Morgunblaðið - 05.07.2018, Page 55
verið í leikfélagi í menntaskóla
áttaði ég mig fljótt á því að minn
styrkur lá ekki á leiksviðinu. Það
var hins vegar frábær reynsla að
taka þátt í starfi leikhópa og eftir
menntó vann ég um hríð sem
sviðsstjóri og aðstoðarmaður leik-
stjóra við þó nokkrar uppsetn-
ingar, m.a. í Iðnó og Loftkast-
alanum.“
Baldvin var þjónn í mörg ár
með skóla. Hann og kona hans
fluttu til Stokkhólms þar sem þau
bjuggu í sex ár á meðan eig-
inkonan var að ljúka læknanámi.
Þar tók Baldvin þátt í alþjóðlegu
rannsóknarverkefni við háskólann
í Trento á Ítalíu þar sem skoðað
var ferli stjórnarskrárbreytinga í
nokkrum Evrópulöndum. Þau
fluttu síðan heim árið 2015.
Eftir heimkomuna hóf Baldvin
stundakennslu við HÍ, m.a. í
meistaranámi í fjölmiðla- og
boðskiptafræðum þar sem hann
kenndi námskeiðið Stafrænir miðl-
ar, en eftir hann hafa birst rit-
rýndar greinar og bókakaflar.
Aðalstarf Baldvins hefur þó ver-
ið hjá RÚV: „Þar hóf ég reyndar
störf í Barnaútvarpinu árið 1990
þannig að ég segi stundum að
starfsævin þar (með hléum) sé
orðin 28 ár.“
Ég varð íþróttafréttamaður á
RÚV 2002 en í ársbyrjun 2005
flutti ég mig yfir á fréttastofu
Sjónvarps, var vaktstjóri frétta
frá 2007 þar til ég hóf nám í Skot-
landi haustið 2008.
Árið 2015 kom ég inn í Kastljós-
hópinn og var þar þangað til ég
tók við nýrri stöðu sem dagskrár-
stjóri númiðla og Rásar 2 um síð-
ustu áramót.“
Baldvin hefur setið í stjórn Fé-
lags fréttamanna innan RÚV og
var um hríð formaður starfs-
mannasamtaka RÚV.
„Dætur mínar tvær eru helsta
áhugamálið þessi misserin. Mér
finnst afskaplega gaman að kom-
ast í veiði, hvort heldur fisk- eða
skotveiði. Þar er aflinn ekki endi-
lega aðaltakmarkið heldur er úti-
veran mikilvæg. Ætli ég hafi það
ekki frá afa mínum, Þorleifi, sem
var einn af stofnendum Útivistar
og mikill göngugarpur. Enn í dag
kemur fólk til mín og segir mér
sögur af honum og bláu kaffikönn-
unni sem var alltaf með í för.“
Fjölskylda
Eiginkona Baldvins er Helga
Margrét Skúladóttir, f. 10.5. 1979,
hjartalæknir. Foreldrar hennar
eru hjónin Skúli Bjarnason, f.
15.12. 1953, hrl., og Sigríður Lillý
Baldursdóttir, f. 8.6. 1954, for-
stjóri Tryggingastofnunar, en þau
búa í Reykjavík.
Dætur Baldvins og Helgu eru
Soffía Sigríður, f. 12.11. 2015, og
Erla Margrét, f. 19.9. 2017.
Systur Baldvins eru Guðrún, f.
27.7. 1970, starfsmaður hjá styrkt-
arfélaginu Ási, og Gréta María, f.
26.11. 1972, verkefnastjóri hjá
Miðstöð íslenskra bókmennta.
Foreldrar Baldvins eru Bergur
Þorleifsson, f. 12.7. 1942, fyrrv.
hafnarstjóri í Reykjavík, og Sig-
ríður Baldvinsdóttir Skaftfell, f.
13.10. 1943, fulltrúi á lögmanns-
stofu og flugfreyja.
Baldvin Þór Bergsson
Sigríður Kristjánsdóttir
húsfr. í Rvík
Jóel Sumarliði Þorleifsson
trésmíðam. í Rvík
Gréta Jóelsdóttir Skaftfell
húsfr. í Rvík
Baldvin Bjarnason Skaftfell
fulltr. og rithöfundur í Rvík
Sigríður Baldvinsdóttir Skaftfell
fulltrúi á lögmannsstofu og flug
freyja, búsett í Kópavogi
Þorgerður Baldvinsdóttir
húsfr. á Seyðisfirði
Bjarni Þorgeir Sigurðsson Skaftfell
gullsmiður og rafstöðvarstj. á Seyðisfirði
Benedikt Bogason verkfr. og alþm. í Rvík
Eggert Þorleifsson leikariÞorleifur Örn
Arnarsson leikstjóri
Sólveig Arnars-
dóttir leikkona
Bogi Eggertsson verkstj. í Rvík
Þórhildur Þorleifsdóttir
leikstjóri og fyrrv.
leikhússtj. og alþm.
Eggert Haukdal
oddviti og alþm. á
Bergþórshvoli
Benedikta Eggertsdóttir húsfr. í Flatey og á Bergþórshvoli
Sigurður Sveinbjörnsson
forstjóri í Garðabæ Sveinbjörn Kristjánsson byggingameistari í Rvík
Bergþóra Jóelsdóttir kaupm. í Rvík
Rósa Sigríður
kennari, dóttir Eggerts Benediktssonar alþm. í Laugardælum
Bergur Sigurðsson
kennari á Siglufirði
og í Rvík
Guðrún Bergsdóttir
húsfr. í Rvík
Þorleifur Guðmundsson
fasteigna og verðbréfasali í Rvík
Sigmunda Katrín Jónsdóttir
húsfr.á Hróastöðum
Guðmundur Jónasson
b. á Hróastöðum og
Ferjubakka í Öxarfjarðarhr.
Úr frændgarði Baldvins Þórs Bergssonar
Bergur Þorleifsson
fyrrv. hafnarstj. í Rvík, búsettur í Kópavogi
Göngumaðurinn Baldvin á fjöllum.
ÍSLENDINGAR 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Full búð af
fallegum sundfötum
Hörður Þórhallsson fæddist5.7. 1916. Foreldrar hansvoru Þórhallur Árnason
sellóleikari og Abelína Gunnars-
dóttir, Einarssonar, Ásmundssonar í
Nesi.
Hörður var alinn upp í kaþólskum
sið og var tengdur sterkum böndum
söfnuðinum hér á landi. Afi hans,
Gunnar Einarsson, mun hafa verið
fyrsti Íslendingurinn sem tók kaþ-
ólska trú eftir lát Jóns Arasonar.
Hörður las viðskiptafræði í
Þýskalandi, Frakklandi og Íslandi
og útskrifaðist úr þeirri grein 1940.
Hann starfaði meðal annars hjá
Landsbankanum og Almenna
byggingarfélagi Reykjavíkur. Hann
ritstýrði blaði sjálfstæðismanna
Vogum um tíma.
Hörður var víðlesinn í bók-
menntum og talaði fjölda tungumála
sem endurspeglast í einu ljóðabók
hans, Söngvar frá Sælundi sem kom
út 1947. Hann vildi helst kynnast
verkunum sem hann las á frummál-
inu og gat hann víst klórað sig fram
úr 12 tungumálum. Ljóðmælandinn
er heimspekilega þenkjandi og
greina má heimsádeilu. Mörg
ljóðanna eru rómantísk ættjarðar-
kvæði sem vísa til fornfrægrar sögu
landsins. Fjallkonan birtist sem hin
allt umlykjandi móðir náttúra. Ljóð
Harðar eru formföst, unnið er úr
arfinum og skipar goðafræðin vega-
mikinn sess. Náttúrufyrirbæri á
borð við regnið, hafið og fjöllin eru
persónugerð með sterkri vísun til
goðanna og örlaga þeirra og gætir
nokkurrar feigðar. Nokkur ljóðanna
eru óhefðbundin nútímaljóð. Samin
hafa verið nokkur lög við ljóðin en
hafa ekki oft verið flutt.
Titill ljóðabókarinnar vísar í heiti
hússins sem þau hjónin bjuggu í.
Fleiri ljóð hefðu eflaust litið dagsins
ljós ef hans hefði notið lengur við.
Hörður kvæntist Guðrúnu Þór og
eignuðust þau fimm börn, Gunnar,
Helgu, Hildi, Hrafn Andrés og
Huldu.
Hörður Þórhallsson lést 17.12.
1959.
Merkir Íslendingar
Hörður
Þórhallsson
85 ára
Jenný S. Þorsteinsdóttir
Sverrir Sveinsson
Unnur I. Þórðardóttir
80 ára
Guðlaugur Guðmundsson
Halldór V. Andrésson
Iðunn Elíasdóttir
Kristbjörg Rúna Ólafsdóttir
Þórunn Oddsteinsdóttir
75 ára
Bjarni Árnason
Guðbjörg Conner
Guðjón Helgason
Ingibergur D. Hraundal
Ívar Ketilsson
Mary Kristín Coiner
Reynir Martensen
Sigurður Marz Björnsson
70 ára
Auður G. Sigurðardóttir
Birgir Símonarson
Edda M. Halldórsdóttir
Erna Friðfinnsdóttir
Eyjólfur Kristófersson
Guðbjörg Magnúsdóttir
Magnús Sigurður Jónasson
Sólveig Jóhannsdóttir
60 ára
Guðlaugur Kristjánsson
Guðmundur Sigurjónsson
Guðrún Guðmunda Gröndal
Ingjaldur Ragnarsson
Karólína Guðjónsdóttir
Magnús Jónsson
Már Kristjánsson
Ólöf Guðrún Jónsdóttir
Sigurdís J. Hauksdóttir
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson
50 ára
Axel Örn Rafnsson
Guðmundur Sveinsson
Guðrún Mary Ólafsdóttir
Hafrún Inga Daníelsdóttir
Ingvi Óskarsson
Joanna M. Dominiak
Lára Gyða Bergsdóttir
Rosalba Ortiz Ordonez
Runólfur Þórhallsson
40 ára
Árni Kristján Guðmundsson
Baldvin Þór Bergsson
Bjarkey Sigurðardóttir
Elsa Eðvarðsdóttir
Elzbieta Stankiewicz
Eymundur Sigurðsson
Iwona Maria Gruba
Íris Eva Sigurgeirsdóttir
Ívar Helgason
Joanna Dolgan
Jón Ólafur Sigurjónsson
Júlía Jörgensen
Kristín Davíðsdóttir
Lilja G. Guðmundsdóttir
Mariusz Januszewicz
Michael Patrick Sheehan
Sigurborg Sóley
Snorradóttir
Styrmir Gíslason
Tómas Ingason
Þórhallur Sigurðsson
30 ára
Agnes Kristín Einarsdóttir
Egill Antonsson
Elí Harðarson
Ewelina B. Pstragowska
Friðrik Brynjar Friðriksson
Guðmundur Samúelsson
Haraldur Arnarson
Hildigunnur Katrínardóttir
Ilja Smals
Jóhannes Arnar Logason
Karolina Antoniak
María Björk Baldursdóttir
Sara Ósk Eiðsdóttir
Sæunn Pétursdóttir
Þóra Kjartansdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Sara er félagsliði
og nemur tanntækni.
Maki: Gunnar Óli Guð-
jónsson, f. 1984, verktaki.
Börn: Marinó Gauji, f.
2013; Karólína Rós, f.
2015. Stjúpdóttir: Liliana,
f. 2009.
Foreldrar: Íris Ösp Birgis-
dóttir, f. 1965, og Eiður
Th. Gunnlaugsson, f.
1959. Fósturfaðir: Kristján
Rafn Kristjánsson, f.
1959. Fósturmóðir: Eva
Zwitser, f. 1969.
Sara Ósk
Eiðsdóttir
30 ára Jóhannes fæddist
á Akranesi, býr í Kópa-
vogi, lauk leiðsögumanns-
prófi og er leiðsögu-
maður.
Maki: Petra Weidner, f.
1983, barnahjúkrunar-
fræðingur hjá Ási Styrkt-
arfélagi.
Foreldrar: Logi Arnar
Guðjónsson, f. 1951,
framkvæmdastjóri, og Jó-
hanna G. Jóhannesdóttir,
f. 1954, húsfreyja. Þau
búa í Kópavogi.
Jóhannes Arnar
Logason
30 ára Elí ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum við Sund og er
næturvörður hjá Alþingi.
Bróðir: Kjartan Harðar-
son, f. 1989, búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar: Þórunn Elí-
dóttir, f. 1958, kennari við
Hamraskóla, og Hörður
Kjartansson, f. 1961, hús-
vörður við Hrafnistu í
Reykjavík. Þau er búsett í
Reykjavík.
Elí
Harðarson