Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018 BAKSVIÐ Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Ferðaskrifstofan Söguferðir undir- býr nú hópferð til Norður-Kóreu í haust. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ferðaskrifstofan býður upp á ferðir til einangraðasta ríkis heims en sambærileg ferð var farin árið 2015. Ráðgert er að ferðin taki rúm- ar tvær vikur og meðal þess sem sett hefur verið á dagskrá er akstur um sveitir og þorp landsins, heim- sóknir í skóla og kynning á höfuð- borg landsins, Pyongyang. Þorleifur Friðriksson hjá Sögu- ferðum stendur fyrir ferðinni en hann hefur áður sótt landið heim. Hann segir upplifun sína af Norður- Kóreu talsvert frábrugðna þeirri mynd sem íbúar vestrænna landa fá að sjá í fjölmiðlum. „Það kom kannski helst á óvart að sú mynd sem við höfðum ræktað með okkur með hjálp vestrænna fjölmiðla rím- aði ekki við það sem ég sá á ferðum mínum. Það var þó helst djúp ást og óskeikul trú íbúanna á leiðtogunum Kim Il Sung, Kim Jong Il og Kim Jong Un sem passaði við það sem maður hefur séð í fjölmiðlum. Þeir telja t.d. að Kim Il Sung sé enn á meðal vor,“ segir Þorleifur. Hræðsla með öllu óþörf Deilur Norður-Kóreu og Banda- ríkjanna voru mikið í umræðunni á síðasta ári, en hótanir leiðtoga land- anna höfðu gengið á víxl. Spurður hvort órói undanfarinna missera eigi að valda fólki sem hyggur á ferð til Norður-Kóreu áhyggjum kveður Þorleifur nei við. „Mín reynsla er sú að hræðsla er óþörf. Órökstuddur ótti er aldrei góður ferðafélagi. Hins vegar gildir í Norður-Kóreu, líkt og annars stað- ar, að manni ber að sýna heima- mönnum fulla virðingu og fara að þeim lögum og reglum sem gilda í samfélagi þeirra. Okkur þykir t.d. skrítið að það sé bannað að taka biblíu með í farangri sínum og sums staðar er helgi á líkneskjum Kim- feðganna svo mikil að bannað er að taka þar myndir. Eins er stranglega bannað að taka mynd af umferðar- lögreglu að störfum. Það má segja að þetta sé brosleg sérviska, en það þýðir víst ekki að deila við dóm- arann,“ segir Þorleifur. Farsímar leyfilegir en netlaust Spurður um upplifun sína á lífi hins venjulega íbúa í Norður-Kóreu segir Þorleifur að það sé ekki mjög frábrugðið því sem þekkist í vest- rænum löndum. Hann tekur þó fram að erfitt sé fyrir ferðamenn að greina það enda fái þeir ekki að sjá nema hluta mannlífsins. „Á morgn- ana eru íbúar Pyongyang vaktir með fallegum söng, eins konar þjóðvakn- ing, sem ómar um götur borgar- innar. Þar eru þeir hvattir til að halda til vinnu og leggja sitt af mörkum til hins sósíalíska sam- félags. Síðan halda þeir bara til vinnu eins og við Vesturlandabúar,“ segir Þorleifur, en eitt af því sem kom honum mjög á óvart var hversu margir íbúar Pyongyang áttu far- síma. Að sögn Þorleifs var ekki óal- gengt að sjá fólk ræðast við í far- síma á götum borgarinnar. Annað gilti þó um netnotkun, en íbúum Norður-Kóreu stendur ekki til boða að fara á netið. Ferðamenn eiga þó möguleika á að komast á netið að ákveðnum skilyrðum upp- fylltum. „Maður kemst ekki í wi-fi neins staðar, en ég fékk að fara inn í sérherbergi á hótelinu til að svara tölvupóstum. Þú getur hins vegar ekki undir nokkrum kringum- stæðum farið á vefsíður eins og Google eða Facebook,“ segir Þorleif- ur. Sat steinsnar frá Kim Jong-un Í síðustu heimsókn Þorleifs til Norður-Kóreu átti eini flokkur landsins, Verkamannaflokkurinn, sjötíu ára afmæli. Í tilefni af því var efnt til mikillar hersýningar og há- tíðahalda í Pyongyang þar sem öll helstu vopn landsins voru til sýnis. Þorleifi ásamt öðrum ferðalöngum var boðið að fylgjast með sjónar- spilinu úr stúku á besta stað, stein- snar frá leiðtoganum sjálfum, Kim Jong-un. „Þetta var sýning sem hófst seinni part dags og varði langt fram eftir kvöldi. Þetta minnti um margt á hersýningar Hitlers, ótrú- legur agi og skipulag auk þess sem hvert drápsvopnið á fætur öðru var dregið fram. Þessu lauk síðan með mikilli flugeldasýningu og „ljósa- sjói“. Að sumu leyti var maður ótrú- lega hrifinn þegar maður fylgdist með aganum og skipulaginu en óneitanlega fór um mann ákveðin óþægindatilfinning vegna allra þess- ara drápstóla,“ segir Þorleifur og bætir við að mikil tæknivæðing í vopnabúri Norður-Kóreu stingi í stúf við það sem sjá má í sveitum landsins. „Á sama tíma og þeir eyða peningum í eldflaugar, dróna og kjarnorkusprengjur þá töldum við alls um fimm dráttarvélar í sveitum landsins. Þar notar fólk þess í stað verkfæri sem eru sams konar þeim amboðum sem notuð voru á miðöld- um,“ segir Þorleifur sem telur það til marks um það að Kóreustríðið geisi enn. Ummerki þess megi sjá víða og það hafi komið einna greini- legast í ljós í heimsókn Þorleifs á munaðarleysingjaheimili í Pyon- gyang. Hann segir íbúa Norður- Kóreu lifa í stöðugum ótta við stríð. „Við heimsóttum munaðarleys- ingjahæli sem er hluti af því sem ég kalla betri stofuna enda partur af því sem heimamenn vildu að við sæj- um. Þar var allt mjög flott og vel fór um börnin. Maður sá samt að hegð- un barnanna er mörkuð af stríðsótta en eitt barnanna notaði t.d. eftirlík- ingu af vélbyssu sem leikfang,“ segir Þorleifur. Allir vildu fara í klippingu Þegar talið berst að þjónustu og verslunum í Norður-Kóreu segir Þorleifur að ferðamönnum sé ein- ungis hleypt í ákveðnar verslanir. „Þeir eru mjög viðkvæmir þegar kemur að verslunum en við fengum bara að fara í sérstakar verslanir þar sem eingöngu var hægt að greiða með dollurum. Það var hins vegar alveg í boði að kaupa sér skyndibita á götum úti,“ segir Þor- leifur. Að sögn Þorleifs voru leiðsögu- menn hópsins í Norður-Kóreu afar hjálpsamir og reyndu hvað þeir gátu að láta óskir ferðamanna verða að veruleika. Það reyndist honum hins vegar þrautin þyngri að komast í klippingu í landinu. „Það var eins og ég væri að biðja um gull, en það tókst á endanum. Það var gjörsam- lega frábært og innihélt um 90 mín- útna höfuðnudd. Karlarnir í hópnum urðu svo hrifnir að hver einasti þeirra fór í klippingu, sama hvort á þeim yxi hár eða ekki,“ segir Þorleif- ur. Ferðaplan haustsins í vinnslu. Undirbúningur fyrir ferð Sögu- ferða til Norður-Kóreu í haust er nú í fullum gangi en fyrstu drög að ferðaáætlun voru nýlega gerð opin- ber. Að því er fram kemur í drög- unum verður haldið af landi brott 3. október nk. en áætluð koma til Pek- ing í Kína er daginn eftir. Þar mun hópurinn dvelja í tvær nætur áður en haldið verður með lest til borg- arinnar Dandong sem er við landa- mæri Norður-Kóreu. Þaðan heldur hópurinn til Pyongyang um borð í lest en að sögn Þorleifs er lestar- ferðin ógleymanleg upplifun. „Eftir að hafa farið með hraðlest til Dand- ong eru viðbrigðin ótrúlega mikil. Í síðustu ferð minni fórum við um borð í hálfgerða mjólkurlest sem sil- aðist með okkur frá landamærunum og í gegnum Norður-Kóreu. Á leið- inni sáum við sveitir landsins auk daglegs amsturs fólks í þessu leynd- ardómsfulla landi. Þetta var alveg ótrúleg upplifun sem gleymist seint,“ segir Þorleifur. Að lestarferðinni lokinni tekur við 11 daga dagskrá í Norður-Kóreu þar sem ferðast verður vítt og breitt um landið. Meðal staða sem Þorleif- ur ráðgerir að heimsóttir verði eru helstu kennileiti ríkisins. Þar á með- al er viðkoma á svæðinu við Pan- munjon, sem er eini staðurinn á hlutlausa beltinu þar sem hermenn Suður- og Norður-Kóreu standa augliti til auglitis. Fimm stjörnu lúxushótel Þá vonast Þorleifur til þess að geta farið með hópinn til borg- arinnar Wonsan á austurströnd landsins, en þar er að finna eitt glæsilegasta skíðasvæði Asíu. Svæð- ið var reist fyrir fjórum árum, um svipað leyti og í ljós kom að vetrar- ólympíuleikarnir árið 2018 yrðu haldnir í Seúl í Suður-Kóreu. Að sögn Þorleifs er skíðasvæðið einkar glæsilegt. „Síðast þegar ég fór þarna var þetta nánast alveg nýtt. Þetta var alveg stórkostlegt fimm stjörnu lúxushótel af bestu gerð,“ segir Þorleifur, en ferð á vegum Söguferða til Norður-Kóreu kostar tæplega hálfa milljón króna. Þá er takmarkaður fjöldi sæta í boði en að sögn Þorleifs er mikill áhugi fyrir ferðinni. „Maður finnur fyrir mikilli forvitni og áhuga hjá fólki. Þetta er nokkuð sem allir ættu að kynna sér enda alveg einstök upplifun,“ segir hann. Halda til N-Kóreu á nýjan leik  Söguferðir standa fyrir ferð til Norður-Kóreu nú í haust  Upplifun sem er frábrugðin öllu öðru Leikvöllur Börn að leik á munaðarleysingjahæli sem Þorleifur heimsótti í ferðinni. Sveit Þorleifur ásamt íbúa Norður-Kóreu. Í bakgrunni má sjá akur þar sem ræktun fer fram. Ljósmynd/aðsend Pyongyang Yfirlitsmynd yfir höfuðborg Norður-Kóreu. Talið er að ríflega þrjár milljónir manna búi í borginni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.