Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 58
58 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018 ✝ Elín Stef-ánsdóttir fæddist á Hallgils- stöðum í Fnjóska- dal 26. ágúst 1935. Hún lést á dvalar- heimilinu Horn- brekku í Ólafsfirði 15. júní 2018. For- eldrar Elínar voru Stefán Tryggva- son, f. 18.6. 1891, d 31.10. 1971, og Hólmfríður Sigurðardóttir, f. 12.6. 1896, d. 25.2. 1990, bænd- ur á Hallgilsstöðum. Systkini Elínar: Áslaug, f. 1922, d. 2006, Ásdís, f. 1923, Hermann Helgi, f. 1926, d. 1955, Sigurður, f. 1928, d. 2006, Kristbjörg, f. 1932, d. 1992, og Tryggvi, f. 1936, d. 2016. Fyrrverandi eiginmaður El- ínar var Sigtryggur Valdem- arsson, f. 1927, d. 2014. Börn Elínar og Sigtryggs eru: 1) hans er Guðrún Hrönn Guð- mundsdóttir, f. 8.4. 1988. Börn þeirra eru Sveinbjörn Sölvi, f. 2014, og Guðmundur Leó, f. 2016. Sigtryggur, f. 7.8. 1993, maki Thelma Dögg Hallsdóttir, f. 10.11. 1997, Elísabet Rósa, f. 8.6. 1998, maki Níels Þórodds- son, f. 19.5. 1993. Elín ólst upp á Hallgilsstöð- um í Fnjóskadal í stórum og samheldnum systkinahópi. Hún fór í Húsmæðraskólann á Löngumýri og lærði síðan til ljósmóður í Reykjavík. Elín bjó á Akureyri frá árinu 1959 og vann þar sem ljósmóðir, við umönnun á vistheimilinu Sól- borg og síðar m.a. við heima- hjúkrun og á Kristnesspítala. Elín var listhneigð og sótti fjölda námskeiða í list og hand- verki, og sinnti hún því áhuga- máli alla tíð. Síðustu árin dvaldi Elín á Hornbrekku í Ólafsfirði. Útförin fer fram frá Akur- eyrarkirkju í dag, 28. júní 2018, kl. 13.30. Jarðsett verður í Hálskirkjugarði í Fnjóskadal. Svanhildur, f. 9.10. 1957, gift Frosta Meldal, f. 10.2. 1955. Börn þeirra eru Tryggvi Már, f. 24.11. 1977, kona hans er Silley Hrönn Ásgeirsdótt- ir, f. 1.5. 1978, Sig- rún Ella, f. 10.6. 1981, og Fanný Rut, f. 17.7. 1984, henn- ar maður er Hjalti Þór Hreinsson, f. 1.3. 1984. Börn þeirra eru Rúnar Frosti, f. 2009, Arnar Hreinn, f. 2011, og Auður Elín, f. 2016. 2) Gunn- ar, f. 18.12. 1959, giftur Rósu Ingibjörgu Sveinbjörnsdóttur, f. 18.5. 1962. Börn þeirra eru Halldóra Smáradóttir, f. 18.4. 1982, hennar maki er Sandor Matus, börn Viktor Smári Elm- arsson, f. 2002, Aron Gunnar, f. 2010, og Sara Sif, f. 2013. Frið- rik Smárason, f. 6.6. 1984, maki Elsku Ella amma. Það er erfitt að kveðja þig en eftir lifa margar skemmtilegar og góðar minningar. Þú varst alltaf svo góð við mig og fannst á þér í hvert skipti ef eitthvað var að. Alveg ótrúlegt hversu oft þú hringdir og spurðir hvort það væri ekki allt í góðu ef eitthvað bjátaði á. Þú varst mikill spjall- ari og töluðum við oft í símann í lengri tíma í senn. Minningar af þér þeytast um bæinn á rauðum Subary Justy munu alltaf vera mér ofarlega í huga. Minningin þegar við Telma fór- um með þér á Siglufjörð og fengum okkur pítsu núna í vor mun alltaf vera mér ofarlega í huga og þykir okkur mjög vænt um að hafa eytt þessum degi með þér. Þinn Sigtryggur. Elsku Ella amma. Mikið á ég eftir að sakna þín. Þegar ég kom úr æfingaferð- inni og mamma sagði mér að þú værir dáin fór ég að hugsa margt sem við höfðum spjallað saman og það sem þú hafðir frætt mig um. Við höfum sama áhugamálið, fuglana. Þú kennd- ir mér svo margt um þá, en ég man þegar við fórum með Rósu ömmu og Gunna afa í Mývatns- sveit og á fuglasafnið en þegar ég vissi meira um eina and- artegundina fórst þú bara fram og varðst alveg orðlaus, en á eftir varst þú svo stolt af mér. Já, þú gafst þér alltaf tíma til að hlusta. Ég á eftir að hugsa oft til þín og góðar minningar um þig ylja mér um hjartaræt- ur. Góða ferð í sumarlandið. Þinn, Viktor Smári. Elsku besta Ella amma. Nú hefur þú kvatt okkur í bili, við vissum að þetta væri yfirvof- andi en mikið er sárt að þurfa að kveðja þig. Það var gott að eiga þig að. Þú varst einstök kona, okkur þótti svo innilega vænt um þig, þú varst hrein- skilin en alltaf svo hlý og góð. Þú varst sannkölluð lista- kona og eigum við systkinin öll fallega listmuni eftir þig úr gleri, tré, postulíni, mósaík eða máluð verk sem varðveita minninguna um fallega ömmu. Þú hafðir ofsalega gaman af náttúrunni, þá sérstaklega lit- ríkum blómum og fallegum fuglum. Þú hafðir mikið dálæti á litum, það var alls ekki sama hvernig liturinn var. Fjólublár var þinn uppáhalds en hann mátti ekki vera of bleikur né of blár, alls ekki of dökkur og heldur ekki of bjartur. Svartur var ekki litur að þínu skapi og þú gekkst aldrei í svörtum föt- um, sem okkur þótti skemmti- lega merkilegt. Þú reyndir margoft að fræða okkur um fugla með misgóðum árangri þangað til þú eignaðist lang- ömmustrákinn þinn hann Vikt- or Smára sem hafði mikinn áhuga á öllum fuglum. Þú varst himinlifandi að nú væri kominn einhver með sama áhugamál og þú á fuglum. Þessu áhugamáli deilduð þið og áttuð ykkar ein- staka vinasamband. Það var alltaf gaman að heimsækja þig í Skarðshlíðina og Skessugilið og alltaf fengum við gott að borða hjá þér; grautur, læri eða frægu fiskilummurnar eru of- arlega í minningunni. Elsku amma okkar, þú varst næm á tilfinningar annarra og fannst á þér ef eitthvað var að og ráð- lagðir vel, stuttorð en skýr- mælt. Við munum sakna þín sárt en eftir standa hlýjar minningar um fallega konu. Þínir demantar, Halldóra, Friðrik, Sigtryggur og Elísabet. Hún Ella amma var einstök. Hún var náttúrubarn og við áttum margar góðar stundir saman úti í náttúrunni í Fnjóskadal þar sem hún rifjaði upp æsku sína og kannaði þekkingu mína á íslenskri flóru. Hún elskaði allt sem grær, sér- staklega fallegar blómplöntur, og hafði mikið dálæti á fuglum. Amma kunni margar þulur og sögur og sagði þær eftir minni, t.d. söguna um Loðinbarða, Hlina kóngsson og Laufeyju og Líneik. Amma var mjög skap- andi, og eftir hana liggur mikið af fallegu handverki, málverk- um og teikningum, mósaík, vefnaði, saumi og útsaumi. Hún framleiddi líka um tíma kerti sem voru innblásin af íslenskri náttúru og fornum rúnum. Amma var mikill talsmaður menntunar og stolt af barna- börnunum að fara í framhalds- nám. Hún var víðlesin sjálf og velti fyrir sér heimspeki, sögu og andlegum málefnum. Hún átti til að spyrja okkur út úr og fannst snjóa ansi fljótt yfir námsefnið hjá okkur. Amma lærði til ljósmóður og starfaði við það í áraraðir. Hún leit á sig sem rauðsokku og jafnrétti var henni mikið hita- mál. Þrátt fyrir það átti hún til að dekra við karlpeninginn í ættinni og stundum þótti kven- leggnum nóg um. Amma hafði ákveðnar skoðanir og hafði gaman af því að rökræða. Hún var ófeimin við að segja skoðun sína, stundum jafnvel á óviðeig- andi stöðum eða í óþökk ann- arra. Þegar við fórum saman á myndlistarsýningar fannst mér nóg um hve óhikað hún gagn- rýndi verkin hátt og skýrt. Svona var amma, alltaf pínu óþekk og hagaði lífi sínu eins og henni sýndist. Henni leiddist að eldast og móaðist lengi við að þiggja afslátt eldri borgara, átti til að senda saklausu af- greiðslufólki illt auga væri hún spurð um aldur. Það skipti ömmu miklu máli að vera vel tilhöfð og hún var alltaf með á nótunum þegar kom að tísk- unni. Hún hafði ákveðnar skoð- anir á stíl og litum og vildi um- fram allt klæðast litríkum flíkum, einfaldar svartar flíkur voru henni ekki að skapi. Það var ömmu mjög erfitt þegar líkaminn gaf eftir og sérstak- lega þegar sjóninni hrakaði og hún gat ekki lengur unnið í höndunum. Amma sagði mér fyrir rúmu ári að hún óttaðist ekki dauðann, hlakkaði eigin- lega til að hitta systkini sín og foreldra aftur, en sagði mér jafnframt að ég skyldi nú ekk- ert vera hissa ef hún léti af sér vita seinna meir. Svo amma ætlar bara að halda áfram að vera pínu óþekk í eftirlífinu. Ég mun minnast þín, amma mín, þegar ég hugsa um potta- plönturnar sem þú gafst mér, horfi á handverkið þitt eða hlusta á fallegan fuglasöng. Takk fyrir samfylgdina og njóttu þín í sumarlandinu. Sigrún Ella Meldal. Ella móðursystir mín var næstyngst í systkinahópnum á Hallgilsstöðum í Fnjóskadal. Öll systkinin settust að í daln- um nema Ella og Kristbjörg sem bjó í Reykjavík. Þrátt fyrir að Ella hafi sest að á Akureyri var alltaf mikið og gott sam- band á milli hennar og móður minnar og fjölskyldnanna. Í þá tíð sem Ella starfaði sem ljós- móðir tók hún á móti yngri systur minni en í þá daga var algengt að konur fæddu í heimahúsi. Ella fór ekki troðnar slóðir í lífinu og segja má að á ákveðnum tímum hafi hennar leiðir verið nokkuð grýttar. Ella hafði sterkar skoðanir sem hún lá ekkert á, var strax á unga aldri orðin gagnrýnin á ýmis þjóðfélagsmál og sérstak- lega jafnréttismál. Ég var ekki að fullu vaxin úr grasi þegar ég hafði meðtekið frá henni nokkr- ar góðar og mikilvægar stað- reyndir um það misrétti sem víða birtist í tengslum við sam- skipti kynjanna og viðhorfi samfélagsins. Það var einmitt á tíma rauðsokkanna. Vorið 1982 tók Ella þátt í undirbúningi kvennaframboðsins á Akureyri en þá náðu konur góðri kosn- ingu eins og menn muna. Eftir nokkurra ára búsetu á Akur- eyri byggðu þau Sigtryggur sér stórt og fallegt hús í Kotár- gerði og þar sá ég smekkvísi Ellu birtast víða í smáu sem stóru. Síðar keypti hún sér sína eigin íbúð í Skessugili, taldi það við sitt hæfi að búa við götu með því heiti. Þar bjó hún vel um sig og hafði mikla ánægju af smá blóma- og runnagróðri sem hún kom sér upp við íbúð- ina. Henni get ég þakkað eina þyrnirós í mínu beði. Á síðari árum kom í ljós að í Ellu blundaði ágætis hagyrð- ingur þótt hún flíkaði því ekki og einnig var hún talsvert list- hneigð. Málaði og skapaði margt fallegt sem margir hafa fengið að njóta. Þessa litlu vísu gaf hún móður minni í níræð- isgjöf: Hjá þér frá því fyrst ég man fann ég elsku, traust og hlýju. Lifðu heil og hamingjan hylji árin níutíu. Ella var mjög handlagin og það fékk bróðir hennar eitt sinn að reyna skömmu eftir að hún hafði lokið sínu ljósmæðra- námi. Hann varð fyrir því óhappi að hlaupa á vír og sker- ast við efri vör. Svo vel vildi til að Ella var á staðnum, bróð- irinn var lagður upp á eldhús- bekkinn og sárið saumað hár- fínt saman. Síðustu árin bjó Ella á Horn- brekku í Ólafsfirði. Heilsan var orðin léleg, lífsgæðin lítil og ég veit að hún var sátt við það sem í vændum var. Eftir lifir minning um konu sem reyndi sitt til að breyta samfélaginu til hins betra. Svanhildi, Gunnari og fólkinu þeirra stóru sem smáu votta ég alla mína samúð. Sigrún Jónsdóttir. Elín Stefánsdóttir ✝ Matthildur ÁsaGuðbrandsdótt- ir fæddist á Hey- dalsá í Tungusveit í Strandasýslu 26. ágúst 1926. Hún lést 16. júní 2018 á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hólmavík. Foreldrar hennar voru Guðbrandur Björnsson, f. 14.5. 1889, d. 2.7. 1946, búfræðingur og útvegsbóndi á Heydalsá, og Ragnheiður Sigurey Guðmunds- dóttir, f. 24.8. 1894, d. 24.10. 1972, húsfreyja á Heydalsá. Systkini Matthildar eru: Guð- mundur, f. 26.11. 1915, d. 7.12. 1950, útvegsbóndi á Heydalsá, Björn Halldórs, f. 8.8. 1917, d. 7.12. 1950, útvegsbóndi á Hey- dalsá, Sigrún, f. 18.9. 1918, d. 18.5. 1978, húsmóðir í Reykja- vík, Sverrir, f. 26.3. 1921, d. Aðalsteinsson bóndi á Smá- hömrum, f. 12.8. 1908, d. 2.8. 1982, og kona hans Þórdís Benediktsdóttir, f. 4.2. 1902, d. 27.9. 1998. Synir Matthildar og Björns eru 1) Guðbrandur Björnsson, f. 31.12. 1953, bóndi á Smáhömr- um. 2) Karl Þór Björnsson, f. 7.11. 1956, bifreiðastjóri, kona hans er Helga Rut Halldórs- dóttir, f. 21.8. 1965. Dætur þeirra eru Þórdís, f. 3.12. 1991, Kolbrún Ýr, f. 1.11. 1999 og Inga Matthildur, f. 5.2. 2002. Matthildur gekk í barnaskól- ann að Heydalsá, þá lauk hún námi við framhaldsskólann í Reykjanesi og gekk síðar í Hús- mæðraskólann að Laugalandi í Eyjafirði. Matthildur og Björn hófu búskap á Smáhömrum árið 1953 í félagsbúi með foreldrum Björns, síðar tóku þau við búinu að fullu og bjuggu allar götur, síðar í félagsbúi með syni sínum Guðbrandi. Síðustu tvö árin dvaldist Matthildur á Heilbrigð- isstofnun Vesturlands á Hólma- vík. Útför Matthildar fer fram frá Hólmavíkurkirkju í dag, 28. júní 2018, klukkan 14. 22.7. 2012, bóndi á Klúku og versl- unarmaður, Torfi Þorkell, f. 22.3. 1923, d. 21.11. 2015, skólastjóri á Finnbogastöðum, Ásgeir, f. 24.11. 1924, d. 24.6. 1926, Vigdís, f. 24.5. 1929, d. 21.9. 2005, húsmóðir á Reyð- ará í Lóni, Aðal- björg, f. 10.11. 1930, d. 17.4. 1998, húsmóðir í Reykjavík, Bragi, f. 21.9. 1933, bóndi á Heydalsá, Sigurgeir, f. 13.5. 1936, d. 10.4. 1989, bóndi á Hey- dalsá. Hálfbróðir samfeðra er: Benedikt, f.8.2. 1914, d. 15.10. 1930. Matthildur giftist 15.5. 1954 Birni Hilmari Karlssyni bónda frá Smáhömrum í Tungusveit, f. 30.12. 1931, d. 18.12. 2015. For- eldrar hans voru Karl Júlíus Langri vegferð ömmu Möttu er nú lokið en hún spannaði tæplega 92 ár. Lengst af var amma heilsuhraust þrátt fyrir að minnið hafi aðeins verið orð- ið gloppótt síðustu árin. Það var alltaf dásamlegt að koma á Smáhamra til ömmu og afa, þau voru hjartahlý og öllum tekið opnum örmum. Það voru alltaf til kökur og kaffi hjá ömmu, hún passaði upp á að allir fengju nóg að borða og enginn færi svangur frá borði. Amma snerist um í eldhúsinu þar til hún fluttist á dvalar- heimilið á Hólmavík og var hún iðulega raulandi lagstúf eða flautandi þegar hún hrærði í pottunum. Okkur systrum var amma einstaklega góð og alltaf gott að koma í hlýjan faðminn henn- ar. Amma sagði okkur ætíð sögur frá því hún var lítil, kenndi okkur bænir, bakaði fyrir okkur pönnukökur og átti alltaf til brúnköku sem var í mestu uppáhaldi hjá okkur. Við gátum líka oft fengið hana til þess að spila fyrir okkur á org- elið og þá söng hún ávallt með. Við kveðjum ömmu með söknuði og minnumst hennar með virðingu og hlýhug. Við getum glaðst yfir öllum minn- ingunum og þeim góðu stund- um sem við áttum með ömmu allt fram á síðustu stundu. Nú er amma komin til afa og ef- laust farin að lesa fyrir hann einhverja góða bók eins og hún gerði svo oft þegar þau lögðu sig eftir hádegismatinn. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson) Hvíldu í friði, elsku amma okkar. Þórdís, Kolbrún Ýr og Inga Matthildur. Jæja Matta mín, nú er þessi jarðvist búin og þú komin í himnaríki til hans Bjössa. Ég var í mörg sumur í sveit á Smá- hömrum, fyrst hjá afa og ömmu en síðar hjá ykkur Bjössa, já þú varst sumarmóðir mín í mörg ár. Ein af mínum fyrstu minningum er þegar þú varst að baða mig í bala við eldhús- vaskinn. Fyrstu árin voru bara svona leikur og njóta sveitalífs- ins og sumarsins en þú pass- aðir alltaf upp á að ég gerði eitthvert gagn og kenndir mér þannig að vinna, gefa hænum og taka eggin, sækja beljurnar og síðast en ekki síst skilja mjólkina; ekki snúa of hægt og ekki of hratt sagðir þú þangað til stráksi skildi hvað hann var að gera. Annað mikilvægt að mér finnst var það að þú söngst eða raulaðir lagstúf við öll verk og hef ég tileinkað mér það líka því mér finnst það létta mér verkin, takk fyrir það Matta mín. Annan góðan ávana rek ég til þín en það er að tala við út- varpið og sjónvarpið og hlæja börnin mín stundum að mér þegar ég gleymi mér við þessa iðju. Þá verður mér hugsað til þín og man hvað mér fannst gaman þegar þú varst að horfa á íþróttir í sjónvarpinu og hvattir íþróttamenn og -konur til dáða. Eftir að ég varð full- orðinn reyndi ég að koma eins oft og ég gat að Smáhömrum, þá stóðst þú enn vaktina í eld- húsinu og gerðir svo að segja til síðasta dags. Þú vildir passa upp á að allir fengju nóg að borða. Það fór enginn svangur úr þínu eldhúsi og ef ég var einn á ferð varstu búin að ýta öllum skálum og diskum að mér því þér fannst ég ekki borða nóg. Ég held að þú hafir verið eina manneskjan í heiminum sem fannst ég vera grannur. Ég á eftir að sakna þess að sjá Möttu frænku á Smáhömrum, takk fyrir allt. Brandi, Kalla og fjölskyldu sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur og kveð með erindi úr lagstúf sem þú gætir hafað raulað fyrir fimmtíu árum: Ó, blessuð vertu, sumarsól, er sveipar gulli dal og hól og gyllir fjöllin himinhá og heiðarvötnin blá. Nú fossar, lækir, unnir, ár sér una við þitt gyllta hár, nú fellur heitur haddur þinn á hvíta jökulkinn. (Páll Ólafsson) Þinn frændi, Eiríkur. Matthildur Ása Guðbrandsdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja við- hengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.