Morgunblaðið - 21.07.2018, Qupperneq 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2018
Glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Vandaður matseðill og hlýlegt umhverfi.
Pantaðu borð í síma 483 4700 eða á hverrestaurant.is
Guðrún Kvaran,prófessor em-eritus, á 75 ára af-
mæli í dag. Hún var pró-
fessor hjá Orðabók
Háskóla Íslands og orð-
fræðisviði hjá Stofnun
Árna Magnússonar í ís-
lenskum fræðum og einn-
ig prófessor við Háskóla
Íslands. Sem prófessor
emeritus sinnir hún Ís-
lenskri málnefnd. Svo er
hún forseti Hins íslenska
þjóðvinafélags auk þess
sem hún sinnir eigin
rannsóknum.
„Ég er að rannsaka
tökuorð, aðallega dönsk
tökuorð og miða við árið
1800 en þá fer að berast
mikið af varningi til
landsins. Ég er einnig
alltaf að færa inn ný
mannanöfn sem eru sam-
þykkt af mannanafna-
nefnd og viðhalda nafna-
grunninum mínum,“ en
Guðrún sendi frá sér bókina Nöfn Íslendinga og uppfærir hana á hverju
ári á vefsíðunni Snara.is. „Þetta eru um 100 nýjar færslur á ári, þá bæði
ný nöfn og einnig hliðarmyndir og nýr ritháttur eldri nafna sem þarf að
færa inn.“ Auk þess að sinna rannsóknum hefur Guðrún gaman af því
að fara í gönguferðir, bæði innanlands og erlendis.
Guðrún tekur á móti sínum allra nánustu í kaffi í dag en svo er hún
rokin til Montréal í Kanada, en hún hefur ekki komið til Kanada áður.
„Þetta er ekki afmælisferðin, maðurinn minn er að fara á ráðstefnu í
Montréal. Ég er búin að fara í afmælisferðina, fór til Ástralíu í lok
febrúar og byrjun mars. Það var alveg stórkostleg ferð, við fórum til
Sydney og Melbourne en langskemmtilegast fannst mér að fara inn í
eyðimörkina, sjá Ayers Rock, sem kallast einnig Uluru, og kynnast
menningu þeirra sem byggðu Ástralíu fyrstir.“
Eiginmaður Guðrúnar er Jakob Yngvason, prófessor emeritus, en
hann var lengi prófessor í eðlisfræði við Vínarháskólann og vinnur þar
enn. Börn þeirra eru Böðvar Yngvi, MA í heimspeki og er að skrifa MA-
ritgerð í þýðingarfræðum, og Steinunn Helga sem lærði alþjóðlega
þróunarfræði og vinnur hjá UNICEF hér á landi, áður í Kambódíu.
Fræðimaðurinn Guðrún rannsakar gömul
tökuorð og uppfærir nafnagrunninn sinn
reglulega á netinu.
Fór í afmælisferð til
Ástralíu fyrr á árinu
Guðrún Kvaran er 75 ára í dag
R
agnheiður Jónsdóttir
fæddist í Reykjavík
21.7. 1933 en ólst upp í
Norður-Nýjabæ í
Þykkvabæ. Hún fór 14
ára í Gagnfræðaskóla Austurbæjar
en kom alltaf heim í sveitina, strax að
prófum loknum: „Þá var gjarnan get-
ið um útskriftir og hæstu einkunnir í
fjölmiðlum og eftir að ég kom austur
lásum við í Tímanum að ég hefði
fengið hæstu einkunn sem gefin hefði
verið í Austurbæjarskólanum frá
stofnun, í 22 ár. Þetta þóttu tíðindi í
Þykkvabænum. Síðar dúxaði ég á
gagnfræðaprófi og á stúdentsprófi
frá VÍ.“
Ragnheiður lauk stúdentsprófi frá
VÍ 1954, stundaði myndlistarnám við
Myndlistarskólann í Reykjavík 1959-
60 og 1964-68, hjá Askov Jensen/
Glyptotekið í Kaupmannahöfn 1962,
við Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands 1968-70 og í Atelier 17 í París
hjá S.W. Hayter 1970.
Ragnheiður hefur haldið yfir 30
einkasýningar og tekið þátt í um 200
samsýningum, víðsvegar um heim.
Ragnheiður sat í stjórn félagsins
Íslensk grafík 1971-73 og í stjórn
FÍM 1972-77. Hún hefur holtið fjölda
verðlauna og viðurkenninga, s.s. The
5th International Print Biennale, í
Crakow í Póllandi, 1974; The 4th Int-
ernational Exhibition of Graphic Art,
í Frechen í Þýskalandi, 1976; La Bie-
nal de IBIZA, á Ibiza á Spáni, 1978;
Ragnheiður Jónsdóttir myndlistarmaður – 85 ára
Ljósmynd/Jyllandsposten 1985
Við pressuna Þessi mynd birtist af Ragnheiði með löngu viðtali við hana í Jyllandsposten Kult og kunst, árið 1985.
Margverðlaunuð fyrir
list sína víða um heim
Ekki bítlahljómsveit Þorvar, Hafsteinn, Tindur, Jón Óskar og Hringur.
Reykjavík Sólrún
Lea Friðriksdóttir
fæddist 4. október
2017 kl. 22.33. Hún
vó 4.910 g og var 54
cm að lengd. For-
eldrar hennar eru
Eva Sól Jakobs-
dóttir og Friðrik
Karlsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is