Morgunblaðið - 21.07.2018, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2018
mars 2018 til 11.
júlí 2018 og
EFLA vann
minnisblaðið upp
úr gögnunum.
Sjálfvirkur
mælir Umhverf-
isstofnunar á Ak-
ureyri er stað-
settur við
menningarhúsið
Hof við Strand-
götu, á milli hafnarinnar og miðbæj-
ar Akureyrar, þó nær miðbænum.
Hann er staðsettur í um tveggja
metra hæð frá jörðu og er um að
ræða símælingu á svifryki (<PM10),
brennisteinsdíoxíði (SO2), niturmó-
noxíði (NO) og niturdíoxíði (NO2).
Hægt er að sjá niðurstöður mæl-
inga í rauntíma á heimasíðu Um-
hverfisstofnunar.
Fram kemur í minnisblaðinu að
frá miðjum febrúar til 11. júlí fór sól-
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Mælingar Umhverfisstofnunar við
Strandgötu á Akureyri fyrstu rúm-
lega sex mánuði ársins 2018 sýna að
áhrif útblásturs af völdum skemmti-
ferðaskipa í miðbæ Akureyrar voru
mjög lítil og vart merkjanleg, utan
við örfáa toppa sem voru þó allir vel
undir heilsuverndarmörkum.
„Af þessum niðurstöðum er þó
hægt að draga þá ályktun að útblást-
ur svifryks, niturdíoxíðs og brenni-
steinsdíoxíðs frá skemmtiferðaskip-
um hafi ekki haft heilsufarsleg áhrif
á fólk í miðbæ Akureyrar eða allra
næsta nágrenni á umræddu mæli-
tímabili,“ segir m.a. í minnisblaði
verkfræðistofunnar EFLU um nið-
urstöðu mælinga Umhverfisstofnun-
ar, sem unnið var fyrir Hafnarsam-
lag Norðurlands. Umhverfisstofnun
tók saman niðurstöður mælinga frá
arhringsmeðaltal svifryks (PM10) níu
sinnum yfir heilsuverndarmörk.
Seinast gerðist það 12. apríl og því
ekki hægt að tengja þessa sérstöku
háu toppa við útblástur frá skemmti-
ferðaskipum, enda kom ekkert skip
svo snemma árs.
Í minnisblaðinu kemur fram að á
tímabilinu hefur styrkur niturdíox-
íðs (NO2) aldrei farið yfir heilsu-
verndarmörk og er vel undir þeim
mörkum allt tímabilið. Þá hefur
styrkur brennisteinsdíoxíðs (SO2)
verið mjög lítill og stöðugur á tíma-
bilinu og aldrei verið nálægt því að
fara yfir heilsuverndarmörk.
Lítill toppur mældist þó 3. júní.
Þann dag var í höfn skemmtiferða-
skip sem var smíðað árið 1972 og
gæti gamall vélbúnaður og hönnun
mögulega hafa orsakað þennan topp
sem þó var langt undir heilsuvernd-
armörkum, segir m.a. í minnis-
blaðinu.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Risaskip í höfn MSC Meraviglia lagðist að bryggju á Akureyri í maí sl. Þetta er stærsta skemmtiferðaskip sem nokkurn tíma hefur komið til Íslands.
Áhrifin vart merkjanleg
Mælingar sýna að útblástur frá skemmtiferðaskipum
hefur ekki haft heilsufarsleg áhrif á fólk í miðbæ Akureyrar
Pétur
Ólafsson
„Það er ánægjulegt að hafa loks
tölur frá fagaðilum sem ná yfir
lengri tíma um það hvort um
mikla mengun frá skemmti-
ferðaskipum sé að ræða,“ segir
Pétur Ólafsson, hafnarstjóri á
Akureyri og formaður samtak-
anna Cruise Iceland.
„Mikil þróun er innan iðn-
aðarins varðandi þessi mál og
eru skip að koma á markaðinn
sem m.a. verða knúin LNG, eða
náttúrugasi. Eitt slíkt skip mun
m.a. sigla við Ísland næsta
sumar,“ segir Pétur.
Nú eru mörg skip í smíðum
víðs vegar um heiminn sem
knúin verða náttúrugasi.
Mikil þróun
er í greininni
PÉTUR ÓLAFSSON
Ráðstefna um bálkakeðjur, hátækni
og nýsköpun verður í Hörpu mánu-
daginn 23. júlí frá klukkan 9 til
12.30.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, setur ráðstefnuna. Fyrirles-
arar eru bæði erlendir og íslenskir,
þeirra á meðal er Ólafur Ragnar
Grímsson, fyrrverandi forseti Ís-
lands.
Ráðstefna um
bálkakeðjur
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi, Akureyri | ) 588 0640 | casa.is
Cuero Mariposa
Hannaður árið 1938 af:
Bonet, Kurchan & Ferrari
Leður stóll verð 149.000,-
Leður púði verð 13.900,-
Skútustaðahreppur hefur fengið
undanþágu frá ákvæðum um grann-
svæði vatnsverndarsvæða svo heim-
ila megi landeigendum að koma upp
salernisaðstöðu og bílastæðum við
Grjótagjá.
Vegna slæmrar umgengni gesta í
hellinum ákváðu landeigendur fyrr í
mánuðinum að loka fyrir hinn vin-
sæla baðstað Kvennagjá þar til leyfi
fengist fyrir salernisaðstöðu ásamt
því að færa bílastæði fjær gjánni.
Í samtali við mbl.is í gær sagði
Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri
Skútustaðahrepps, að sveitarfélagið
gæti nú staðfest deiliskipulag og
landeigendur hafist handa við að
hanna mannvirki og annað.
Ekki er ljóst hvort Kvennagjá
verður opnuð að nýju í sumar þar
sem endanleg samþykkt skipulags-
ins fer ekki fram fyrr en í ágúst.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Grjótagjá Baðlauginni var lokað
fyrr í júlí vegna slæmrar umgengni.
Fá að setja
salerni við
Grjótagjá
Fengu undanþágu
frá ráðuneytinu
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Hrókurinn og Kalak, vinafélag Ís-
lands og Grænlands, bjóða í opið
hús í Pakkhúsi Hróksins, Geirsgötu
11 við Reykjavíkurhöfn, í dag.
Tilefnið er að 15 ár eru frá því
að starf Hróksliða hófst á Græn-
landi, en félagið hefur skipulagt
hátt í 70 ferðir og hátíðir hjá vin-
unum á Grænlandi frá því að Hrók-
urinn hélt fyrsta skákmót í sögu
Grænlands árið 2003.
Hrókurinn hefur einnig tekið
þátt í fjölmörgum samfélagsverk-
efnum á Grænlandi með kjörorð
sitt að leiðarljósi: „Við erum ein
fjölskylda.“
Í Pakkhúsinu verður sagt frá há-
tíðum á Austur-Grænlandi 2.-7.
ágúst og í Kullorsuaq á Vestur-
Grænlandi í september. Þá verða
til sýnis ljósmyndir og listmunir frá
Grænlandi og úr sögu Hróksins.
Hátíðarhöldin munu standa yfir frá
klukkan tvö til klukkan fjögur í
dag. Öllum sem vilja er velkomið
að taka þátt og verða veitingar í
boði hússins.
Ljósmynd/Hrókurinn
Meistaramót Frá meistaramóti Hróksins í Nuuk á Grænlandi í júní.
Fagna 15 árum
Hrókurinn á Grænlandi frá árinu
2003 Bjóða til hátíðarhalda í dag