Morgunblaðið - 05.07.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018
Páll Vilhjálmsson segir:
Fjölmiðlar stunda pólitík meðhönnun frétta.
Nýlegt dæmi afRÚV er þegar
Helga Vala Helga-
dóttir var kölluð til
vitnis um að hér á
landi væri réttar-
óvissa.
Helga Vala er réttur og slétturþingmaður í stjórnarandstöðu
og ekki bær um að úrskurða um
réttaróvissu.
Fólk sem þekkir til Mannrétt-indadómstóls Evrópu rak vit-
leysuna ofan í Helgu Völu. RÚV var
kappsmál að setja á svið leikrit með
Helgu Völu og stjórnarandstöð-
unni.
Fjölmiðlar búa til staðreyndirmeð vali á viðmælendum.
Helga Vala fór með fleipur en RÚV
gerði frétt um hugarburðinn og bjó
þannig til staðreynd í opinberri um-
ræðu.
Ekkert knúði á að RÚV gerðifrétt með stjórnarandstöðu-
þingmann sem aðalheimild nema
vilji til að stunda pólitík.
Brynjar Níelsson segir fjölmiðla íruslflokki.
Ekkert ofmælt þar.“
Það er nokkuð til í þessu.
En hið fölnaða laufblað „RÚV“réttlætir þó ekki endilega að
fordæma allan skóginn. Er það?
Páll Vilhjálmsson
Eftirköst
asnastriks
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 4.7., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 8 skýjað
Akureyri 10 alskýjað
Nuuk 10 skýjað
Þórshöfn 13 rigning
Ósló 22 heiðskírt
Kaupmannahöfn 23 heiðskírt
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 20 skýjað
Lúxemborg 19 þrumuveður
Brussel 27 léttskýjað
Dublin 24 léttskýjað
Glasgow 22 léttskýjað
London 23 skúrir
París 28 heiðskírt
Amsterdam 21 heiðskírt
Hamborg 26 heiðskírt
Berlín 30 heiðskírt
Vín 28 heiðskírt
Moskva 15 skúrir
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 27 heiðskírt
Barcelona 28 heiðskírt
Mallorca 29 heiðskírt
Róm 28 heiðskírt
Aþena 33 heiðskírt
Winnipeg 25 skýjað
Montreal 30 léttskýjað
New York 29 þoka
Chicago 29 heiðskírt
Orlando 29 þrumuveður
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
5. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:15 23:51
ÍSAFJÖRÐUR 2:17 24:58
SIGLUFJÖRÐUR 1:56 24:46
DJÚPIVOGUR 2:33 23:32
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Samgöngustofa hefur í hyggju að
bæta við spurningu í viðhorfskönn-
un sína til almennings, sem gerð er
árlega; spurningu um viðhorf fólks
til lækkunar hámarkshraða. Þetta
segir Þórhildur Elín Elínardóttir,
samskiptastjóri Samgöngustofu, í
samtali við Morgunblaðið. Í ljósi ný-
legra slysatalna Samgöngustofu fyr-
ir fyrstu fjóra mánuði ársins og
þeirrar miklu fjölgunar framaná-
keyrslna sem hefur orðið á því tíma-
bili, sem Morgunblaðið greindi frá
síðasta þriðjudag, vaknar sú spurn-
ing hvort lækkun hámarkshraða á
þjóðvegum hafi verið skoðuð hjá
Samgöngustofu.
„Það mál hefur oft verið rætt hjá
Samgöngustofu og þá hafa fulltrúar
frá EuroRAP [samtök 29 bifreiða-
eigendafélaga í Evrópu sem gera
öryggisúttektir á vegum, innsk.
blaðamanns] sagt að ódýrasta og
áhrifaríkasta aðferðin við að fækka
slysum sé að lækka hámarkshraða.
Á móti er þetta mjög pólitísk
ákvörðun að lækka eða hækka há-
markshraða á vegum,“ segir Þór-
hildur aðspurð.
Fyrsta skrefið sem hver og einn
ökumaður getur tekið, segir Þór-
hildur, er að taka þá ákvörðun að
keyra einfaldlega ekki yfir há-
markshraða. „Sú ákvörðun er afar
krefjandi, enda þarf að taka hana í
hvert einasta skipti sem sest er und-
ir stýri,“ segir Þórhildur að auki.
Í síðustu viðhorfskönnun Sam-
göngustofu kom í ljós að langflestir
aðspurðra töldu sig vera í meðallagi
eða betri en meðalökumenn. „Það
finnst varla fólk sem telur sig vera
undir meðallagi og þá vaknar spurn-
ingin hvar meðallagið nákvæmlega
sé,“ segir Þórhildur.
Er hámarkshraði alltaf miðaður
við bestu mögulegu aðstæður þann-
ig að þegar eitthvað dregur úr því,
t.d. skyggni, veður eða ástand veg-
ar, ætti að draga úr hraðanum. „Það
er því ekki samanasemmerki á milli
löglegs hámarkshraða og æskilegs
hámarkshraða,“ segir Þórhildur.
Kanna hug fólks um ökuhraða
Árleg viðhorfskönnun Samgöngustofu Lækkun hámarkshraða hefur oft kom-
ið til umræðu en ákvörðunin er afar pólitísk, segir samskiptastjóri Samgöngustofu
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Umferð Almennur hámarkshraði á malbikuðum þjóðvegum er 90 km/klst.
Gott ástand vega og réttur hraði er meðal þess sem getur fækkað slysum.
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum
Útasalan er hafin