Morgunblaðið - 05.07.2018, Síða 29

Morgunblaðið - 05.07.2018, Síða 29
Benedikt Bogason hæstaréttar- dómari hefur áfrýjað dómi héraðs- dóms í máli hans gegn Jóni Steinari Gunnlaugssyni, lögmanni og fv. hæstaréttardómara. Dómur féll í málinu fyrir um tveimur vikum og áfrýjaði Benedikt viku síðar, að því er fram kemur í áfrýjunarskrá á vef Landsréttar. Í málinu fór Benedikt fram á að ummæli í bók Jóns, Steinars í ritinu Með lognið í fangið – Um afglöp Hæstaréttar eftir hrun yrðu dæmd dauð og ómerk. Þá fór hann einnig fram á að fá tvær milljónir króna í miskabætur. Byggðist málsóknin á því að ummælin „dómsmorð“ væru aðdróttanir. Jón Steinar hefði full- yrt að Benedikt hefði af ásetningi komist að rangri niðurstöðu í dóms- máli svo saklaus maður hefði verið dæmdur í fangelsi. Á þetta fellst dómari ekki og seg- ir að þrátt fyrir að Jón Steinar taki sterkt til orða í bókinni saki hann Benedikt hvergi um refsivert at- hæfi. Ummælunum sé jafnframt ekki beint að Benedikt persónulega heldur Hæstarétti í heild. Máli gegn Jóni Stein- ari áfrýjað  Sýknað í héraði Morgunblaðið/Þórður Hæstiréttur Dómararnir deila. „Skógurinn er töfraheimur þar sem ævintýrin verða til út í hið óendan- lega,“ segir Guðfinna Mjöll Magn- úsdóttir sem er í forsvari fyrir Skógarleikana sem haldnir verða í Heiðmörk næstkomandi laugardag. Dagskráin hefst kl. 13 og getur fólk m.a. fylgst með keppni þar sem skógarhöggsmenn leiða saman hesta sína og keppa í axarkasti, sporaklifri, bolahöggi og afkvistun. Samhliða keppninni verður fjöl- breytt dagskrá í boði fyrir fólk á öllum aldri. Gestum býðst meðal annars að spreyta sig í tálgun úr ferskum viði beint úr skóginum undir leiðsögn Benedikts Axels- sonar. Auk þess mun Ólafur Odds- son kenna börnum að kljúfa eldivið með kjullu og exi. Keppnisstjóri Skógarleikanna er Gústaf Jarl Við- arsson, dómari Böðvar Guðmunds- son og kynnir Björn Bjarndal Jóns- son. „Hér í Heiðmörk er margt að sjá nú þegar hann er með fallegum sumarsvip. Svo er skógurinn núna orðinn auðlind og skilar ýmsum nytjum. Núna munum við til dæmis kynna hvernig hægt er að lita efni á náttúrulegan hátt með hráefnum úr skóginum; það er lúpínu og birki. Þá verður hægt að kynnast ilm- kjarnaolíunum úr íslenskum trjá- tegundum,“ segir Guðfinna Mjöll. Á skógardeginum verður boðið upp á snúrubrauð grillað yfir varð- eldi, ketilkaffi og grillmat. Er þetta í boði Skógræktarfélagsins Reykja- víkur en skógurinn í Heiðmörk sem byrjað var að rækta fyrir 70 árum er í umsjón þess. sbs@mbl.is Skógarævintýrin verða til Morgunblaðið/Ófeigur Skógarleikar Keppendur rúlla á undan sér trjábolum í keppni síðasta árs.  Hátíð í Heiðmörk  Keppt í axarkasti og sporaklifri Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í vikunni Guðmund Jónsson lögmann til 2 ára fangelsisvistar fyrir fjár- drátt sem skipaður skiptastjóri dán- arbús. Auk þess var Guðmundur dæmd- ur til þess að greiða dánarbúinu bætur sem nema dreginni fjárhæð, auk vaxta og málskostnaðar. Guðmundur tók, með sex milli- færslum, samtals um 53,7 milljónir kr. af reikningi dánarbúsins yfir á vörslureikning. Hann millifærði fjármunina síðar á eigin reikning og notaði til að greiða persónuleg út- gjöld. Brotin voru framin á tíma- bilinu 7. febrúar 2013 til 7. júní 2016. Guðmundur viðurkenndi brot sín skýlaust og bar við að þau hefði hann framið er hann glímdi við áfengis- og fíkniefnavanda. Héraðs- dómur mat til refsiþyngingar að um stórfellt brot í opinberu starfi væri að ræða. Ófært væri að skilorðs- binda refsinguna. Lögmaður dæmdur fyr- ir fjárdrátt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.