Morgunblaðið - 05.07.2018, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 05.07.2018, Blaðsíða 57
DÆGRADVÖL 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Nú er tími ævintýranna svo gríptu þau tækifæri sem gefast til að upplifa þau. Gefðu þér tíma til þess að íhuga málin og gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru. 20. apríl - 20. maí  Naut Leggðu hart að þér í vinnunni í dag, því þér getur orðið vel ágengt. Settu markið hátt og þá muntu ná miklum ár- angri. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert eitthvað eirðarlaus og ut- an við þig í dag og það getur hæglega leitt til misskilnings eða einhvers konar óhapps. Einhver er á höttunum eftir rifrildi. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefur svo margt á þinni könnu að þú þarft að gæta þess að lofa ekki upp í ermina á þér. Gerðu þér glaðan dag og bjóddu vini þínum út að borða. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hefur lagt hart að þér en munt nú uppskera árangur erfiðis þíns. Stundum kunna breytingar að vera nauðsynlegar breytinganna vegna. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er um að gera að grípa tæki- færin sem gefast og spila síðan eins vel úr þeim og frekast er unnt. Gerðu það fyrir skemmtanagildið, spennuna, ástina. 23. sept. - 22. okt.  Vog Margt er þér hagstætt um þessar mundir. Sýndu fólki fram á að þú hafir trú á því sem það er að gera og að þú viljir vinna með því. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er alltaf best að horfast í augu við raunveruleikann og haga orðum og gerðum í samræmi við hann. Svo er að spila rétt úr og gera sitt besta. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ef einhver hefur hæfileika til að heilla aðra upp úr skónum ert það þú. Mundu því að koma fram við aðra eins og þú vilt að þeir komi fram við þig. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú tekur hugsanlega upp á ein- hverju í dag sem vekur athygli yfirboðara á þér. Þótt áhugi þinn á vinnunni sé mikill er óþarfi að taka verkefnin með sér heim. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú þarft ekki að fyllast sekt- arkennd þótt þig langi til þess að draga þig í hlé og eiga stund fyrir þig. Minntu fólk ljúflega á það. 19. feb. - 20. mars Fiskar Nú er komið að því að þú verður að setjast niður með fjölskyldunni og ræða þau mál sem hafa komið upp en verið látin danka. Ólafur Stefánsson yrkir veður-vísu, – „gagaraljóð, þrælbund- ið, í anda Bjarna Gissurarsonar í Þingmúla (sautjánda öld ): Vond er þessi vætutíð, vart neitt þurrt og útlit svart. Skondin vessin skamma hríð, skarta’ en burtu feykjast snart. Bjarni var eitt af austfirsku skáldunum. Í Menntaskólanum á Akureyri lásum við kvæðið „Um samlíking sólarinnar“ undir leið- sögn Gísla Jónssonar. Síðan hef ég aldrei getað gleymt viðlaginu, svo fallegt er það, hreint og tært: Hvað er betra en sólarsýn, þá sveimar hún yfir stjörnurann? Hún vermir, hún skín og hýrt gleður mann. „Um heilbrigt húsgangsfólk“ er eitt kvæða Bjarna og hátturinn gagaraljóð þrælbundið. Ég tek fjórar vísur þar sem kvæðið er of langt til að birta það í heild: Heyin túna hjá oss öll hríðum mæta fyrr og síð, slegin krúna væn um völl víða blotnar þessa tíð. Nokkru síðar er þessi staka: Baggaþjóðin bragðafull ber nú þungt á hvörri mer kagga, skjóður, osta, ull; er að éta fisk og smér. Og lýkur svo: Letifólkið liggur samt, leikur sér með beinin keik, étur tólk og kjötið kramt, kveikir eld og vellir steik. Búa plágan sönn er sén, sjóðinn fylla letiblóð. Sú er þágan gefa ígen góðu fólki last og móð. Baldur Hafstað frændi minn sendi mér og sagðist hafa sett þetta á „sveitasímann“ áður en Ís- lendingarnir luku keppni í Rúss- landi. Því miður hafði það ekki til- ætluð áhrif: „Nú ríður á að hugsa jákvætt til strákanna okkar í Rússlandi. För- um með nöfn þeirra og látum hug- arorkuna berast í austurátt. Þeir munu finna kraftinn. Gylfi, Hannes, Aron Einar, Alfreð, Ragnar, Birkir Már, Emil, Birkir: brattir sveinar, Berg og Rúrik, Daði og Kár. Áfram Ísland, þeir eru snill- ingar. Lifið heil.“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Bjarna Gissurarsyni og strákunum okkar BALLI HAFÐI GAMAN AF BÍLTÚRUM – EN EKKI SÁLFRÆÐIBRELLUM. „NÁÐI ÞÉR!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hún mætir snemma. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann TAKK FYRIR! OSTURINN SEM ÉG VAR AÐ BORÐA VAR SEIGUR... OG ÞÁ FATTAÐI ÉG AÐ HANN VAR ENNÞÁ Í PLASTUMBÚÐUNUM! MJÖG FYNDIÐ VIÐ ÞÖKKUM FYRIR SAMVERUNA OG ÞENNAN LJÓMANDI GRÆNMETISRÉTT SEM HANN EDDI OKKAR ÚTBJÓ! TAKK FYRIR! TAKK FYRIR! TAKK FYRIR! TAKK FYRIR! TAKK FYRIR! ÉG ÆTLAÐI AÐ SEGJA „SORGLEGT“ Íslenska sumarveðrið lætur ekki aðsér hæða. Víkverji minnist þess ekki að hafa upplifað annað eins. Áhrifa „góðviðrisins“ gætir ekki síst á samfélagsmiðlunum, þar sem vinir Víkverja keppast við að birta mynd- ir af sér á einhverri sólarströndinni, og oftar en ekki er viðkvæðið að þarna hafi verið um „skyndi- ákvörðun“ að ræða. x x x Ber ekki á öðru en slíkar „skyndi-ákvarðanir“ séu farnar að verða æði algengar, þegar þeir kunningjar Víkverja sem helst bursta ekki tennurnar án þess að hafa gert ítar- legt plan fyrirfram eru farnir að panta sér sólarlandaferðir með eng- um fyrirvara – og setja svo minn- ingarnar beint á vefinn fyrir okkur hina, sem fastir eru á skerinu. x x x Í öllu falli er Víkverji ekki á leiðinnineitt í bráð, einfaldlega vegna þess að hann tímir því ekki. Engu að síður verður hann að játa að það hefur alveg smááhrif á hann þegar allar sólstrandarmyndirnar demb- ast yfir hann, þar sem nánast allir vinir og kunningjar Víkverja eru komnir með einhvern drykk í hönd þar sem munnurinn kemst varla að glerinu fyrir „sólhlífum“ og öðru skrauti. x x x Skýjaborgir þær sem Víkverjihefur reist í huganum af þess- um utanlandsferðum verða hins vegar frekar hjákátlegar þegar haft er í huga að hann veit fátt leiðin- legra sjálfur en að liggja kyrr á sendinni sólarströnd og bíða eftir að verða sólbrenndur í steikjandi hita. Raunar hryllir Víkverja eiginlega við tilhugsuninni, á sama tíma og hann skoðar hraðtilboð til útlanda. x x x Allavega veit Víkverji að fari hanntil útlanda er alveg eins líklegt að sú „skyndiákvörðun“ verði ekki tekin nema að mjög vel ígrunduðu og íhuguðu máli, og þá til lands þar sem hitastigið er ekki miklu meira en þær 15-20 gráður sem íslenska sumarið hefur hingað til skaffað Víkverja. vikverji@mbl.is Víkverji Kenn mér að gera vilja þinn því að þú ert Guð minn, þinn góði andi leiði mig um slétta braut. (Sálm: 143.10) Kynntu þér úrvalið hjá sérfræðingum okkar á rannsóknarsviði. Þar starfar fólk með mikla þekkingu og reynslu. VINNUR ÞÚ Á RANNSÓKNARSTOFU? Hjá Fastus færðu allar almennar rannsóknarvörur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.