Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 51
vissulega áhuga á þeim. IKEA hugs- ar til dæmis mikið um þetta og þegar ég vinn með þeim er þessi hugsun í forgrunni, enda er það risastórt fyr- irtæki. Í mínu fyrirtæki leyfi ég mér að búa til mínar eigin fantasíur með minni hönnun og mínum klikkaða heimi. Við leggjum meiri áherslu á að leyfa fólki að dreyma og hafa óvenju- lega hluti inni á heimilinu. En auðvit- að er ég meðvitaður um hvað er að gerast í heiminum,“ segir hann. Í fyrra starfaði Dixon með IKEA og bjó til mublu sem heitir DEL- AKTIG. Um er að ræða bekk sem hægt er að raða sama á mismunandi hátt og mun samstarfið halda áfram með aðeins öðruvísi áherslu. Við snúum okkur að öðru. Herra Dixon hefur ekki farið varhluta af því að hönnun hans er kóperuð. Hægt er að kaupa hana á vefsíðum beint frá Kína fyrir slikk. Þegar ég spyr hann hvernig tilfinning það sé segist hann upplifa allan tilfinningaskalann. „Ég verð glaður, ég verð reiður, ég verð niðurdreginn og allt þar á milli. En þetta fær mig til að hugsa. Hvernig get ég gert betur þannig að þetta gerist síður,“ segir hann og ját- ar að Melt-ljósið sé hannað með það fyrir augum að það sé erfitt að gera eftirlíkingu af því. Hann segir þó að allt sé hægt og framleiðendur í Kína eigi pottþétt eftir að gera eftirlíkingu af því. Við ræðum um hvað hægt sé að gera til að sporna við eftirlík- ingum og að fólki finnist það í lagi að kaupa eftirlíkingar frægra hönnuða. Dixon segir að það sé mikilvægt að skapa umræðu um þessi mál, fræða fólk og fá það til að hugsa. Fólk þurfi að vera meðvitað um að það sé að kaupa vöru sem tapar ekki endur- söluverði sínu, en gervihönnun endist í flestum tilfellum skemur. Hvað viltu segja við þá sem finnst í lagi að kaupa eftirlíkingar? „Berið virðingu fyrir upprunalegri hönnun og ekki gleyma því að upp- runaleg hönnun er fjárfesting og hægt að selja hana aftur.“ Frá því Dixon kom fram á sjónar- sviðið hef ég fylgst með honum og fundist hönnun hans framúrskarandi á margan hátt. Ég verð því að fá að vita aðeins meira um hann sjálfan þótt það sé hægt að tala endalaust um heimili og hönnun. Þegar ég spyr hann út í lífsstíl sinn fer hann að hlæja. „Ég lifi eins og sígauni. Ég ferðast mikið um heiminn og oft bý ég í ferðatösku. Heimili mitt er glund- roðakennt á köflum. Það er sam- ansafn af alls konar hlutum sem er blandað saman á kaótískan hátt. Þetta er svona eins og með skósmið- inn sem gengur í ónýtum skóm. Heimili mitt er svolítið þannig,“ segir hann og hlær. Aðspurður hvort hann upplifi mik- ið stress í dagsins önn segist hann ekki gera það. „Ég lifi algeru forréttindalífi. Ég starfa við mitt helsta áhugamál, ferðast um heiminn, gisti á lúxushót- elum og tala endalaust um sjálfan mig. Fólk sem lifir mjög stressuðu lífi borgar fólki til að hlusta á sig og það geri ég auðvitað,“ segir hann og hlær. Hvað gerir þig hamingjusaman? „Ný ævintýri. Að vera hér á Ís- landi gerir mig til dæmis mjög ham- ingjusaman. Ég hef séð margt sér- stakt hér og hef fengið tækifæri til að skoða annað landslag en ég er vanur. Það færir mér mikinn innblástur og gerir líf mitt gott. Mér finnst leiðinlegt þegar ég spurður um uppáhaldshluti því ég vil alltaf prófa eitthvað nýtt, upplifa eitt- hvað nýtt og fá innblástur. Að koma til Íslands er mikil upplifun. Hér er ný lykt, nýtt bragð og nýtt landslag,“ segir hann. „Ég var byrjaður að endurtaka mig og mig langaði að einbeita mér að hönnuninni.“ Lífsstíll fólks er að breytast. Fólk sækir í minna húsnæði og vill frekar njóta lífsins meira. Ég spyr Dixon hvort hann taki mið af þessu í hönn- un sinni. „Ég hanna 50% fyrir heimili og 50% fyrir fyrirtæki eins og bari og veitingahús. Stundum hugsa ég um það hvernig lífi fólk lifir en við erum ekki það stórt fyrirtæki að það skipti máli. Við erum ekki að reyna að leysa framtíðarvandamál fólks þótt ég hafi Glæsilegt Hér má sjá Melt ljósið í gylltu. Lumex selur vörur Tom Dixon á Íslandi. 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018 Tr ú l o f u n a r h r i n g i r G i f t i n ga r h r i n g i r D eman t s s k a r tg r i p i r Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is 14 kt. gull með demant. Verð: 130.384,- 14 kt. gull með demöntum, miðju- steinn 0,50 ct. Verð: 626.121,- 14 kt. gull með demöntum, miðju- steinn 0,30 ct. Verð: 298.757,- 14 kt. hvítagull með demöntum, miðjusteinn 0,30 ct. Verð: 437.577,- 14 kt. rósagull með demöntum. Verð: 337.847,- 14 kt. gull með demöntum. Verð: 298.386,- 14 kt. rauðagull og hvítagull með demöntum. Verð: 354.010,- 14 kt. hvítagull með demöntum, miðjusteinn 0,20 ct. Verð: 315.559,- 14 kt. gull með demöntum. Verð: 251.716,- 14 kt. gull með demöntum Verð: 150.909,- 14 kt. gull með 0,25 ct demant. Verð: 204.266,- 14 kt. gull með demöntum. Verð: 239.181,- Gullsmiðir Sérfræðingar í trúlofunar og giftingarhringum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.