnórs. „Það er með mismunandi hætti hvort það sé stuðningur í bekkjum eða utan og hversu vel menntað starfsfólk skól- arnir hafa á þessu sviði. Það hafa verið veittir styrkir til að koma til móts við erlenda nemendur. Svo eru mismunandi úrræði hjá skól- unum,“ segir Arnór. Hulda Karen Daníelsdóttir, sérfræðingur í íslensku sem öðru tungumáli, vann greininguna sem Menntamálastofnun gaf út í febrúar ásamt Huldu Skogland. Hún segir aðalatriðið vera að efla íslensku- kennslu og starfsþróun kennara: „Mér finnst brýnast að bæði kenn- aranámið og starfsþróun kennara í þessum málum verði aukin á öllum skólastigum.“ Einnig segir Hulda að fjár- magn vanti til þess að hægt sé að gefa út námsefni handa nemendum sem hafa íslensku sem annað tungumál. „Við þurfum að styrkja marga þætti því þessum nemendum hefur fjölgað gífurlega. Haustið 2017 sóttu 108 grunn- skólar í sveitarfélögum öðrum en Reykjavík um framlög ætluð kennslu fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál frá Jöfnunarsjóði íslenskra sveitarfélaga. Sjóðurinn gerir ekki kröfu um að ís- lenskukunnátta nemend- anna sé metin né um að sýnt sé fram á að framlögin séu beinlínis notuð til kennslu nemendanna, að því er fram kemur í greiningu Menntamálastofn- unar. Brotthvarf innflytj- enda áhyggjuefni Menntamálastofnun gaf út greiningu í febrúar um stöðu nemenda með íslensku sem annað tungumál. Þar segir að niðurstöður PISA-kannana und- anfarin ár bendi eindregið til að lesskilningi barna á Íslandi með íslensku sem annað tungumál sé ábótavant og fari versnandi. Á sama tíma hefur þeim hópi nemenda fjölgað um 275% á árunum 2000-2015, að því er fram kemur í greiningunni. Þá kemur einnig fram að Íslensk málnefnd hafi ítrekað bent á nauðsyn þess að útbúin verði próf til að meta kunnáttu þessara nem- enda í íslensku og færni þeirra í öllum þáttum málsins. Tillögur að úr- bótum eru m.a. að setja á fót sérfræð- ingateymi á vettvangi ríkisstofnunar sem sæi um mála- flokkinn. Þörf á kennslu MENNTAMÁLASTOFNUN Arnór Guðmundsson Morgunblaðið/Eggert Útskrift Framhaldsskólanemendur útskrifuðust fyrir skemmstu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.