Morgunblaðið - 21.07.2018, Qupperneq 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2018
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Heiðnar grafir í nýju ljósi
– sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð
Iben West og Else Ploug Isaksen – Augnhljóð í Myndasal
Nanna Bisp Büchert – Annarskonar fjölskyldumyndir á Vegg
Prýðileg reiðtygi í Bogasal
Leitin að klaustrunum í Horni
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið alla daga 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga 10-17
LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR – 18.7 - 16.12.2018
Sýningin Lífsblómið fjallar um Ísland sem fullvalda ríki. Hún fjallar um það hversu dýrmætt en um
leið viðkvæmt fullveldið er. Að sýningunni standa Listasafn Íslands, Stofnun Árna Magnússonar
og Þjóðskjalasafn Íslands. Handrit, skjöl og myndlistaverk frá þessum stofnunum mynda
kjarnann í sýningunni, og eru verk eftir fremstu listamenn þjóðarinnar til sýnis.
ÝMISSA KVIKINDA LÍKI - ÍSLENSK GRAFÍK – 11.5. - 23.9.2018
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign – 7.4.2017 - 31.12.2019
BÓKFELL Eftir Steinu í Vasulka-stofu 18.5 - 31.12 2018
SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga frá kl. 10-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON
21.10.2017 - 7.10.2018
SUMARTÓNLEIKAR Í LISTASAFNI SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
24.7.2018 - kl. 20:30 - 21:30
Björg Brjánsdóttir flautuleikari og Jane Ade Sutarjo píanóleikari.
Sónata fyrir flautu og píanó eftir Franc Poulenc; Air Vaudois og Andante et Allegro eftir Mel Bonis
og Sónata fyrir fiðlu og píanó eftir Claude Debussy, útsett fyrir flautu og píanó.
Opið alla daga frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR
KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
15.5. - 15.9.2018
Opið alla daga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Það sem að baki býr er ótrú-leg saga ungrar stúlku semelst upp í fátækri, barn-margri fjölskyldu í Dan-
mörku á tímum síðari heimsstyrjald-
arinnar. Á heimilinu, sem lýst er á
ljóslifandi hátt, ala ástlausir foreldr-
ar upp barnaskarann og halda uppi
aga með bar-
smíðum. Þar að
auki leggja börn-
in hendur hvort á
annað og bræður
beita systur sínar
kynferðislegu of-
beldi.
Allt setur þetta
svip á líf Marie
sem er að-
alpersóna sög-
unnar og fylgst er með fram á full-
orðinsárin. Persóna hennar og
hugsunarháttur einkennist af því
ástleysi sem hún er alin upp við. Ást-
leysið hefur varanleg áhrif á per-
sónu hennar og sem fullorðin kona
sem á mann og börn er hún ófær um
að elska, og það eina sem hún hefur
áhuga á er að hún og hennar fjöl-
skylda líti betur út og hafi það betra
en fólkið í kringum þau.
Þrátt fyrir að hafa alist upp við
það að eiga ekki neitt og eignast allt
sem hana girnist er hún aldrei
fullkomlega hamingjusöm, en sagan
er byggð á raunverulegu lífi móður
höfundarins, Merete Pryds Helle, og
gefur einstaka innsýn í lífið á dönsku
eyjunni Langeland á stríðsárunum,
og flóttann til höfuðborgarinnar á
eftirstríðsárunum í burtu frá fátækt
og ofbeldi.
Sögumaður virðist segja söguna
frá sjónarhorni Marie en samt er
eins og hann standi henni fjær, sem
gefur sögunni einstakt yfirbragð,
næstum eins og sá sem les standi ut-
an við söguna og það sem gerist
komi honum ekki við. Það er einmitt
þannig sem Marie lifir lífinu, en til
þess að verjast öllu því sem lífið læt-
ur dynja á henni virðist hún hafa
byggt glervegg á milli sín og um-
hverfis síns.
Eymd á eftirstríðsárunum
Skáldsaga
Það sem að baki býr bbbbn
Eftir Merete Pryds Helle.
Þýðandi: Magnea J. Matthíasdóttir.
Mál og menning gefur út.
Kilja. 413 bls.
ÞORGERÐUR ANNA
GUNNARSDÓTTIR
BÆKUR
Höfundurinn Merete Pryds Helle byggði bókina á lífi móður sinnar.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
„Að baki ljósmyndunum er tilraun
með leik og spuna, sem felst í að
taka myndirnar í niðamyrkri. Fyrir
listamann skiptir máli að vera alltaf
að prófa eitthvað nýtt og helst að
fara út fyrir þægindarammann,“
segir Bjargey Ólafsdóttir um ljós-
myndasýningu sína Vasaspegill -
Double Mirror, sem opnuð verður
kl. 17 í dag, laugardag, í galleríinu
RAMskram við Njálsgötu.
Auk myrkursins voru aðstæður á
vettvangi stundum erfiðar, til dæm-
is þegar listakonan lá í hörkufrosti
um hávetur í þjóðgarði í Litháen til
að mynda skóginn og stjörnur him-
insins. „Ég var í góðri prjónabrók.
Maður leggur nú ýmislegt á sig
fyrir listina,“ segir hún kankvís á
svip.
Gamaldags ljósmyndari
Dulúðug og draumkennd ljós-
myndaserían, sem samanstendur af
sex verkum; fjórum í stærðinni 90
x 50 cm og tveimur 60 x 40 cm,
minnir svolítið á gömul málverk eða
stillur úr kvikmynd. „Áhrifin af að
mála með ljósinu,“ útskýrir Bjarg-
ey, en fer hvorki nánar út í
tæknina sem hún beitir né sög-
urnar í verkunum. Hún vill ekki
vera oftúlkandi, eins og hún orðar
það, heldur láta áhorfendum eftir
að ráða í myndirnar.
„Kannski má segja að ljósmynd-
irnar dansi á línunni milli raun-
veruleika og skáldskapar. Ég er
svona gamaldags ljósmyndari og
photosjoppa ekki myndirnar, þær
koma bara inn í vélina eins og þær
eru,“ segir hún. Uppstilltar að vísu,
svolítið súrealískar og allar af fólki.
„Myndirnar tók ég á flakki mínu
um Evrópu í samstarfi við fólk sem
ég þekki og treysti og var tilbúið að
sitja fyrir og spinna verkefnið með
mér – búa til stemninguna.“
Spurð um titil sýningarinnar,
Vasaspegill - Double Mirror, segir
Bjargey hann einfaldlega hafa kom-
ið til sín og viljað vera með. „Ljós-
myndun er ákveðin speglun. Ég
átti einu sinni tvöfaldan, rauðan
vasaspegil sem ég notaði oft við
ljósmyndatökur áður en hann
brotnaði í París,“ segir hún með
eftirsjá.
Tilfinning og innsæi
Þótt Bjargeyju finnist gaman að
skrifa og tala, kveðst hún helst vilja
búa verkin sín til án allra kvaða um að þurfa að útskýra þau í þaula í
ræðu og riti. „Sköpunarferlið er
flókið apparat, svipað eins og að
elda án uppskriftar og fara bara
eftir tilfinningu og innsæi,“ segir
hún. Og innt nánar um kveikjuna
að hugmyndinni, svarar hún:
„Sumt er handan orða, eiginlega
óútskýranlegt og þess vegna er
myndlistin kannski svona áhuga-
verð. Hugur og hönd. Eitthvað ger-
ist í huganum sem fer yfir í hend-
urnar. Listamaðurinn er eins og
vísindamaðurinn því á bak við verk-
in eru ótal skissur og tilraunir, sem
yfirleitt eru ekki til sýnis. Ég vann
ljósmyndaseríuna hægt og rólega á
tveimur árum. Við gerð hennar
vöknuðu hjá mér spurningar á borð
við hversu dökkar ljósmyndir gætu
orðið áður en þær umhverfðust í
myrkur og hvernig best væri að
mála með ljósi. Einnig velti ég fyrir
mér hvað gerðist í dansi ljósmynd-
arans og viðfangsins og hvernig
best væri að fanga andrúmsloft
með myndavél. Mig langaði að setja
upp ljósmyndasýningu sem væri al-
gjör andstæða Tíru, bjartrar og lit-
skrúðugrar ljósmyndasýningar sem
ég hélt fyrir níu árum í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur, en und-
irtitill hennar var Horfðu í ljósið
heillin mín/en ekki í skuggann
þarna.“
Litríkur listferill
Bjargey var tilnefnd til tvennra
verðlauna fyrir ljósmyndaseríuna
Tíru, þýsku Börse-ljósmyndaverð-
launanna og Godowski-litljós-
myndaverðlaunanna. Hún hefur
hlotið margar viðurkenningar í ár-
anna rás og ekki bara fyrir ljós-
myndir heldur líka stuttmyndir.
Konan er ekki einhöm. Hún hefur
fengist jöfnum höndum við listform
eins og tónlist, hljóðverk, stutt-
myndir, teikningar, innsetningar,
gjörninga og fleira, enda menntuð í
ýmsum greinum listarinnar; mynd-
list, ljósmyndun, kvikmyndagerð og
-leikstjórn sem og handritagerð.
Hún kom víða við í listnámi sínu,
nam myndlist við Myndlista- og
handíðaskóla Íslands og Myndlist-
arakademíuna í Helsinki, ljós-
myndun við Aalto-háskólann í Hels-
inki og kvikmyndagerð við Binger
Filmlab í Amsterdam svo nokkuð
sé nefnt.
Frá árinu 1998 hefur Bjargey
haldið rúmlega tuttugu einkasýn-
ingar á alls konar listaverkum,
flestar á Íslandi en líka í Svíþjóð,
Finnlandi, Þýskalandi, Póllandi,
Spáni, Japan, Chile og Bandaríkj-
unum. Á sama tíma hefur hún tekið
þátt í hátt í níutíu samsýningum,
bæði austan hafs og vestan, og eru
verk hennar þar víða á listasöfnum.
Til dæmis er ein af ljósmyndunum
úr ljósmyndaseríunni Vasaspegill í
eigu Þjóðarlistasafns Danmerkur
[Statens Museum for Kunst].
Leikur og spuni í niðamyrkri
Bjargey Ólafsdóttir opnar ljósmyndasýningu sína Vasaspegill - Double Mirror í RAMskram í dag
Morgunblaðið/Valli
Listakonan Bjargey Ólafsdóttir hefur haldið meira en 20 einkasýningar hér heima og erlendis og sýnt listaverk sín
á fjölda samsýninga um allan heim síðustu 20 árin. Ljósmyndaýningin í RAMskram er hennar 24. einkasýning.