Morgunblaðið - 05.07.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 05.07.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018 ... M m m ste ika rloka Þú finnur uppskriftina á kronan.is/ uppskriftir 3999 kr.kg Ungnauta innralæri 332 kr.pk. Sveppir, 250 g 199 kr.stk. Snittubrauð 499 kr.stk. Fabrikku Bernaises sósa Svarið við erfiðustu spurningu dagsins er ... Afgreiðslutímar á www.kronan.is Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Það er aukin eftirspurn eftirumhverfisvænum vörum,fólk er að spá í kolefnis-sporið sitt.“ Þetta segir Arna Sigrún Haraldsdóttir, dreifing- araðili Modibodi á Íslandi og heldur úti samnefndri netverslun. Hún stendur fyrir Grænum markaði á laugardag í sal á Fiskislóð 57. Átta verslanir taka þátt í markaðnum og eiga þær það allar sameiginlegt að bjóða umhverfisvænar vörur. Verslanirnar sem taka þátt í markaðnum selja mismunandi varn- ing. Þær eru Modibodi, Hrísla, Systrasamlagið, Kjaran.is, Fjölnota, Mena, Davines og Græn viska. Þá verður svokallaður áfylling- arbar á markaðnum, sem er nýjung að sögn Örnu. „Hægt verður að kaupa hárvörur í stórum einingum og gestir markaðarins geta komið með hvaða umbúðir sem þeim sýnist og látið fylla á þær með sjampói eða hárnæringu eftir vigt. Þannig að þú getur komið með gamla sjámpóbrús- ann þinn eða sultukrukku, hvað sem er.“ Arna segir það vera að færast í vöxt að verslanir úti í heimi séu um- búðalausar og synd að það skuli ekki vera algengara á Íslandi. „Ísland er markaðssett sem hreint og umhverf- isvænt en við erum í rauninni að búa til mikið af rusli.“ Þó segir Arna að með aukinni eftirspurn hljóti að koma alls konar nýjar hugmyndir að umhverfisvænni kostum. Netverslun Örnu selur túr- nærbuxur sem er umhverfisvænni kostur en t.d. dömubindi og túrtapp- ar. Hún segir: „Ég brenn fyrir sjálf- bærni og er að reyna að minnka kol- efnisspor mitt með alls konar aðgerðum, ég t.d. borða ekki kjöt og mjólk, m.a. vegna þess að það er ekki umhverfisvænt í framleiðslu. Þetta er hitamál fyrir mér persónulega og það er ástæðan fyrir því að ég var spennt fyrir að flytja þetta inn.“ Arna segir að þetta sé í fyrsta skiptið sem netverslunin skipulegg- ur markað. Hún hafi áður tekið þátt í verlsunarmörkuðum en aldrei slík- um sem eingöngu bjóða upp á um- hverfisvænar vörur. „Ég sel vöru sem fólk langar oft að koma og skoða en þegar maður er bara með net- verslun vantar þennan möguleika. Svo langaði mig að fá verslanir með mér á markaðinn sem höfða til sama markhóps,“ segir Arna. Hún segir það hafa verið meðvitaða ákvörðun að hafa markaðinn í sal vestur í bæ, þar sem þar búi flestir sem kjósa bíl- lausan lífsstíl. Á markaðnum verður einnig ýmislegt í boði til heimilisins, t.d. fjölnota ílát og bambustannburstar. „Svo verða þarna matarílát sem eru ekki úr plasti heldur stáli,“ segir Arna. Þá verður hægt að kaupa mat- arumbúðir sem matarafgangar eru vafðir inn í, bæði úr býflugnavaxi og vegan-útgáfu. Þannig sé hægt að sporna við matarsóun og plastnotk- un á sama tíma. Grænn markaður fyrir umhverfið Eftirspurn eftir umhverfisvænum vörum hefur aukist mikið að sögn Örnu sem skipuleggur Græna markað- inn. Þar býðst gestum að kaupa vörur sem eru ýmist vegan, lífrænar, fjölnota eða umhverfisvænar. Átta verslanir taka þátt í markaðnum sem allar eiga það sameiginlegt að hafa umhverfið í fyrirrúmi. Ljósmynd/Halldóra Kristín Bjarnadóttir Lífrænt Sápur, baðsölt og aðrar baðvörur verða í boði á markaðnum. Aukin eftirspurn er eftir lífrænum vörum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Nytsemi Á markaðnum verður hægt að koma með eigin ílát og fylla af sjampói og greiða samkvæmt þyngd vörunnar. Skipuleggjandinn Arna Sigrún sér um Græna markaðinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.