Morgunblaðið - 21.07.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2018
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Pronto bolli og undirskál
Verð 3.580 kr.
„Hugmynd mín var að setja gamla
rauða litinn á húsið aftur. Fjöl-
skyldan var ekki sammála því og
málarinn minn hvatti mig til að
setja þennan lit á og ég gaf boltann
bara á hann. Síðan svaf ég lítið um
nóttina enda erum við fjölskyldan
búin að eiga þessi hús í 25 ár. Dag-
inn eftir sá ég litinn og fannst hann
einstaklega fallegur,“ segir Karl J.
Steingrímsson í Pelsinum, eigandi
gamla Naustsins við Vesturgötu í
Reykjavík.
Húsið er til leigu og býður upp á
þann möguleika að sögn Karls að
þar verði reknir tveir veitinga-
staðir, í gamla Naustskjallaranum
og Naustinu. Margir hafa gegnum
tíðina hringt og lýst yfir áhuga á
húsnæðinu.
„Við erum opin fyrir öllu en vilj-
um sjá þetta gerast rétt, fá réttu
leigjendurna. Við fjölskyldan höf-
um átt Vesturgötu 6-8, 10 og 10a í
25 ár og við viljum sjá þetta gerast
100% og fá örugga og trausta aðila
inn í húsið,“ segir hann.
jbe@mbl.is
Eigendur skipta um lit á húsunum sögufrægu við Vesturgötu í Reykjavík
Gamla
Naustið
antíkgrænt
Morgunblaðið/Valli
Naustið Geir Zöega athafnamaður reisti h úsin við Vesturgötu árið 1882. Í þeim var um fimmtíu ára skeið rekinn veitingastaðurinn Naustið.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Bændur hugsa til kollega sinna á
Norðurlöndunum. Það hafa verið
erfiðleikar í öllum Norðurlandaríkj-
unum, í suðurhluta Finnlands, Sví-
þjóðar og Noregs og eiginlega í allri
Danmörku, svo að bændur fara
kannski ekkert að smyrja neitt á
verðið með tilliti til þess,“ segir Sig-
urður Eyþórsson, framkvæmda-
stjóri Bændasamtakanna, um verð-
lagningu á íslensku heyi sem
bændur í Noregi og víðar vilja fá að
kaupa og flytja til síns heima.
Eins og áður hefur verið greint
frá hafa miklir þurrkar í Noregi sett
svip sinn á landbúnað þarlendis og
alvarlegur skortur er á fóðri fyrir
búfénað í landinu.
Mikið til af fyrningum
Sigurður segir heykaupin vera
raunhæfan möguleika og að ein-
hverjir íslenskir bændur séu aflögu-
færir. „Sumir eru það, það var mjög
góður heyfengur eiginlega alls stað-
ar á landinu í fyrra svo að margir
ættu að eiga verulegar fyrningar frá
sumrinu í fyrra. Núna er góður hey-
skapur á Norður- og Austurlandi.
Það hefur náttúrulega rignt mikið á
Suður- og Vesturlandi en það hefur
lagast síðustu daga þannig að fólk
hefur nú verið að ná sér á strik þar.
Það ætti að vera til nóg af nýju heyi
á Norður- og Austurlandi alla vega
og líka annars staðar eftir því hvern-
ig tíðin verður.“
Sigurður segir ekki viss um hvort
Norðmenn og Svíar hafi hug á að
nýta sér fyrningar frá síðasta ári.
„Mér er ekki ljóst enn þá hvað Norð-
menn og Svíar sem eru að leita eftir
heyi gera; hvort þeir geta nýtt sér
fyrningar frá fyrra ári eða hvort þeir
eru bara á höttunum eftir nýju heyi,
en það ætti að vera heilmikið til.“
Hey hefur í áraraðir verið flutt út
til Færeyja. „Í Færeyjum eru að-
stæður þannig að ekki er nægt land
til þess að fóðra búpeninginn. Þess
vegna hafa Færeyingar alltaf þurft
að kaupa hey og keypt mikið héðan,
þannig að við höfum langa reynslu af
útflutningi á heyi til Færeyja.“
Ekkert stórmál
Að sögn Sigurðar ætti í raun ekki
að vera mikið flóknara að flytja hey
til annarra Norðurlandaríkja.
„Landbúnaðurinn hér er sem betur
fer laus við flesta sjúkdóma þannig
að það einfaldar málin mikið. Það
sem þarf helst að gera er að fá fram
hvaða kröfur yfirvöld í hverju landi
gera. Svo þarf Matvælastofnun hér-
lendis að votta einstaka framleiðend-
ur sem vilja selja og þá er hægt að
sinna þessu í alvöru.“
Íslenskir bændur aflögufærir
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Landbúnaður Heyskapur hefur verið mjög góður á Norður- og Austurlandi og bændur eiga eflaust nóg af heyi.
Mikill fóðurskortur í Noregi Bændur finna til með kollegum sínum Íslendingar hafa reynslu af
útflutningi til Færeyja Ekki ætti að vera mikið flóknara að flytja hey til annarra Norðurlandaríkja
Makrílveiði fer afar vel af stað þetta
sumarið og hafa fyrstu skipin sem
siglt hafa út á miðin landað miklum
afla í þessari viku um sunnan- og
austanvert landið. Venus NS, skip
HB Granda, kom með 750 tonn af
makríl til hafnar í fyrradag. Sama
dag kom Vilhelm Þorsteinsson EA,
skip Samherja, til Neskaupstaðar
með 700 tonna afla upp úr sjó og þar
af 500 tonn af frystum makríl, segir á
vef Síldarvinnslunnar.
Kristján Þorvarðarson, skipstjóri
Venus NS, segir í samtali við
Morgunblaðið að 750 tonna aflinn
lofi góðu fyrir framhaldið. Fékkst
mesti fiskurinn suður úr Reynisdýpi.
„Nú er fiskurinn greinilega kominn,“
segir Kristján, en áður hafði skipið
tvisvar komið með 200 kílóa makríl-
afla að landi. Aðspurður segir hann
makrílinn vera um hálfum mánuði
seinna á ferðinni en í fyrra. Makríll-
inn sem fengist hefur er stór og fal-
legur, um 440 grömm. Auk þess
fylgir lítil sem engin síld með honum,
sem er gríðarlegur kostur, að sögn
Kristjáns.
Vel fiskast hjá Eyjamönnum
Hjá Vinnslustöðinni í Vestmanna-
eyjum eru skipin Kap VE og Ísleifur
VE komin á makrílveiðar. Landaði
Kap VE 250 tonnum af makríl á mið-
vikudaginn og 260 tonnum í gær. Ís-
leifur VE beið löndunar við bryggju
síðdegis í gær með 300 tonna afla af
makríl, greindi Óskar Örn Ólafsson
löndunarstjóri frá í samtali við
Morgunblaðið. axel@mbl.is
Upphaf makrílvertíðarinn-
ar lofar góðu fyrir sumarið
Veiði hafin á flestum makrílveiðiskipum Bjartsýni ríkir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vertíð Góður makríll hefur fengist
og fjölgar skipum ört á miðunum.