Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018 Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is „Það getur náttúrlega bara reynt á sálartetrið ef fólk hefur einhverjar væntingar gagnvart sumrinu sem bresta síðan.“ Þetta segir Kristján Helgi Hjartarson sál- fræðingur sem er að sérhæfa sig í þunglyndi og kvíðaröskunum. Rannsóknir hafa sýnt fram á sterk tengsl líð- anar og dags- birtu sem koma fram t.d. í skammdegisþunglyndi sem er algeng röskun á Íslandi. Skammdegið gæti raskað líkamsklukkunni sem hefur áhrif á boðefnaflutning í líkamanum. Kristján segir að rannsóknir bendi til þess veðrið eigi ekki endi- lega hlut í skammdegisþunglyndi en segir að það megi hugsa sér að það orsakist af samspili veðurfars og dagsbirtu. Aðspurður hvort veðurfarið gæti haft slæm áhrif á líðan fólks, segir Kristján: „Veðurfarið sem slíkt hefur ekki komið út úr rann- sóknum sem sterkur áhrifaþáttur á líðan fólks, þó að vissulega sé dimmara úti þegar glittir ekki í sól- ina. Með veðurfarið mætti frekar huga að sálrænum þáttum en líf- fræðilegum. En út frá sálrænum vinkli mætti hugsa sér að ef vænt- ingar gagnvart sumrinu stóðust ekki, ef mótlætisþol og seigla fólks er lítil gæti það valdið vanlíðan að hlutirnir séu ekki eins og þeir eigi að sér að vera.“ Hann segir að væntingabrest- ur gæti orðið og valdið aukinni van- líðan, sérstaklega hjá þeim sem eru þunglyndir fyrir. Kristján hefur hjálpað fólki með skammdegisþunglyndi og segir að færri leiti sér hjálpar í þess kon- ar veikindum þegar líða fer að vori. „Þá taka líka einfaldari tímar við eftir hátíðarnar um jólin og ára- mót.“ Margir grípa til þess ráðs að skreppa í sólarlandaferð og hafa Ís- lendingar verið ferðaglaðir þetta sumarið, að sögn Tómasar J. Gests- sonar, framkvæmdastjóra Heims- ferða. „Það hefur verið mjög góð sala nú í maí og júní og hefur veðr- ið átt stóran þátt í því. Ferðagleði Íslendinga hefur aukist á undan- förnum árum eftir að hagur fólks vænkaðist. Auðvitað getur fólk ferðast innanlands austur eða vest- ur en Íslendingar sækja meira í út- lönd samkvæmt okkar mati á stöð- unni. Eftirspurnin var meiri en maður bjóst við.“ Þá segir Tómas að fólk sé allt- af að vonast eftir betra veðri. „Í fyrra og hittifyrra var líka frekar vætusamt á suðvesturhorninu.“ Útlit er fyrir áframhaldandi rigningu alla næstu viku á höfuð- borgarsvæðinu en aðra sögu er að segja á Austurlandi. Veðurstofan spáir 21 stigs hita á Egilsstöðum á föstudag og 22 stigum þar á mánu- dag. Flúið til sólarlanda á rigningarsumri  Brostnar væntingar til sumarsins gætu haft neikvæð áhrif á líðan fólks  Óljóst hvort veðurfar á þátt í skammdegisþunglyndi  Fleiri Íslendingar sóttu í sólarlandaferðir í maí og júní en í fyrra Morgunblaðið/Brynjar Gauti Rigning Mikið hefur rignt á höfuðborgarsvæðinu það sem af er sumri Kristján Helgi Hjartarson Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Úrskurður rektors Karólínsku stofnunarinnar, þar sem Tómas Guðbjartsson prófessor er gerður ábyrgur fyrir vísindalegu misferli vegna greinar sem hann ásamt fleirum skrifaði og birtist í vísindatímaritinu Lancet árið 2011, kemur Vilhjálmi Ara Arasyni, lækni ekki á óvart. „Það er margt mjög slæmt sem tengist plast- barkamálinu og mér finnst ábyrgð Háskóla Íslands (HÍ) vera óljós. Að mínu mati þyrfti utankomandi nefnd að skoða hlut HÍ í málinu,“ segir Vil- hjálmur Ari. Hann segir að rætt hafi verið um það á sínum tíma að setja á fót þingnefnd til þess að skoða aðkomu HÍ að plastbarkamálinu en ekkert hafi orðið úr því. Nefnd sem Landspítalinn skipaði hafi skilað sínu áliti en það hafi ekki náð til há- skólans. „Álit rektors HÍ um að það væru ekki nógu alvarlegir brestir í málinu til þess að það hefði sérstakar afleiðingar er að mínu mati enn óljóst,“ segir Vilhjálmur Ari sem telur að skoða þurfi ábyrgð HÍ á afdrifaríku rannsóknarþingi sem haldið var árið 2012. „Á þinginu voru fyrstu niðurstöður tengdar plastbarkaaðgerð kynntar. Á þeim tíma var ákveðinn vafi uppi í kringum aðgerðina en á þessu þingi komu aðilar máls saman og luku lofsorði á aðgerðina sem hefði tekist tiltölulega vel. Sem vísindamanni finnst mér það mjög óþægileg staða fyrir háskólann að vita ekki hver ábyrgð HÍ í málinu sé,“ segir Vilhjálmur Ari. Varðandi stöðu Tómasar Guðbjartssonar eft- ir úrskurð rektors Karólínska segir Vilhjálmur Ari hann ekki skipta máli hvað varði stöðu hans sem læknis. „Hann getur starfað áfram sem góður skurð- læknir. En það koma í svona málum upp sið- ferðisspurningar sem snúa að ríkinu að tryggja rétt sjúklinga gagnvart vísindalegu misferli.“ Háskólinn þarf að taka afstöðu Vilhjálmur Ari segir að reglan sé yfirleitt sú að ef menn séu fundnir sekir um vísindamisferli þá sé það alvarlegt mál hvað varðar vísinda- þátttöku og frekari aðkomu að vísindum. Einn- ig hafi það alvarlegar afleiðingar fyrir trúverð- ugleika viðkomandi og eftir atvikum stöðu hans sem prófessors í samfélaginu. HÍ þarf að álykta um það hvort frekari þátttaka Tómasar í vís- indarannsóknum sé í lagi. Það sé spurning hvort háskólinn sjálfur álykti um það eða óhlut- dræg nefnd. „Það eru víða um heim mörg dæmi um vís- indalegt misferli en ég veit ekki til að álíka mál hafi komið upp á Íslandi áður. Trúverðugleiki háskólans og læknadeildar er í húfi og það yrði mikið áfall ef háskólinn gerði ekki alveg hreint fyrir sínum dyrum varðandi þá sem ráðnir eru við læknadeildina og háskólann,“ segir Vil- hjálmur Ari. „Málið er erfitt fyrir alla aðila en það er já- kvætt að nú sé búið að viðurkenna að siðferði- lega hafi rangt verið staðið að málum. Það er í þágu sjúklinga að bragarbót skuli gerð á slíku misferli. Það er svo spurning hvort lögregla eða saksóknari telji ástæðu til þess að taka málið upp á grundvelli nýrra upplýsinga þar sem málið yrði skoðað út frá því hvort brotið hefði verið á rétti sjúklinga,“ segir Vilhjálmur Ari og bætir við að það megi leiða að því líkum að vegna niðurstöðunnar sem kynnt var á rann- sóknarþingi HÍ þá hafi fleiri plastbarkaaðgerð- ir verið framkvæmdar í heiminum. Telur ábyrgð Háskóla Íslands óljósa Morgunblaðið/Ómar HÍ Rannsóknarþing árið 2012 kann að hafa ýtt á að fleiri plastbarkaaðgerðir voru gerðar.  Afdrifaríkt rannsóknarþing HÍ um plastbarkaígræðslu  Siðferðisspurningar um rétt sjúklinga gagnvart vísindalegu misferli  Mögulegt að lögregla og saksóknari sjái ástæðu til að skoða málið Vilhjálmur Ari Arason Ekki er hægt að halda því fram að þurrkur hrjái bændur og búalið þetta sumarið og eru flestir reyndar sammála um að nóg sé komið af vætutíð. Votviðrið hefur þó lítil sem engin áhrif innan- dyra og þess vegna þarf enn að væta upp í gervi- grasinu á fótboltavöllum knattspyrnuhallanna. Af þeim sökum stóðu menn í því í gær að bleyta upp í grassverðinum í Kórnum í Kópa- vogi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gervigrasið það eina sem þarf að vökva Fótboltinn gengur sinn vanagang hér heima þótt þátttökunni á HM sé lokið Á Íslandi starfa um 2% vinnandi fólks á sviði íþrótta. Hvergi í Evrópu er hlutfallið jafn hátt. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Ís- lands. Stofnunin bendir á að af þeim 10 löndum þar sem íþróttageirinn er hlutfallslega stærstur eigi fimm lönd sæti í heimsmeistarakeppninni í fót- bolta. Það eru, ásamt Íslandi, Sví- þjóð, Bretland, Spánn, Danmörk og Portúgal. Króatía, sem lagði landslið Íslands á mótinu í fyrradag, er með fimmta lægsta hlutfallið af Evrópu- löndunum. Hagstofan bendir einnig á að störfum í íþróttageiranum hafi fjölg- að í Evrópu frá árinu 2011. Mest hafi fjölgað í Slóvakíu, Ungverjalandi, Portúgal og í Eistlandi þar sem ár- legur vöxtur fór yfir 10%. Á Íslandi hefur störfum á sviði íþrótta ekki fjölgað meira en á vinnumarkaði almennt og hlutfallið því haldist stöðugt við 2%. Hlutfall karla er hærra í þessum geira, eða 2,2% en 1,9% vinnandi kvenna starfa á sviði íþrótta. Íþróttageir- inn hvergi stærri  2% Íslendinga starfa á sviði íþrótta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.