Morgunblaðið - 21.07.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2018
„Tréð var fyrir á athafnasvæðinu á
Landsímareitnum, það var frekar
sársaukalaust að fella það því þetta
er alaskaösp og hún hefði hvort sem
er ekki fengið að standa þarna til
framtíðar,“ segir Þórólfur Jónsson,
garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar,
í samtali við Morgunblaðið.
„Þetta er ekki tré sem við teljum
að hefði hentað þarna og þetta var
ekki eitt af gömlu trjánum, ég giska
á að hún gæti hafa verið um það bil
þrjátíu ára. Það er lítið orðið eftir af
gömlu trjánum, það er bara silfur-
reynirinn, svo eru hlynir sem standa
þarna og sóma sér vel sem og reyni-
tré en þau verða öll áfram,“ segir
Þórólfur.
Alaskaösp henti illa á þessum
stað, í henni sé mjög kraftmikill
vöxtur og ræturnar geti orðið mjög
fljótt til vandræða í miklu þéttbýli
og innan um gömul hús, stéttir og
gamlar lagnir. Þórólfur giskar á að
hún hafi verið orðin um sex til sjö
metrar að hæð. „Hún var orðin úr
takti við lágreist hús, við erum hætt
að planta alaskaöspum í þröngri og
lágri byggð. Aspir eru alveg frábær-
ar við erfið skilyrði því þetta er svo
dugleg trjátegund og veðurþolin, en
hún hentar ekki alls staðar. Það þarf
að gæta sín á henni út af vextinum
og rótunum, það þarf réttar að-
stæður og réttan frágang í kringum
hana.“ ernayr@mbl.is
Tré víkur fyrir fram-
kvæmdum í Víkurgarði
Morgunblaðið/Hari
Felld Alaskaöspin í Fógetagarðinum, eða gamla Víkurgarði, þar sem framkvæmdir eru við hótelbyggingu.
Reykjavíkurborg lét fella sex til sjö metra Alaskaösp
Rifið Niðurrif á Landssímareitnum
í miðborginni er langt komið.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Ég er áhugasamur um að næsti
forseti Alþýðusambands Íslands
komi úr grasrót launþegahreyfing-
arinnar. Sá eða sú þarf að eiga bak-
land sitt meðal almenns launafólks,
þess fólks sem við þurfum helst að
berjast fyrir,“ segir Aðalsteinn Árni
Baldursson, formaður Framsýnar –
stéttarfélags á Húsavík. Framundan
eru kosningar um nýja forystu í
ASÍ, en Gylfi Arnbjörnsson, forseti
sambandsins til tíu ára, gefur ekki
kost á sér til endurkjörs á ársfundi í
haust. Sverrir Mar Albertsson,
framkvæmdastjóri Afls – starfs-
greinafélags á Austurlandi, hefur
þegar tilkynnt framboð en reikna
má með að fleiri stígi fram á næstu
vikum.
Meiri þungi í baráttunni
„Það hafa lengi verið væringar í
verkalýðshreyfingunni og lengi vor-
um við Vilhjálmur Birgisson á Akra-
nesi helstu talsmenn breytinga. Við
viljum að verkalýðshreyfingin sé
gagnrýnni en nú í baráttu sinni og
leggi þunga sinn í að berjast fyrir
hækkun lægstu launa. Margnefnd
300 þúsund króna lágmarkslaun
koma aldrei fyrr en eftir sex mánaða
starf,“ sagði Aðalsteinn þegar
Morgunblaðið hitti hann nyrðra á
dögunum.
Aðalsteinn segir meiri þunga vera
kominn í verkalýðsbaráttuna nú
með nýju fólki í forystu VR og Efl-
ingar. Samanlagt vægi þessara fé-
laga svo og Verkalýðsfélags Akra-
ness og Framsýnar innan ASÍ sé
alls 53%. Félögin séu því í færum til
að gera stóra hluti á ársfundi sam-
bandsins í haust. Draumur sinn sé
að forseti ASÍ verði í framtíðinni
kjörinn í almennum rafrænum kosn-
ingum sem allir félagsmenn aðild-
arfélaga ASÍ gætu tekið þátt í. Tím-
inn til að koma þessu í framkvæmd
fyrir ársfundinn í haust sé of
skammur en svona verði þetta von-
andi í framtíðinni.
„Við þurfum að vera grimm í bar-
áttunni. Launamunur er orðinn allt-
of mikill; það er milli æðstu embætt-
ismanna og forstjóra og svo almenns
launafólks. Ef við náum sanngjörn-
um kröfum okkar um hækkun
lægstu launa ekki í gegn förum við í
skærur,“ segir Aðalsteinn og heldur
áfram:
Lítið mál að lama landið
„Ferðaþjónustan á að bjarga öllu
á Íslandi, en í þeirri grein eru oft
greidd mjög lág laun. Þar verðum
við að beita okkur af hörku og þar
kæmi til greina að loka aðgengi til
og frá flugstöðinni á Keflavíkurflug-
velli. Það er lítið mál að lama land-
ið,“ segir Aðalsteinn sem aftekur að
gefa kost á sér til embættis forseta
ASÍ, þrátt fyrir að vera oft nefndur í
því sambandi.
„Það hafa margir skorað á mig og
þá einkum alþýðan; fólk sem t.d.
vinnur í fiski og almennum iðnaðar-
og þjónustustörfum. Þar er líka bak-
grunnur minn; ég vann við fisk-
vinnslu frá því fyrir fermingu og þar
til ég tók við formennsku í verka-
lýðsfélaginu hér á Húsavík 1994, þá
33 ára. Á þeim 24 árum sem síðan
eru liðin hefur Framsýn eflst og er í
dag öflugt, áhrifamikið og vel rekið
stéttarfélag. Ég ætla því að halda
áfram hér á Húsavík, þó að forystu-
störf á landsvísu hafi óneitanlega
freistað á tímabili,“ segir Aðalsteinn
Árni Baldursson að síðustu.
Við þurfum
grimma baráttu
Aftekur framboð til forseta ASÍ
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Húsavík Aðalsteinn Árni hefur
lengi unnið að verkalýðsmálum.
Landsréttur staðfesti í gær úrskurð
Héraðsdóms Reykjaness um að er-
lendur maður, sem framvísaði föls-
uðu vegabréfi við komuna til lands-
ins, sæti gæsluvarðhaldi til 24. júlí.
Í úrskurði héraðsdóms kemur
fram að lögreglu hefur ekki tekist að
upplýsa með fullri vissu hver mað-
urinn er.
Eftir að maðurinn var handtekinn
gaf hann upp nafn og þjóðerni. Hann
sagðist hafa sótt um hæli í Bretlandi
í fyrrahaust en þar hefði enginn vilj-
að hjálpa honum.
Í frekari yfirheyrslu neitaði mað-
urinn að tjá sig um sakarefnið eða
vegabréfið sem hann framvísaði. Þá
kemur fram í úrskurði héraðsdóms
að ógjörningur virðist að taka af
manninum fingraför í þágu rann-
sóknar málsins.
Segir í úrskurðinum að rannsókn
málsins sé í fullum gangi. Til standi
að taka ítarlegri skýrslu af mann-
inum auk þess sem rannsaka þurfi
nánar ferðaleið hans hingað til lands
og aðdraganda ferðar hans, sögu
hans hjá erlendum ríkjum og lög-
gæslustofnunum og önnur atriði.
Morgunblaðið/RAX
Landsréttur Húsnæði Landsréttar við Vesturvör í Kópavogi.
Lögregla veit ekki
hver maðurinn er