Saga


Saga - 2011, Side 230

Saga - 2011, Side 230
safnritið Fyrstu sögur sem Þorsteinn og María Anna stóðu að og kom út árið 2007; það hafði að geyma fimm áður óútgefna texta frá átjándu og nítjándu öld, tvær ferðasögur, tvær skáldsögur og ritgerð um bókmenntir kvenna. Það var einmitt í síðastnefnda ritinu sem Sagan af Árna yngra ljúflingi eftir Jón espólín sýslumann og sagnaritara kom fyrst út á prenti, rúmum 170 árum eftir að hún var skrifuð. Sú meinvilla fylgir þeirri útgáfu að hún er gerð eftir afskrift frá níunda áratug nítjándu aldar í þeirri vissu að frumritið væri glatað. Svo er hins vegar ekki og því á síðari útgáfan, sem byggð er á eiginhandarriti, sér nokkurn tilverurétt í kjölfar hinnar fyrri þótt óneitanlega sé nokkuð sérstakt að fá tvær útgáfur af sömu sögunni með svo stuttu millibili. Það er þó ekkert nýmæli að telja sögu Jóns espólín til nútímaskáldsagna eða í það minnsta áfanga í mótun hennar. Bæði Þorsteinn Antonsson og einar Gunnar Pétursson vísa til dæmis í skrifum sínum til bókar Steingríms J. Þorsteinssonar um Jón Thoroddsen og skáldsögur hans frá 1943 þar sem Þorsteinn gerir grein fyrir stöðu rits Jóns espólín í bókmenntasögu nítjándu aldar. Útgáfa einars Gunnars Péturssonar, handritafræðings og rannsóknar - prófessors við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, á Sögunni af Árna yngra ljúflingi er semsagt unnin eftir eiginhandarriti Jóns espólín sem talið er vera frá miðjum fjórða áratug nítjándu aldar. Jón espólín (1769–1836) er meðal þekktustu og afkastamestu lausamálshöfunda sinnar tíðar, þekkt- astur fyrir annálaskrif sín, svonefndar Árbækur Espólíns eða Íslands Árbækur í sögu-formi af Jóni Espolin sem komu út í tólf bindum eða flokkum á vegum Hins íslenska bókmenntafélags á árunum 1821–1855. Ýmislegt annað ligg- ur eftir hann prentað, bæði fyrr og síðar, þar á meðal þýðing hans á Kénnslu- Bók í Sagna-Frædinni fyrir Vidvanínga eftir Johann Georg August Galetti sem gefin var út á Leirárgörðum árið 1804, Langbarða sögur, Gota og Húna eptir Jón sýslumann Espólín prentuð á Akureyri 1859, sjálfsævisaga hans sem kom út árið 1895 og Saga frá Skagfirðingum 1685–1847 eftir Jón espólín og einar Bjarnason sem kom fyrst út í fjórum bindum á árunum 1976–1979. Sagan af Árna yngra ljúflingi, eins og hún birtist í þessari útgáfu, er tæpar 120 blaðsíður á lengd. Örlítið virðist vanta framan á hana, bæði í eigin- handarriti og afskrift, en óvissara er með endinn, sem einnig er snubbóttur og allsendis óljóst hvort höfundur hafi ritað meira en birtist þar eða ætlað sér slíkt. Sagan skiptist í 41 stuttan kafla sem hver um sig myndar næsta sjálfstæða senu. Söguhetjan Árni ferðast frá bæ til bæjar og úr sveit í sveit á hringferð um landið og skráir hjá sér samtöl sem hann verður vitni að, og bera þau uppi verkið. Þessi samtöl eru jafnan innihaldsrík og taka gjarnan form e.k. kappræðu. Tekið er til þess á bókarkápu og í formála að Árna saga sé mikilvæg heimild um þjóðtrú ýmiskonar á fyrri hluta nítjándu aldar, fyrir daga hinnar rómantísku upphafningar á slíkum fræðum. Þetta má til sanns vegar færa en segir þó ekki nema litla sögu um efnistök Jóns í þessari sér- stöku svipmyndasýningu úr hugarheimi hans tíðar. Í fyrstu senu takast ung- ur flakkari og hreppstjóri snarplega á um agamál og samskipti húsbænda ritdómar230 1-SagaVOR2011—NOTAGreinar_Sagahaust2004-NOTA5/4/111:13PMPage230
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232
Side 233
Side 234
Side 235
Side 236
Side 237
Side 238
Side 239
Side 240
Side 241
Side 242
Side 243
Side 244
Side 245
Side 246
Side 247
Side 248

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.