Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 60
60 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018 ✝ Rúnar Svan-holt Gíslason fæddist í Reykjavík 10. júlí 1952. Hann lést á líknardeild Landspítalans 16. júní 2018. Rúnar var sonur Hólmfríðar Svan- holt Björgvins- dóttur frá Krossa- vík í Þistilfirði, f. 1922, d. 2017, og Gísla Gíslasonar frá Litla- Lambhaga í Skilmannahreppi, f. 1910, d. 1969. Systkini hans eru Þóra Elsa, f. 1956, maki Gunnar Björns- son, Gísli, f. 1957, maki Vigdís Hreinsdóttir, og Björgvin Óm- ar, f. 1958. Fyrri kona Rúnars var Ingi- björg Klemenzdóttir, þau skildu. Dóttir þeirra er Hólm- fríður Rós, f. 1978, sambýlis- maður hennar er Davíð Krist- jánsson. Dætur hennar eru Lísandra Týra og Ingibjörg Anna Jónsdætur. Dóttir Davíðs er Aðalheiður Ísmey. Eftirlifandi eiginkona Rún- ars er Halla Sigurgeirsdóttur skólanum við Tjörnina 1974 og lauk lagaprófi frá Háskóla Ís- lands árið 1983. Rúnar var fulltrúi hjá bæjarfógetanum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Sel- tjarnarnesi og sýslumanninum í Kjósarsýslu 1983-1992. Hann varð héraðsdómslögmaður 1990 og löggiltur fasteignasali 1999. Hann rak lögmannsstofu frá árinu 1992 og vann samhliða lögmennsku hjá Remax og fast- eignasölunni Bæ u.þ.b. sl. 10 ár. Rúnar stundaði alla tíð íþróttir af kappi. Hann lék mörg ár með meistaraflokki Fram og átti þar farsælan feril. Rúnar var sæmdur silfur- og gullmerki Fram. Hann sat í leyfisdómi KSÍ frá upphafi. Hann stundaði á tímabili kraft- lyftingar og átti þar fjölmörg Íslandsmet. Rúnar iðkaði golf og lagði mikla rækt við íþrótt- ina. Hann lék nokkur ár í landsliði eldri kylfinga og keppti víða í Evrópu. Þá sat hann í stjórn GR um tíma. Rún- ar sat í stjórn GSÍ frá 1999- 2005. Hann hefur verið formað- ur áfrýjunardómstóls GSÍ frá 2015 en sat áður í dómstól þess. Rúnar var sæmdur gullmerki GSÍ árið 2005 fyrir framlag sitt til golfíþróttarinnar. Útför Rúnars fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 28. júní 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. kennari. Hún er dóttir Margrétar Björnsdóttur, f. 1930, d. 1993, og Sigurgeirs Jón- assonar, f. 1928. Synir Rúnars og Höllu eru Rúnar Steinn, f. 1991, unnusta hans er Katrín Björk Gunnarsdóttir, og Hrólfur Sturla, f. 1995, sambýliskona hans er Guðný Margrét Jónsdóttir, son- ur þeirra er Stefán Máni. Sonur Höllu og stjúpsonur Rúnars er Emil Örn Sigurðarson f. 1980, sambýliskona hans er Þóra Árnadóttir, dætur þeirra eru Júlía Íris og Katrín Edda. Rúnar og Halla kynntust árið 1986 og hófu sambúð 1989 að Miðvangi 53 Hafnarfirði og bjuggu þar alla tíð. Þau gengu í hjónaband á Þingvöllum 9. júlí 1999. Rúnar ólst upp á Akranesi til 13 ára aldurs. Árið 1965 flutti fjölskyldan til Reykjavíkur og bjó lengst af í Álfheimum. Hann varð stúdent frá Mennta- Elsku hjartans Rúnar minn. Hvernig á ég að geta kvatt þig? Þú sem varst ekkert á förum svona fljótt. Við ætluðum að gera svo margt saman í framtíð- inni. Nýlega orðin tvö í kotinu og ætluðum að njóta okkar. Ferðast meira og spila golf um víðan völl. Njóta barnabarnanna og fagna lífinu með krökkunum. En skjótt skipast veður í lofti. Þetta brjálaða krabbamein tók þig yfir á mun skemmri tíma en nokkurn grunaði. Þú barðist hetjulega og ætlaðir að hrista þetta af þér enda mikill keppn- ismaður. Ég minnist allra góðu stundanna okkar. Þegar við sát- um og spjölluðum saman um heima og geima. Þegar við kúrð- um í sófanum yfir spennuþáttum í sjónvarpinu. Þegar við döns- uðum á stofugólfinu við góða tónlist. Þegar við hlógum sam- an, þú með þinn smitandi hvella hlátur sem enginn stóðst. Þegar þú kenndir mér golf svo þolin- móður og skilningsríkur. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að geta spilað golf án þín. Stundanna í nýja pottinum þegar við spáðum í stjörnurnar og horfðum á norð- urljósin. Þegar við byggðum loftkastala um sumarbústaðinn á Lambhaganesi sem við aldrei eignuðumst. Ferðalaganna okk- ar á erlendar grundir. Þegar ég las fyrir þig í bílnum. Samveru, hláturs og áts í góðra vina hópi. Ég þakka þér fyrir að kynna mig fyrir þínu góða fólki. Ég þakka þér, ástin mín, fyrir börn- in okkar sem nú sjá á eftir pabba sínum svo allt of ung. Þú varst kletturinn okkar allra. Nú verðum við að vera dugleg að segja barnabörnunum frá þér. Þú hafðir einstakan mann að geyma. Varst lítillátur, ljúfur, kátur og hreyktir þér ekki af verkum þínum en umfram allt hafðir þú stórt og gjafmilt hjarta. Ég bjó á mínum æskuslóðum í suðurhlíðum Kópavogs, á Þing- hólsbraut, þegar leiðir okkar lágu saman. Þar áttum við margar af okkar fyrstu unaðs- stundum. Á sömu slóðum, við sama voginn, bara aðeins innar, áttum við einnig okkar síðustu samverustundir. Upphaf og endi. Ég horfði á eftir þér sigla frá ströndinni okkar út á saf- írblátt hafið. Horfði á eftir þér þar til þú hvarfst við sjóndeild- arhring. Nú hefur þú siglt að annarri strönd sem eflaust er gyllt og böðuð ljósi. Ég er viss um að þar beið hún mamma þín og tók á móti elsku drengnum sínum, honum Rúnari. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er aldrei skal ég gleyma þér. (Rósa Guðmundsdóttir) Það er þyngra en tárum taki að missa þig og kveðja. Farðu í friði, ástin mín. Ég elska þig. Þín Halla. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Ég tíni fram perlur minning- anna eina af annarri, horfi á þær og man. Man þegar hann snagg- aralegur strákur á sjöunda ári sagðist geta verndað mig veð- urhrædda litlu systur fyrir vind- inum sem hvein og rigningunni sem buldi á glugganum dag einn fyrir nær sextíu árum. Man þeg- ar hann kenndi mér manngang- inn og gaf mér þegar við tefld- um drottningu og hróka í forgjöf, sem dugði mér þó sjald- an til sigurs. Man okkur spila marías tímunum saman, skrá stigin og geyma til næstu daga. Man hann lesa af innlifun fyrir okkur yngri systkinin kvöldsög- una Basil fursta og það gerði lít- ið til þótt maður skildi ekkert í atburðarásinni. Man hann sterk- an og stæltan ganga á höndum upp öll fjórtán þrepin á útidyra- tröppunum. Man ærslin og lætin sem fylgdu innanhússfótboltan- um sem hann spilaði með litlum bolta og heimasmíðuðum reglum við okkur systkini sín á svefnherbergisganginum þegar mamma var ekki heima. Man skemmtilega hláturinn og fyndna svipinn sem hann setti upp þegar hann þóttist hneyksl- aður. Man hann stoltan og glað- an með börnunum sínum og hamingjusaman með henni Höllu sinni. Man hjálpsaman, einlægan og traustan bróður. Ég kveð kæran bróður með söknuði en líka með óendanlegu þakklæti fyrir allt og allt, því ég man. Þóra. Að gera sitt besta var Rúnari mági mínum í blóð borið. Engu skipti hvar borið var niður í starfi eða leik. Þar sem hann beitti sér skipaði hann sér fram- arlega. Þar má til dæmis nefna skákina, fótboltann, kraftlyft- ingarnar, golfið eða stafrænu tæknina. En hann taldi sér líka trú um að hann hefði tiltekin takmörk og eftirlét yfirleitt öðr- um að smíða, mála og sinna við- líka verkum. Hann var glaðsinna, stutt í kímnina, átti auðvelt með að blanda geði við aðra, en hafði líka sitt fyrir sig og hleypti fáum alveg að sér. Hann var tryggur sínum og lagði sig fram um að hjálpa eða aðstoða án þess að hafa hátt um það. Hann var einstaklega greiðvikinn og ekki síst gagn- vart móður sinni og föðursyst- kinum þegar aldurinn færðist yfir þau og mátu þau það mikils. Um áratugaskeið sameinaðist stórfjölskyldan um áramót til að kveðja gamla árið og fagna því nýja. Það þurfti ekki að spyrja að því að alltaf kom Rúnar með langstærsta flugeldapakkann. Það er enn í minnum haft þegar sprengihvellirnir af einu og sama sprengjubeltinu stóðu yfir samfellt í tíu mínútur (og snúru- staurinn sem hann hengdi það á var ónothæfur eftir). Það eru ótal minningabrot af þessu tagi sem gera það létt- bærara að kveðja allt of snemma góðan dreng hinstu kveðju. Hvíl í friði, kæri mágur, og guð blessi minningu þína og vaki yfir fjöl- skyldu þinni. Gunnar Björnsson. Látinn er eftir snarpa baráttu við krabbamein, langt um aldur fram, svili og mágur, Rúnar Svanholt Gíslason lögmaður. Kynni okkar byrjuðu fyrir um tuttugu og níu árum þegar hann og Halla, systir Sigrúnar, fóru að skjóta sér saman. Tókust með okkur góð kynni sem engan skugga hefur borið á síðan. Það fór ekki mikið fyrir Rúnari dagsdaglega. Hann vann sín verk hljóður, af mikilli sam- viskusemi, og kjaftaði örugglega ekki af sér um málefni skjól- stæðinga sinna. Það var gott að leita til hans með mál sem mað- ur þurfti að leita ráða við, og var hann lögmaður fyrirtækja okk- ar. Rúnar var mikill íþróttamað- ur og keppnismaður góður. Á yngri árum átti fótboltinn hug hans allan og náði hann svo langt að spila í landsliðinu ein- hverja leiki. Síðar tók svo golfið við og er óhætt að segja að það hafi verið stundað af kappi allt fram á síðasta dag og var hann um tíma í landsliðum. Það var hann sem kynnti þann leik fyrir okkur hjónum fyrir margt löngu og höfum við spilað saman af og til síðan. Við vorum í endaðan apríl saman á Spáni í vikutíma, þar sem var spilað á hverjum degi. Ekki datt manni í hug þar hve stutt var eftir. Keppnisskapið var til stað- ar og þó að stutta spilið væri á stundum erfitt eftir veturinn voru hans víðfrægu upphafs- högg á sínum stað. Maður minnist líka góðra samverustunda hér fyrir vestan, bæði á sumrum og vetrum, og svo hefur það æxlast þannig eft- ir að fækkaði í heimili hjá þeim hjónum í Hafnarfirði að við höf- um æ oftar notið gestrisni þeirra í Miðvanginum þegar við höfum verið í bænum. Fyrir það erum við afskaplega þakklát. En enginn stöðvar tímans straum, og þetta er leiðin okkar allra, einungis spurning um hve- nær. Það er sárt að sjá á eftir góðum dreng sem manni fannst eiga svo mikið eftir. Elsku Halla og fjölskylda. Ykkar er missirinn mestur. Megi góður Guð styrkja ykkur og hjálpa að geyma allar góðu minningarnar um góðan dreng. Guðni og Sigrún. Látinn er langt um aldur fram kær vinur okkar, Rúnar Gíslason lögmaður. Okkur er brugðið. Hann var sá félaganna sem alltaf geislaði af heilbrigði, orku og lífsgleði og það fór ekki fram hjá neinum þegar hann hló sínum dillandi og smitandi hlátri. Að vera í návist hans vakti jafnan gleði. Ef við rekjum minningarnar aftur í tímann þá munum við fyrst eftir ungum pilti, hann var ekki hár í loftinu en skar sig þó úr fjöldanum með einstökum hæfileikum. Rúnar var ofan af Skaga og kom því ekki að knatt- spyrnu hjá Fram fyrr en á ung- lingsárum. Þar var fyrir lið sem hafði náð frábærum árangri og verið ósigrandi upp yngri flokka. Hann lék með meistara- flokki Fram um árabil og að auki með landsliði Íslands í knattspyrnu. Rúnar lagði einnig stund á lyftingar, sund og skák. Þar varð hann, eins og í öllum íþrótt- um sem hann lagði stund á, fljótlega í fremstu röð. Það var alltaf stefnt á toppinn af miklu kappi og elju. Rúnar var keppn- ismaður fram í fingurgóma. Rúnar var einstaklega hjálp- samur og drengur góður, það var ekki erfitt að leita til hans ef með þurfti. Hann eignaðist góða fjölskyldu sem hann sinnti vel. Þau Halla voru samhent og sam- rýnd. Um miðjan níunda áratuginn kynntist Rúnar golfinu. Þar stakk hann sér til sunds í djúpu laugina og varð fljótlega með betri golfurum og lék með landsliðum eldri kylfinga. Áhuga Rúnars á golfíþróttinni nutum við vinir hans sem fórum með honum ótal golfferðir, lengri og skemmri, jafnt innanlands sem utan. Nú líður okkur eins og hjart- sláttur okkar hafi líka stöðvast. Við sendum Höllu og allri fjöl- skyldunni okkar innilegustu samúðarkveðjur á þessari erfiðu stund. Minningin um einstakan dreng mun lifa með okkur. Einar og Margrét. Vinur okkar Rúnar Svanholt Gíslason er látinn. Langt fyrir aldur fram. Vinátta okkar við hann á rætur marga áratugi aft- ur í tímann og þá einkum vegna samveru í gamla félaginu okkar Fram. Og þá knattspyrnudeild- inni, þar sem hann lék á árum áður með mörgum okkar í gegn- um alla aldursflokka. Í nokkur ár lék hann með meistaraflokki þar sem hann geisaði upp og niður kantinn eins og elding. Hann var frekar lágvaxinn en mjög sterkur til líkamans og áttu andstæðingarnir ekki auð- velt með að ná af honum knett- inum áður en banvæn sendingin kom fyrir mark þeirra. Síðari árin lékum við golf saman. Um árabil höfum við haldið saman hóp í golfinu sem við höfum kallað FRAM-hópinn. Þá höfum við spilað einu sinni í viku og reiknað svo saman ár- angur sumarsins. Rúnar var besti golfarinn í hópnum og allt- af með efstu mönnum. Við settum upp sérstaka keppni í því hver fengi flesta fugla yfir sumarið. Við urðum svo að fella þá keppni niður því Rúnar vann alltaf. Rúnar var hæglátur maður og hafði ekki hátt. Hann var líka alltaf í góðu skapi og miðlaði okkur félögunum leikgleði, sem gerði leikinn léttari og eftir- minnilegri. Við þekktum líka vel þá meginreglu að þótt oft heyrð- ist óánægjustuna frá Rúnari eft- ir að kylfa hans hitti boltann gátum við gengið út frá því sem gefnu að höggið hefði samt heppnast vel. Hann hafði þá lík- lega séð fyrir sér að betur hefði mátt gera, þó að við hinir kæm- um ekki auga á það. Umfram allt var Rúnar góður félagi. Hann var ávallt á sinn hægláta hátt hrókur alls fagn- aðar í hópnum okkar. Hans verður sárt saknað. Við golf- félagarnir sendum Höllu og öðr- um í fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur vegna ótíma- bærs andláts þessa öðlings. Fyrir hönd FRAM-hópsins, Jón Steinar Gunnlaugsson. Í dag kveðjum við Rúnar vin okkar sem lést 16. júní síðastlið- inn eftir harða og skamma bar- áttu við krabbamein. Okkur finnst erfitt og ótímabært að kveðja þennan sómamann. Rúnar var rólyndismaður, æðrulaus og staðfastur. Hann flíkaði ekki tilfinningum sínum, var hlýr í samskiptum og hafði afskaplega góða nærveru. Rúnar var maðurinn hennar Höllu vinkonu okkar. Vinskapur okkar og samvistir voru góðar og minningarnar geyma svo margar dýrmætar stundir. Við sexmenningarnir stofnuð- um matarklúbb fyrir mörgum árum sem fékk nafnið Þig vil ég fá til að eta mér hjá. Þar var brugðið á leik með ýmsum hætti svo sem með kveðskap, spila- mennsku, spurningakeppni, dansi og fleiru. Rúnar kom alltaf sterkur inn í öllu sem fundið var upp á og skemmtum við okkur einstaklega vel saman. Heimili Rúnars og Höllu er heimili sem gott er að koma á. Þegar við hittumst þar nutum við þeirrar miklu gestrisni sem einkennir heimili þeirra. Oftar en ekki byrjaði kvöldið á að við stelpurnar vorum á neðri hæð- inni eitthvað að fást við mat en drengirnir á efri hæðinni að horfa á golf með Rúnari. Rúnar var mikill golfari og landsliðsmaður í golfi. Hann smitaði Höllu af golfáhuganum og áttu þau hjónin margar góðar stundir á golfvellinum bæði hér á landi og erlendis. Elsku Halla, hugur okkar er hjá ykkur fjölskyldunni á þess- um erfiða tíma í lífi ykkar. Allar minningarnar sem þið eigið um ljúfan og yndislegan mann munu ylja ykkur um ókomin ár. Blessuð sé minning Rúnars. Steinunn og Kristján, Signý og Helgi. Rúnar Svanholt Gíslason Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Kristín IngólfsdóttirSverrir Einarsson Margrét Á. Guðjónsd. Hannes Ó. Sampsted Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, systir og amma, DAGRÚN LINDA GARÐARSDÓTTIR, Þorrasölum 9, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 20. júní. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 5. júlí klukkan 15. Páll Þórir Daníelsson Hlín Guðbrandsdóttir Vignir Már Daníelsson Snorri Örn Daníelsson Helga Þórey Friðriksdóttir Garðar Jóhannesson Sigurlaug Garðarsdóttir Jóhanna Garðarsdóttir Bryndís Garðarsdóttir og ömmubörn Elskulegur faðir okkar, bróðir, afi, föðurbróðir og tengdafaðir, FINNUR BALDURSSON, Lynghrauni 5, Mývatnssveit, sem lést mánudaginn 25. júní, verður jarðsunginn frá Reykjahlíðarkirkju mánudaginn 2. júlí klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Kiwanisklúbbinn Herðubreið. kt. 420490-2679, r. 1110-05-410284. Hilmar Finnsson Sigurður Baldursson Elísabet Sigurðardóttir og fjölsk. Baldur Sigurðsson og fjölsk. Garðar Finnsson Valerija Kiskurno Eldey Gerda Garðarsdóttir Dreki Lars Garðarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.