Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 61
MINNINGAR 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018 Elsku amma mín, takk fyrir allar þær stundir sem ég átti með þér og allt sem þú hefur kennt mér öll þessi ár. Ég er svo þakklát fyrir að hafa þekkt þig og fyrir að hafa átt þig að. Ég hefði ekki getað ímyndað mér betri ömmu en þig. Þú varst yndisleg manneskja og ég leit mikið upp til þín. Ég sakna þín og mun alltaf elska þig. Við höfði lútum í sorg og harmi og hrygg við strjúkum burt tárin af hvarmi. Guðbjörg Erla Haraldsdóttir ✝ Guðbjörg ErlaHaraldsdóttir (Erla) fæddist 21. júlí 1931. Hún lést 5. júní 2018. Útför Guðbjargar Erlu fór fram 13. júní 2018. Nú stórt er skarð í líf okkar sorfið því fegursta blómið er frá okkur horfið. Með ástúð og kærleik þú allt að þér vafð- ir og ætíð tíma fyrir okkur þú hafðir þótt móðuna miklu þú farin sért yfir þá alltaf í huga okkar myndin þín lifir. Við kveðjum þig, amma, með söknuð í hjarta, en minning um faðmlag og brosið þitt bjarta. Allar liðnar stundir um þig okkur dreymi og algóður Guð á himnum þig geymi. (Sigfríður Sigurjónsdóttir) Jóhanna Rós Hansdóttir. ✝ Kristín Sig-urjóna Har- aldsdóttir fæddist í Reykjavík 29. októ- ber 1938. Hún lést á Hjúkrunarheimil- inu Skógarbæ 19. júní 2018. Foreldrar henn- ar voru Margrét Sigurjónsdóttir, f. 27. mars 1916, d. 29. nóvember 1995, og Haraldur Ögmundsson, f. 3. ágúst 1914, d. 26. júní 1987. Systkini Kristínar eru Reynir, f. 3. júní 1942, Hrefna, f. 14. júlí 1946, og Svava, f. 17. maí 1959. Kristín giftist 29. mars 1958 Stefáni Lárusi Árnasyni múr- ara, f. 27. júní 1935, d. 22. nóv- ember 2007. Kristín og Stefán eignuðust fimm dætur. Þær eru: 1) Stella Kolbrún, f. 12.12. 1955, gift Stef- áni Valdimarssyni, þau eiga þrjú börn og tvö barnabörn. 2) Sigrún Margrét, f. 9.2. 1958, hún á tvö börn. 3) Erla Dagný, f. 17.5. 1959, hún á tvær dætur og tvö barnabörn. 4) Helga, f. 18.2. 1961, gift Leifi Þórssyni, þau eiga tvær dæt- ur, tvö barnabörn og eitt barna- barnabarn. 5) Halla Björk, f. 17.10. 1973, hún á einn son. Kristín og Stefán bjuggu öll sín hjúskaparár í Reykjavík og vann Kristín ásamt heimilis- störfum m.a. á Hrafnistu í Reykjavík, Lönguhlíð 3 og Dal- braut 18-20 við ýmis störf. Útför Kristínar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 28. júní 2018, og hefst athöfnin kl. 13. Elsku amma mín. Ég veit ekki hversu oft ég fékk að heyra söguna af því að þú hafir verið viðstödd fæðingu okkar tvíburanna. Hún var sögð í þriðja hvert skipti sem ég kom í heimsókn. Enda var langt síðan þú hafðir fengið barnabarn þegar við fæddumst, tíu árum seinna kom svo Viktor hennar Höllu. Við ákváðum snemma að það væri best ef við myndum eiga Viktor saman, ég og þú, amma. Þú meira að segja gekkst svo langt að segja að ég mætti eiga Viktor þegar Halla dæi. Sem var ekki þitt að gefa og ein- kennilegt í ljósi þess að Halla er við hestaheilsu. En að þessu gátum við hlegið mikið. Þú kenndir mér svo margt og varst svo skilningsrík alltaf. Þú varst líka alltaf vel tilhöfð og með varalit. Enda er það þitt helsta einkennismerki. Þú varst svo ótrúlega fyndin amma, þú heillaðir alla sem þú kynntist um leið og áttir aldrei í vanda með að tala við fólk. Það er eiginleiki sem allir græða á að hafa. Ég ætla allavega að taka þig til fyrirmyndar. Ég elska þig og sakna þín. Stefanía Smáradóttir. Mikið er tómlegt í Gaukshól- unum núna. Ekki lengur kaffi- spjall við eldhúsborðið hjá Stínu frænku, þar sem rifjaðar voru upp gamlar minningar frá bernskunni, og oft var mikið hlegið. Stína var afar glaðlynd að eðlisfari, og var það eflaust hennar styrkur í lífsbaráttunni, sem oft var býsna erfið. Hún var mjög listhneigð og það var gaman að fylgjast með myndunum hennar verða til. Þrjár þeirra prýða heimili mitt, mér þykir vænt um þær. Í kattaskápnum sitja nú tvær rauðar kisur, sem gefa hvor annarri fimmu, ég kalla þær Stínu og Kollu, takk, Stína mín. Stína var glæsileg kona og ungleg svo af bar, og hélt því til hinstu stundar og alltaf var rauði varaliturinn á sínum stað. Ég þakka henni liðnar stund- ir, og votta yndislegum dætrum hennar og öðrum afkomendum mína innilegustu samúð. Það hefur verið tekið vel á móti henni, svo mikið er víst. Kveð hana með kveðjunni okkar: Sjáumst á morgun! Oft var kátt á frænkufundum fækkar núna okkar stundum, ljúf þú varst og létt í sinni, ljósið fylgi Stínu minni. Kolbrún Eiríksdóttir (Kolla frænka á 1. hæð). Kristín Sigurjóna Haraldsdóttir Stína farin, dáin. Það er ótrúlegt að jafn glaðvær kona og hún Stína var skuli vera far- in. Það eru einstaklingar sem fæðast hér á jörð sem hafa þann einstaka hæfileika að líta á börn sem jafningja og sjá allt- af það jákvæða í því sem lífið hefur upp á að bjóða, það gat hún Stína svo sannarlega gert. Við systkinin í Álftamýrinni fengum að njóta glaðværðar hennar og hláturs. Stebbi og Stína eignuðust fimm dætur og Ásta frænka þeirra öfundaði þær af því að þær ættu hver aðra að en hún ætti aðeins fjóra bræður! Oftar en ekki var hlegið að þessari at- hugasemd. Þegar Stebbi og Stína komu í heimsókn sóttumst við krakk- arnir eftir því að umgangast þau vegna hlátursins og gleð- innar sem Stína gaf af sér. Við getum ekki látið hjá líða að minnast þess hve Stína var alltaf elegant; fallegur rauður varalitur og naglalökkuð svo af bar, það þurfti ekki að vera til- efni til. Við munum alltaf minnast hennar sem glæsilegrar konu. Bros þitt hlýjar, þinn hlátur kitlar. Hvert andartak með þér sem gullið ljós í hjartastað. (Höf. ókunnur) Albert Ingason, Ásta Svana Ingadóttir, Árni H. Ingason, Alexander Ingason og Ingi Ingason. Það var 1981 að ég kynntist Jóa. Það fyrsta sem hann sagði var: „Já, svo þetta er gripurinn?“ og brosti. Ekki vissi ég á þessum tímapunkti að Jóhann Runólfsson ætti eftir að vera faðir minn þar sem eftir væri. Í fyrstu voru kynni okkar stirð en ekki leið á löngu þar til ég áttaði mig á því að þarna færi maður sem vildi mér allt hið besta. Jói var mikill húmoristi og dálítið stríðinn. Hann lagði áherslu á að ég tæki þátt í verkefnum innan heimilis sem utan. Jói kenndi mér mörg handtökin. Get ég því þakkað hon- um fyrir það sem ég veit í dag. Sér- staklega hvatti hann mig til dáða í öllu uppbyggilegu sem ég gerði. Áhugamál Jóa tengdust mikið sjómennsku. Við fórum oft á bryggjuna og skoðuðum báta og skip. Þar hitti hann karla og marg- ar sögur fékk ég um hin og þessi skip. Hans helsta afþreying fyrir utan bækur og kveðskap var að teikna báta og flugvélar. Leiddist honum ekki að útskýra fyrir mér hvert smáatriði. Þó svo teikning- arnar væru smáar var nákvæmnin mikil og hver einasti skipsbúnaður til staðar. Við fórum oft í sumarbústaði í Selvík, rerum út á Álftavatn, veiddum og ræddum heimsins mál. Þetta voru minnisstæðar ferðir. Kom því ekki á óvart að fjölskyldan keypti sér bústað í Skorradalnum 1998. Jói var ótrú- lega sprækur til allrar vinnu, sér- staklega í bústaðnum. Var t.d. með mér í að setja panil í loft. Þá var hann 69 ára gamall og gaf ekk- ert eftir. Þrátt fyrir að hann færi í aðgerð á hægri öxl vildi hann samt saga, gerði það bara með vinstri. Honum leið ekki vel að sitja og horfa á aðra vinna. En eitt var það sem helst mátti ekki og það var að Jóhann Runólfsson ✝ Jóhann Run-ólfsson fæddist 16. október 1944. Hann lést 18. maí 2018. Útför hans fór fram í kyrrþey 30. maí 2018. snyrta tré og runna. „Ekki taka neitt með laufi“ var viðkvæðið. Ég leit á hann sem föður minn þótt við værum ekki blóð- tengdir. Það var svo árið 2005 að ég ákvað að taka upp hans kenninafn og breytti nafni mínu í Þorsteinn Kristjáns Jóhannsson. Þetta þótti Jóa mikill heiður. Um svipað leyti hitti ég konu mína Önnu. Ár- ið 2008 eignuðumst við Matthías Mána. Jói tók afahlutverkið mjög alvarlega. Myndir af honum með Matthías sýna mann fullan stolts. Sama var þegar Úlfur Hrafn fæddist árið 2012. Jóa þótti óskap- lega vænt um drengina og dekraði við þá á alla lund. Síðasta ár var Jóa erfitt. Afa- strákarnir fóru oft í heimsókn og gistu líkt og þeir gerðu reglulega. Minningar um þær stundir eiga eftir að lifa lengi hjá drengjunum. Við feðgarnir heimsóttum Jóa oft þegar veikindin fóru að ágerast. Síðustu vikuna hans vorum við nánast daglegir gestir á líknar- deildinni. Í síðustu heimsókn kvaddi Jói með mig sér við hlið en þá höfðu drengirnir náð að kveðja afa sinn stuttu áður. Þegar þessi grein er skrifuð sit ég uppi í bústaðnum. Í gær fórum við feðgarnir niður á bryggju í Borgarnesi með þína stöng og stóðum á þínum veiðistað. Þú varst alltaf sá sem náðir að veiða eitthvað en við aldrei. Við veiddum hins vegar tvo fiska og einn slapp. Matthías sagði að það væri greini- legt að þú værir með okkur í þess- ari veiðiferð. Jóhann, minning þín mun lifa um ókomna tíð hjá mér og mun ég án efa minnast á þig reglulega. Þinn sonur, Þorsteinn K. Jóhannsson. Afi ætlaði að kenna mér að gera krossgátur og hann gaf mér oft að borða. Afi passaði mig vel og hann passaði kisu líka vel. Afi var flink- ur í krossgátum og líka að teikna skip og flugvélar, hann teiknaði mest skip. Við afi vorum báðir góð- ir í að lesa bækur, hann las mjög mikið. Ég bjó til krossgátu og setti í kistuna hjá afa þegar hann var dáinn til að sýna honum að ég væri líka búinn að læra að gera kross- gátur. Núna er afi uppi á himnum og honum líður vel þar. Ég sakna afa mikið, hann dó á spítalanum, við náðum að kveðja hann áður en hann dó og það var gott. Það var gaman að fara í heimsókn til ömmu og afa og það var líka gam- an að vera með afa uppi í bústað. Úlfur Hrafn. Ég gisti oft hjá ömmu og afa. Afi vildi helst leyfa okkur að gera allt sem við vildum og það fannst mér gaman. Afi gaf okkur alltaf ís og leyfði okkur að vera lengur í tölvunni en við megum venjulega. Hann vildi líka gera það sem okk- ur fannst skemmtilegt að gera og honum líka eins og að veiða. Við vorum svo ánægðir með að eiga afa, við áttum enga aðra afa. Ef afi fann eitthvað sem hann hefði vilj- að eiga þegar hann var lítill þá gaf hann okkur það, til dæmis vatns- byssur. Nú finnst mér rosalega leiðinlegt að það gerist ekki leng- ur eftir að afi fór. En það er líka al- veg rosalega gott að eiga ennþá ömmu og litla köttinn Tinnu Sig- ríði, því kisa minnir mig á afa. Það besta sem ég man eftir var síðasta stundin með afa því þá gátum við fengið að kveðja hann áður en hann dó og það var notaleg stund. Því afi var svo mikið veikur og það var gott fyrir hann að fá að deyja í friði með fólkið sitt hjá sér. Afi var alltaf eitthvað að brasa eins og að teikna skip og flugvélar, leysa krossgátur, hlusta á útvarp- ið, elda mat og smíða með pabba uppi í bústað. Mér fannst gaman að vera með afa og pabba að smíða. Ég sakna hans mjög mikið og ég vona að honum líði mjög vel. Matthías Máni. FALLEGIR LEGSTEINAR Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Á góðu verði Verið velkomin Opið: 10-17 alla virka daga Við sendum hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNS ÞORKELS EGGERTSSONAR, netagerðarmeistara, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hlévangi Reykjanesbæ fyrir hlýju og góða umönnun. Hólmfríður Guðmundsdóttir Eggert Jónsson Una Hafdís Hauksdóttir Ingimundur Jónsson Aðalgeir Jónsson Þóra Lilja Ragnarsdóttir og barnabörn Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, tengdaömmu og langömmu, ÖNNU SIGRÍÐAR LÚÐVÍKSDÓTTUR. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild 2C á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fyrir umhyggju og alúð. Lúðvík Ólafsson Hildur Viðarsdóttir Sigríður Ólafsdóttir Páll Sigurðsson Tryggvi Ólafsson Viðar Lúðvíksson Borghildur Erlingsdóttir Anna Lúðvíksdóttir Oscar Mauricio Uscategui Anna Sigríður Pálsdóttir Ólafur Pálsson Tanja Berglind Hallvarðsdóttir og langömmubörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ERNA ADOLFSDÓTTIR, Bogatúni 9, Hellu, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands föstudaginn 22. júní. Útför hennar fer fram frá Oddakirkju á Rangárvöllum laugardaginn 30. júní klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á að leyfa Krabbameinsfélaginu að njóta þess. Þorbjörn Helgi Magnússon Þórdís Helga Helgadóttir Birkir Halldórsson Ingvar Már Helgason Guðný Ingibergsdóttir Róbert Fjölnir, Steinunn Erna og Helgi Már Júlía og Daníel Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN KRISTINSDÓTTIR, Hjúkrunarheimilinu Eyri, er látin. Kveðjuathöfn verður frá Ísafjarðarkirkju föstudaginn 29. júní klukkan 16. Halldóra Hreinsdóttir Jón Reynir Sigurvinsson Anna Kristín Hreinsdóttir Sigurður H. Hauksson og fjölskyldur þeirra Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, GUÐJÓN GUNNARSSON frá Tjörn í Biskupstungum, andaðist á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði sunnudaginn 24. júní. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðjón Rúnar Guðjónsson Gunnar Guðjónsson Sólrún Guðjónsdóttir Erlingur Þór Guðjónsson Snorri Geir Guðjónsson og fjölskyldur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.