Jökull - 01.06.2000, Blaðsíða 92
Jöklarannsóknafélags Íslands
Skýrsla stjórnar á aðalfundi 25. febrúar 1999
SKIPAN STJÓRNAR OG NEFNDA
Aðalfundur Jöklarannsóknafélags Íslands fyrir 1998
var haldinn í Mörkinni 6, þann 24. febrúar. Fundar-
stjóri var Hjálmar R. Bárðarson og Guttormur Sig-
bjarnarson var fundarritari. Fyrsti stjórnarfundur var
haldinn 2. mars og skipti stjórnin þá með sér verkum
og dregið var um röð manna í varastjórn. Stjórnin er
þannig skipuð:
Aðalstjórn:
Magnús Tumi Guðmundsson, formaður,
kosinn 1998 til þriggja ára.
Oddur Sigurðsson,
varaformaður, kosinn 1998 til tveggja ára.
Steinunn S. Jakobsdóttir, ritari,
kosinn 1998 til eins árs.
Garðar Briem, gjaldkeri,
kosinn 1998 til tveggja ára.
Alexander Ingimarsson, meðstjórnandi,
kosinn 1998 til tveggja ára.
Varastjórn:
Hannes Haraldsson, fyrsti varamaður.
Kosinn 1998 til tveggja ára.
Halldór Gíslason, annar varamaður.
Kosinn 1998 til eins árs.
Ástvaldur Guðmundsson, þriðji varamaður.
Kosinn 1997 til tveggja ára.
Jón Sveinsson, fjórði varamaður.
Kosinn 1998 til tveggja ára.
Valnefnd: Sveinbjörn Björnsson, kosinn 1997 til
þriggja ára, Gunnar Guðmundsson, kosinn 1998 til
þriggja ára og Stefán Bjarnason, kosinn 1996 til
þriggja ára.
Oddur Sigurðsson varaformaður félagsins sá um
útgáfu fréttabréfsins. Steinunn Jakobsdóttir ritari hélt
fundargerðir, Alexander Ingimarsson sá um félaga-
skrá og dreifingu Jökuls. Garðar Briem gjaldkeri ann-
aðist innheimtu hjá erlendum áskrifendum Jökuls og
innheimtu félagsgjalda. Gert var átak í að koma fé-
lagsskránni á þægilegt tölvutækt form og er nú hægt
að bera hana saman við þjóðskrá svo hægt sé að fylgj-
ast með breyttum heimilisföngum. Stjórnin tók upp á
þeirri nýbreytni að halda haustfund í Jökulheimum á
fyrsta vetrardag. Þótti sá fundur heppnast vel og skapa
góða stemningu fyrir vetrarstarfið.
Formenn nefnda félagsins voru kosnir á fyrsta
stjórnarfundi eftir aðalfund. Nefndir voru þannig skip-
aðar:
Rannsóknanefnd: Magnús Tumi Guðmundsson
formaður, Finnur Pálsson, Bryndís Brandsdóttir og
Jón Sveinsson Raunvísindastofnun, Oddur Sigurðs-
son Orkustofnun, Hannes Haraldsson Landsvirkjun
og Steinunn Jakobsdóttir Veðurstofunni.
Jökull: Útgáfustjóri var Einar Gunnlaugsson. Ritstjór-
ar voru Bryndís Brandsdóttir og Áslaug Geirsdóttir
auk þess sem Tómas Jóhannesson var ritstjóri sérstaks
heftis um jöklabreytingar (45. Árg.). Þá var Halldór
Gíslason yngri skipaður ritstjóri íslensks efnis.
Skálanefnd: Sverrir Hilmarsson formaður, Alexand-
er Ingimarsson, Ástvaldur Guðmundsson, Guðmund-
ur Þórðarson, Jón E. Ísdal, Stefán Bjarnason og Vil-
hjálmur Kjartansson.
Bílanefnd: Þorsteinn Jónsson formaður, Árni Páll
Árnason,Garðar Briem, Halldór Gíslason yngri, Sig-
urður Vignisson og Sigurjón Hannesson.
Ferðanefnd vorferðar: Magnús Tumi Guðmundsson,
Árni Páll Árnason, Garðar Briem, Halldór Gíslason
og Sjöfn Sigsteinsdóttir.
Skemmtinefnd: Björk Harðardóttir, Finnur Pálsson,
Freyr Jónsson, Jósef Hólmjárn og Valgerður Jóhanns-
dóttir.
Endurskoðendur félagsins voru Elías B. Elíasson og
Árni Kjartansson.
Hinn 1. Febrúar síðastliðinn voru skráðir félagar
546. Þar af voru 10 heiðursfélagar, 328 almennir fé-
JÖKULL No. 49 91