Morgunblaðið - 21.07.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2018
31. OKTÓBER – 14. NÓVEMBER
SUÐUR-AFRÍKA
FRAMANDI OG FÖGUR
15 daga ferð á slóðir spennandi menningar,
góðs matar og dýrindis veiga.
MIKIÐ INNIFALIÐ.
FRÁ 489.900 KR.
Verð á mann m.v. 2 fullorðna.
NÁNAR Á UU.IS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Leiðarljós okkar er að efnis-skrá og andblær stofu-tónleikanna sé í anda þessmenningarheimilis sem
hér var í tíð Halldór Laxnes og Auð-
ar. Hingað komu fyrr á tíð gjarnan
erlendir tónlistarmenn í heimsóknir
og varla leið sá dagur að Halldór
settist ekki við flygilinn og léki eitt-
hvað, þá gjarnan Bach sem hann
dáði mjög. Það var hans rútína.
Þetta er stemning og menning sem
við viljum halda í,“ segir Valdís Þor-
kelsdóttir, tónleikarahaldari á
Gljúfrasteini
Hamrahlíðarkórinn undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur held-
ur tónleika á Gljúfrasteini – húsi
skáldsins í Mosfellsdal á morgun,
sunnudaginn 22. júlí, kl. 16. Á efnis-
skránni eru lög eftir Jóhann G. Jó-
hannsson, Jón Þórarinsson, Gunnar
Reyni Sveinsson og Atla Heimi
Sveinsson við ljóð Halldórs Laxness.
Kórinn undirbýr nú ferð til Tallinn í
Eistlandi á virtustu og stærstu kó-
rahátíð Evrópu, Europa Cantat. Það
verður í 13. skipti sem Hamrahlíð-
arkórinn tekur þátt í hátíðinni, alltaf
með nýju og ungu söngfólki, en kór-
inn hefur alltaf verið í fremstu röð
og leiðandi í tónlistarlífi Íslendinga.
Góður andi í stofunni
Stofutónleikar hafa verið haldn-
ir á Gljúfrasteini á hverjum sunnu-
degi yfir sumarið í áraraðir. Sígild
tónlist hefur þar jafnan verið áber-
andi og margir góðir listamenn kom-
ið fram. „Við sjáum gjarnan sama
fólkið mæta aftur og aftur og svo
bætast auðvitað alltaf fleiri við. Það
er líka einstaklega góður andi í stof-
unni hér. Þegar fólk sest niður í stof-
unni í húsi skáldsins; og horfir út um
gluggann á sundlaugina við húsið og
Grímannsfellið er eins og notaleg til-
finning færist yfir allt og alla. Og
það er ekki bara að gestum líki stað-
urinn; meðal tónlistarmanna er eft-
irsótt að koma hér fram,“ segir Val-
dís sem ólst upp í Mosfellsdalnum,
dóttir Þorkels Jóelssonar hornleik-
ara og Diddúar, Sigrúnar Hjálmtýs-
dóttir söngkonu.
„Ég man vel eftir Halldóri Lax-
ness hér í sveitinni og afabarn hans,
Dóri DNA, er æskuvinur minn og
með honum kom ég stundum að
Gljúfrasteini. Þá voru Auður Lax-
ness og móðir mín góða vinkonur svo
tengslin milli fjölskyldnanna eru
sterk. Því ætlar móðir mín á tón-
leikum sem hér verða á sunnudaginn
eftir viku, 29. júlí, að segja frá kynn-
um sínum við þessa góðu nágranna
jafnframt því sem hún syngur nokk-
ur lög,“ segir Valdís sem hefur lesið
öll helstu verk Laxness. Segir þau
höfða sterkt til sín, þá vissulega
hvert með sínu móti.
Í túninu heima
„Auðvitað hreyfa verk Laxness
við fólki með ólíkum hætti. Þannig
er með allar bókmenntir. Ég var bú-
sett erlendis og haldin sterkri
heimþrá þegar ég las Para-
dísarheimt. Við þær aðstæður greip
skáldsagan mig mjög sterkum tök-
um. Og þar sem ég er héðan úr Mos-
fellsdalnum þá finnst mér gaman að
endurminningabókunum Í túninu
heima og Innansveitarkróníku, enda
þekki ég alla staðhætti og sögurnar
eru fullar af húmor,“ segir Valdís
Þorkelsdóttir að síðustu.
Sungið á menningarheimili
Stofutónleikar á Gljúfrasteini eru haldnir alla
sunnudaga sumarsins og njóta vinsælda. Nú er
komin röðin að Hamrahlíðarkórnum sem syngur
lög ýmissa lagahöfunda við ljóð Laxness.
Ljósmynd/Aðsend
Hamrahlíðarkór Mörg tónskáld hafa samið lög við ljóð Halldórs Laxness og þau ætlar kórinn að syngja á sunnudag.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Tónleikahaldari „Það er líka einstaklega góður andi í stofunni hér,“ segir
Valdís Þorkelsdóttir sem er úr Mosfellsdanum og man Nóbelsskáldið vel.
Tónlist, dans, leiklist, beatbox-
kennsla, sirkuskennsla, jóga, fönd-
ur, töframaður, skemmtiatriði,
nudd, ritlist, ungbarnasvæði og
margt fleira verður í boði fyrir fjöl-
skylduna í hjarta borgarinnar síð-
asta sunnudaginn í júlí. Þetta er
barna- og fjölskylduhátíðin Kátt á
Klambra sem nú er efnt til í þriðja
sinn. Í fyrra komu um 3.000 manns,
börn og fullorðnir, á Klambratún til
að taka þátt í hátíðarhöldunum og
búist er við því að gestafjöldi aukist
verulega í ár.
Hugmyndir að hátíðinni eru sótt-
ar frá sambærilegum hátíðum sem
haldnar hafa verið í Skandinavíu og
notið mikilla vinsælda. „Í Osló er á
ári hverju haldin svona hátíð og við
höfum haft hana að nokkru leyti
sem fyrirmynd. Dagskráin stendur
allan daginn og svo lýkur þessu með
tónleikum síðdegis. Allir eiga að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi,“
segir Hildur Soffía Vignisdóttir sem
er einn af skipuleggjendum þessa
viðburðar.
Markmiðið er, segir Hildur Soffía,
að bjóða börnum og fullorðnum upp
á skemmtun og fróðleik á grænu
svæði í Reykjavík með fjölbreyttum
menningar- og listaviðburðum.
Svæðið er einnig hannað út frá þörf-
um barna og ungbarna, en boðið
verður upp á skiptiaðstöðu, svæði til
brjóstagjafar í næði, ungbarnanudd
og svo má lengi telja. Meðal við-
burða verður sirkuskennsla, beat-
boxkennsla, Emmsjé Gauti, graffiti-
kennsla, Vera og Vatnið, Jói Pé og
Króli, ævintýri í Sparilandi, skák-
kennsla, sögukeppni, töframaður,
Spaðabani, dans af ýmsu tagi, jóga,
föndur, tattú, Ronja Ræningjadóttir,
Þorri og Þura, ritlistarsmiðja, and-
litsmálning, ljóðalestur og margt
fleira.
Öll afþreying er innifalin í miða-
verðinu og kostar miðinn litlar 1.500
krónur og séu fjórir miðar keyptir
gerir það 5.000 krónur. Frítt er fyrir
3ja ára og yngri.
Barna- og fjölskylduhátíðin Kátt á Klambra verður 29. júlí
Góð hátíð á grænu svæði
Trúðurinn Sá leikur listir sínar.
Klambratún Eftirvænting og gleði í augum barnanna sem mættu í fyrra.
22. júlí Hamrahlíðarkórinn und-
ir stjórn Þorgerðar Ingólfs-
dóttur flytur lög við ljóð Hall-
dórs Laxness.
29. júlí Diddú heiðrar minningu
Auðar Laxness, húsfreyjunnar á
Gljúfrasteini, í tilefni af 100 ára
afmæli hennar. Undirleikur
Helga Bryndísar Magnúsdóttur.
5. ágúst Vísur og skvísur flytja
íslensk og skandinavísk vísna-
lög þar sem texti og tilfinning
mæta hljómþýðum laglínum.
12. ágúst Strákarnir í Polla-
pönki með barnaskemmtun.
19. ágúst Bryndís Halla leikur
sellósvítur J.S. Bach.
26. ágúst Bjarni Frímann
Bjarnason blaðar í nótnasafni
Halldórs Laxness og flytur úrval
verka á flygil skáldsins.
Tónleikarnir hefjast alltaf kl.
16 á sunnudögum.
Fjölbreytt
dagskrá
SUNNUDAGSTÓNLEIKAR