Jökull


Jökull - 01.01.2016, Page 119

Jökull - 01.01.2016, Page 119
Flugvélaleit á Grænlandsjökli Gopher (eftir jarðíkorna, sem grefur sér holur á slétt- um). Snjór var bræddur með orku frá rafstöð, vatni safnað í geymi og því síðan dælt sjóðandi heitu niður í koparrör, sem vafið hafði verið umhverfis tæplega 1 m víðan sívalning. Þessari heitu tunnu var haldið yf- ir holunni með reipum frá gálga, svo að hún bræddi sér leið lóðrétt niður, en leitaði ekki til hliðar. Köldu bræðsluvatni var um leið dælt upp úr botni holunnar. Hraðast seig borinn um 1 m á klst., en á 20 m dýpi skekktist hann í holunni, leitaði til hliðar og komst ekki neðar. Önnur Honda rafstöðin hafði bilað, og ekki tókst að fá nægt bræðsluvatn. Í lok júlí hættu þeir frekari borun og flugu heim á DC-3 og Cessna 185 vélunum. En við tók mikil kynning í fréttum, og nú gátu þeir sýnt brot úr einni vél. Leiðangur árið 1990 Illa hafði gengið að afla fjár til frekari leitar, en þá auglýstu þeir P-38 vél til sölu fyrir 259.000 $ (þá 35 milljónir ísl. kr.), sem fundist hefði 3. júlí 1988 á Grænlandi undir 80 m þykkum ís. (Talsmenn GES þögðu alltaf yfir því, að vélarnar fundust upphaflega árið 1983). Epps tókst einnig að fá nýjan liðsmann, Angelo Pizzagalli, svissnesk-amerískan verktaka frá Vermont (Rolls Ltd.). Miklum búnaði var safnað sam- an, og þeim tókst að fá C-130 vél, Lockheed Hercu- les 4 hreyfla, til þess að flytja 35 tonn af farangri á jökulinn, m.a. jarðýtur. Fram til þess höfðu stærstu flutningavélarnar verið DC-3. Enn var kallað á Íslendinga til þess að staðsetja flugvélarnar. Arngrímur, Jón Sveinsson, Ástvaldur Guðmundsson (reyndur jöklafari) og Fáfnir Frosta- son, flugmaður, komu á jökulinn til þess 11. maí 1990. Pizzagalli lagði til, að í stað þess að bræða holu niður að vélunum, mætti grafa niður að þeim með tæki, sem notað er til þess að tæma korn- turna (7. mynd). Skera mætti lóðréttan brunn niður í kornóttan snjóinn með láréttum stálhníf, sem snerist í hringi, skæfi eitt snjólag ofan af öðru. Mylsnunni (spæninu) yrði blásið inn að miðju holunnar, safnað þar í sekk, sem hífður yrði upp á yfirborð. Þannig tókst þeim reyndar að skera holu niður í jökulinn, 5 m í þvermál, yfir P-38 vél. En þeir komust aðeins um 20 m niður, vegna þess að þar var komið niður á ís, og allt flaut í vatni. Gamli GES-hópurinn kom hins vegar á jökulinn með endurbættan bræðslubor (sem þeir kölluðu Super Gopher, 7. mynd). Niður úr botni keilulaga bortunn- unnar höfðu þeir sett spjót úr stífu plaströri, svo að borinn leitaði stöðugt að miðju holunnar. Fyrir hópn- um fóru Richard Taylor og Gordon Scott (sem höfðu litla trú á bortæki Pizzagallis). Þeir boruðu yfir B-17 vél, nú 1,2 m víða holu. Einnig þeir komu á rúmlega 20 m dýpi niður á ís og vatn, og dælur þeirra voru ekki nógu öflugar til þess að ná vatninu upp úr borholunni. Enn kom upp mikil spenna milli leitarmanna, og ákveðið var að senda hópinn í frí. Hlé var því gert á borun, uns kólnað hafði, og dælur gátu haft við vatns- elgnum. Næstum mánuð tók síðan að bræða 80 m nið- ur að B-17 vél (Big Stoop). Að því loknu sigu menn niður að vélinni, einn í einu, fyrst Taylor, en einnig Vaughan 84 ára gamall. Það tók 25 mínútur. Þeir bræddu sig inn í vélina og náðu upp byssum, talstöð- um, jafnvel vindlingapökkum. B-17 vélin var alllösk- uð, kramin niður fyrir höfuðhæð flugmanns, mótorar höfðu rifnað frá búknum. Fram að því höfðu menn talað um að fljúga vélunum af jöklinum, eftir að hafa gert við þær á staðnum! Enn var þó von um, að sterkur búkur P-38 vélar hefði staðist betur farg jökulsins en B-17 vélin. Með í þessari borun voru flugbjörgunar- sveitarmennirnir Magnús V. Guðlaugsson og Sigurjón Hjartarson (Mbl. 16. des. 1990). Pizzagalli hvatti nú leiðangursmenn til þess að flytja Super Gopher yfir að P-38 vél, og allir hjálp- uðust að við að ná henni upp. En sumarið var búið og halda þurfti heim. En þá hafði brotist út stríð Íraka og Kuveit, og C-130 vélar voru uppteknar. Ekki var um annað að gera en að koma búnaðinum í DC-3 vél, og munaði þá litlu að illa færi. Þegar þeir voru að taka sig á loft af jöklinum, kviknaði í öðrum hreyfli vélarinn- ar, kannski vegna þess að hún var yfirhlaðin, en þeir komust á hinum til Kulusuk og nauðlentu þar. Fáfnir og Patt Epps flugu (Mbl. 13. sept. 1992). Flugvél næst upp úr jöklinum 1992 Nú var orðið stutt í, að loksins tækist að ná flugvél upp úr Grænlandsjökli (sjá nánar Lamm og Popes, 1992). Tvennt kom þar til. Öflugur styrktaraðili, Roy Schoffner, flugkappi, lagði fram fé. Hins vegar bættist í hópinn maður, sem gat skipulagt og stjórnað aðgerð- JÖKULL No. 66, 2016 119
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.