Jökull - 01.06.2000, Blaðsíða 100
Rannsóknaferðir Jöklarannsóknafélagsins, 1999
Magnús Tumi Guðmundsson
Raunvísindastofnun Háskólans, Hofsvallagötu 53, 107 Reykjavík
Vetrarferðin
Í Grímsvatnagosinu í desember 1998 varð mik-
ið umrót á gosstöðvunum undir Vestari Svíahnúk.
Gjóskugígur hlóðst upp, opinn mót norðri og all-
stór vök myndaðist í íshelluna næst gosstöðvun-
um. Mikill áhugi var meðal jarðvísindamanna að
fara að gosstöðvunum og kanna aðstæður eftir gos-
ið. Því ákvað stjórn JÖRFÍ að standa að slíkri ferð,
skipuleggja flutninga og útvega mannskap. Í ferðinni
tóku þátt starfsfólk frá Raunvísindastofnun Háskól-
ans, Norrænu Eldfjallastöðinni, Náttúrufræðistofnun
og Landsvirkjun auk sjálfboðaliða JÖRFÍ en farar-
stjóri var undirritaður. Allan janúarmánuð var beðið
ferðaveðurs og í byrjun febrúar gaf loks til ferðar.
Að morgni 5. febrúar lagði meginhluti hópsins af
stað á fjórum bílum með fimm vélsleða. Ekið var á
snjó frá Vatnsfelli og sóttist ferðin erfiðlega vegna
krapa. Einkum var það þunglestaður Dodge-bíll fé-
lagsins sem sökk í keldurnar. Hópurinn náði því ekki í
Jökulheima fyrr en kl. 2 um nóttina. Þeir síðustu komu
þó ekki í hús fyrr en kl. 4 en þá var seinni hluti hóps-
ins mættur á tveimur bílum. Munaði um þann liðs-
auka við að losa Dodda úr síðustu festunni. Nætur-
svefn varð ekki langur og fyrir hádegi daginn eftir lag-
ið hópurinn af stað upp Tungnaárjökul. Á Grímsfjall
komum við síðdegis og var þá norðaustan 5-6 vindstig
og skafrenningur.
Þann 7. febrúar var veður aðgerðalítið og hægt að
fara niður að gosstöðvunum úr vestri. Greiðlega gekk
að komast af ísnum út á gíginn, en vesturbarmur hans
hvílir að hluta á íshellunni. Eftir að þangað var komið
tók við mæling á lögun hans með DGPS, sýnasöfnun
og hitamælingar á börmum og botni gígsins. Vestur-
barmurinn var nokkuð missiginn og í honum niðurföll
meðan sá eystri virtist stöðugur. Töluverður hiti var
víða í gígnum. Á meðan meginhluti hópsins vann í
gígnum var annar hópur við gryfjugröft í Grímsvatna-
skarði, til að ná upp tveimur möstrum sem tengd voru
vatnsþrýstimælum við botn jökulsins. Sex manns fóru
til byggða um hádegið en aðrir héldu áfram verkum.
Horft af gígnum norður yfir vökina 7. febrúar, 1999.
Hlaupi lauk viku fyrr svo vatnsborðið hefur lækkað
um tæplega 60 m frá í gosinu. –View from the new
crater in Grímsvötn over the opening melted in the
ice shelf by the 1998 eruption. A small jökulhlaup had
ceased a week before during which the water level
had been lowered by 60 m. Ljósmynd/Photo. Magnús
Tumi Guðmundsson.
Daginn eftir, 8. febrúar, var enn svipað veður, létt-
skýjað, um 20
C frost og öðru hverju strekkingsvind-
ur af norðri með skafrenningi. Niðri í Grímsvötnum
var hins vegar tiltölulega kyrrt. Þennan dag var verk-
um lokið. Grafin var 2.5 m djúp gryfja við Vestari
Svíahnúk, gegnum öskulagið. Einnig var íshellan og
ísilögð vökin kortlögð með DGPS. Vel gekk að fara
um vötnin þrátt fyrir að þau hefðu hlaupið aðeins viku
áður. Aukinn jarðhiti í kjölfar gossins var með öllu
Grímsfjallinu og sprungur farnar að gera vart við sig á
hefðbundinni leið niður af Grímsfjallinu austanverðu.
Um kvöldið hélt leiðangurinn af stað áleiðis til
byggða. Heldur skyggði á gleðina að við urðum að
JÖKULL No. 49 99