Jökull - 01.06.2000, Blaðsíða 98
Jarðfræðafélag Íslands
Skýrsla stjórnar á aðalfundi 26. maí 1999
STJÓRNARSTARF
Stjórn Jarðfræðafélagsins hélt 9 stjórnarfundi á starfs-
árinu, og gaf út 9 fréttabréf. Að auki var sendur
út fjöldi annarra tilkynninga á tölvunetinu, sem er
að verða helsta leið upplýsinga í dag. Formaður fé-
lagsins, Helgi Torfason, sótti í desember 1998 fund
Europe Federation of Geologists (EFG) í Brussel.
Markmið ferðarinnar var að kynna sér starfsemi sam-
takanna, með það í huga að JFÍ gerðist aðili að þeim.
Verið að kanna kostnað við aðildina og ef hann reynist
viðráðanlegur mun JFÍ gerast aðili að evrópusamtök-
um jarðfræðinga. Umhverfisráðuneytið og Orkustofn-
un styrktu ferðina að fullu og er þeim færðar þakkir
fyrir stuðninginn. Stjórn félagsins er einnig að skoða
aðild að INQUA (International Union for Quaternary
Research).
Sumarið 1998 lést Gylfi Már Guðbergsson, pró-
fessor í landafræði og á vordögum 1999 lést Þorleifur
Einarsson, prófessor í jarðfræði. Með þeim eru horfn-
ir tveir af frumkvöðlum í landa- og jarðfræðum og er
mikil eftirsjá í þeim. Þorleifur var einn af stofnendum
Jarðfræðafélagsins og lét hann sig sjaldan vanta þar á
fundi. Fjölskyldum þeirra eru sendar samúðarkveðjur.
FRÆÐSLUFUNDIR
Alls voru 12 fræðslufundir á starfstímabilinu og sóttu
þá tæplega 400 félagar. Fundir voru eftirfarandi og að-
alfundur 26. maí.
1998
1. Jack G. Hills, 13. júlí. Comet asteroid impact with
the Earth. Flutt á ensku.
2. Björn Birnir, 26. ágúst. Landslagsmyndun og rof.
3. Igor Tostikhin, 16. september. Isotopic tracers of
groundwater - the special case of helium isotopes.
Flutt á ensku.
4. R.S. Williams, 22. september. The Earth’s cryo-
sphere and global environmental change. Flutt á
ensku.
5. Sveinn Jakobsson, 22. október. Móberg, myndun-
arsaga og megingerðir.
6. Anna María Ágústsdóttir, 19. nóvember. Veður-
horfur fyrri alda og framtíðar.
7. Haukur Jóhannesson, 9. desember. Jarðfræðikort af
Íslandi í mælikvarða 1:500.000.
1999
8. Sigurjón Jónsson, 5. janúar. Gangar úr geimnum
- Áhrif gangainnskota á Galapagoseyjum mæld og
skoðuð með radarmælingum úr gervitunglum.
9. Jórunn Harðardóttir, 19. janúar. Umhverfisbreyting-
ar á Íslandi á síðkvarter og nútíma í ljósi rannsókna á
vatna- og sjáversetkjörnum.
10. Hjalti J. Guðmundsson, 25. febrúar. Breytingar á
Öræfajökli og öskulagafræði Öræfasveitar á nútíma.
11. Ragnar Stefánsson, 18. mars. Jarðskjálftar í
Henglafjöllum og Ölfusi. Rannsóknir til að bæta eft-
irlit og spár.
12. Ragnar Aðalsteinsson og Ragnar Tómas Árnason,
26. maí. Um höfundarétt (erindi á aðalfundi).
Fræðslufundir voru haldnir í Lögbergi, Odda,
fundarsal Orkustofnunar og jólafundurinn var haldinn
í Skólabæ.
RÁÐSTEFNUR
Undanfarin ár hefur verið hálfs dags ráðstefna í febrú-
ar, en nú var brugðið út af þeirri venju vegna ýmissa
ástæðna. Þá var í staðinn flutt erindi og ákveðið að
hafa vorráðstefnuna veglegri. Vorráðstefna Jarðfræða-
félagsins var haldin á Hótel Loftleiðum 20. apríl 1999.
Ráðstefnuna sóttu um 120 manns og tókst hún í alla
staði vel. Flutt voru 21 erindi og auk þess voru á ráð-
stefnunni 32 veggspjöld þar sem hin ýmsu rannsókn-
arefni voru kynnt. Ágrip erinda voru gefin út í veg-
legu hefti sem var 85 bls. að stærð. Að lokinni ráð-
stefnunni bauð félagið upp á léttar veitingar á staðn-
um og mæltist það vel fyrir. Árið 2002 verður haldið
á Íslandi Vetrarmót norrænna jarðfræðinga (Nordisk
JÖKULL No. 49 97