Morgunblaðið - 21.07.2018, Page 49
AF ÍSJÖKUM
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Þann 7. júlí síðastliðinn komþað mér spánskt fyrir sjón-ir þegar ég las frétt um að
frumkvöðullinn Nick Sloane
hygðist leysa úr vatnsskortinum í
Höfðaborg í Suður-Afríku með
því að draga heilan ísjaka frá
suðurskautinu þangað og afla
þannig fersks vatns fyrir borg-
arbúa. Gríðarlegur þurrkur hefur
næstum neytt yfirvöld Höfðaborg-
ar til þess að loka á vatns-
veitukerfið. Vatnsskömmtun fór
fram þar til haustrigningin bjarg-
aði málunum.
Hvar hafði ég séð þetta áður?
Jú, einmitt þetta var söguþráð-
urinn í bók sem ég las þegar ég
var lítill, nefnilega mynda-
sögubókinni Hin fjögur fræknu
og ísjakinn (Les 4 As et l’Iceberg)
eftir François Craenhals og
Georges Chaulet. Í bók þeirri
hjálpa þau Lastík, Dína, Doksi og
Búffi vini sínum, prófessor
Gaukalín, að koma emírdæminu
Gazol til bjargar með því að
draga þangað heilan ísjaka.
Ekki er óþekkt að hugmyndir
úr skáldskap, jafnvel barnaefni,
verði að raunveruleika. Má þar til
dæmis nefna aðferð til þess að
lyfta skipsflökum af hafsbotni
með borðtenniskúlum sem Andrés
Önd fann upp árið 1949. Hug-
mynd Sloane er hins vegar ekki
ný af nálinni og varð ekki til hjá
hinum fjórum fræknu. Frá 19. öld
hefur fólk látið sig dreyma um að
draga ísjaka út á miðbaug til þess
að jafna hitastigið í sjónum. Hug-
myndinni hefur verið varpað
fram aftur og aftur í gegnum ár-
in á mismetnaðarfullan hátt en
aldrei hefur hún verið fram-
kvæmd nema í smækkuðu sniði,
til dæmis í Kanada og Rússlandi.
Þar eru ísjakar gjarnan dregnir
stuttar vegalengdir til þess að
forða þeim frá árekstri við olíu-
borpalla. Einnig er frægt að við
Íslendingar fluttum árið 2004 22
tonna ísjaka úr Jökulsárlóni til
Parísar, að vísu ekki til þess að
sjá þyrstum Parísarbúum fyrir
ferskvatni, heldur til að „efla
ímynd Íslands og íslensku þjóð-
arinnar“.
Ís til Arabíu?
Sloane er ekki sá eini sem
hefur viðrað ísjakahugmyndir
sem þessar á síðustu árum: Fyr-
irtæki í Abú Dabí sagði í fyrra að
áætlanir væru fyrir hendi um að
draga ísjaka um 12.600 km til
Sameinuðu arabísku furstadæm-
anna og sjá íbúunum þannig fyrir
fimm ára vatnsforða. Væri þetta
nær atburðarásinni sem lýst er í
myndasögunni þar sem emírdæm-
ið Gazol virðist vera staðsett á
korti einhvers staðar í austur-
hluta Jemen. Í kynningarmynd-
bandi fyrir áætlunina sjást mör-
gæsir og ísbirnir á ísjakanum og
er því slegið upp að þetta muni
verða ferðaþjónustunni til góðs. Í
Hinum fjórum fræknu og ísjak-
anum fylgir vissulega vingjarnleg
mörgæs að nafni Nestor hetj-
unum okkar til Gazol, en höf-
undar myndasögunnar virðast þó
ólíkt myndbandshönnuðinum hafa
gert sér grein fyrir að hvítabirni
er ekki að finna á Suðurskauts-
landinu.
Samkvæmt grein The Gu-
ardian eru ýmsir agnúar á þeirri
hugmynd að draga ísjaka yfir
Indlandshafið. Ísjakinn gæti auð-
veldlega brotnað eða bráðnað á
leiðinni og erfitt gæti reynst að
finna skip sem væri fært um að
draga ísflikkið alla þessa leið.
Vert er að nefna að jafnvel í bók-
inni um hin fjögur fræknu heppn-
ast ísjakaáætlunin ekki. Glappa-
skot og skemmdarverk leiða til
þess að þegar til Gazol er komið
er ekkert eftir af ísjakanum nema
klaki í vatnsglas emírsins. Það er
einmitt vel tímasett úrhellisrign-
ing sem bjargar málunum.
Að draga ísjaka í skáldskap og í raun
» „Í bókinni hjálpaþau Lastík, Dína,
Doksi og Búffi vini sín-
um, prófessor Gaukalín,
að koma emírdæminu
Gazol til bjargar“
Ís Hin fjögur fræknu og Gaukalín hefja áætlunina ÍsGaz („Ís til Gazol“) í Hinum fjórum fræknu og ísjakanum.
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2018
Sænsk-breska leikkonan Rebecca
Ferguson leikur ofurhugann og
njósnarann Ilsu Faust í Mission:
Impossible - Fallout sem frumsýnd
verður á Íslandi 1. ágúst. Ferguson
hafði vakið athygli fyrir leik sinn í
mörgum áhugaverðum myndum, en
frammistaða hennar í Mission: Imp-
ossible - Rogue Nation, gerði hana
að stórstjörnu. Sumir vilja meina að
hún sé svo eitursvöl að Tom Cruise
þurfi að vara sig. Reyndar bjargar
hún lífi Ethans, sem Cruise leikur, í
báðum Mission: Impossible-kvik-
myndunum.
Ferguson sagði The Guardian að
Cruise og leikstjóranum Chris
McQuarrie hefði verið umhugað um
að hver innkoma Ilsu væri mjög þýð-
ingarmikil. Tom vildi endilega búa
til persónu sem væri jafningi Eth-
ans. Þau séu bæði svöl og sterk en
líka berskjölduð. Samband þeirra sé
dramatískt og drifið áfram af gagn-
kvæmri hrifningu og virðingu, frek-
ar en rómantík. „Tom segist gera
myndirnar fyrir áhorfendur, en ekki
ég. Auðvitað vona ég að þeir njóti
þeirra, en ég geri myndinar fyrir
sjálfa mig og það sem ég fæ út úr
því. Líka til að búa til bíó sem ég vil
sjálf sjá,“ segir hún.
AFP
Leikur Ilsu fyrir sjálfa
sig, ekki áhorfendur
Glæsileg Ferguson
á frumsýningu
Mission: Impossible -
Fallout í London.
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
ICQC 2018-20