Fréttablaðið - 24.10.2018, Side 6

Fréttablaðið - 24.10.2018, Side 6
HÚSNÆÐI FYRIR ALLA Húsnæðisþing verður haldið þriðjudaginn 30. október nk. á Hilton Reykjavík Nordica við Suðurlandsbraut frá kl. 10:00–16:30. Skráning han á ils.is/hus2018 Nú er ...líka orðinn léttur Engin Helmingsfækkun Engin drykkja Krabbamein neysla áfengis sem drekka í hófi í óhófi Ristill 52 20 5 Brjóst eftir tíðahvörf 238 14 0 Munnur og kok 97 12 6 Lifur 5 1 2 Barki 5 3 1 Vélinda 53 5 2 Alls 452 55 16 Heimild: Anderson, et al. ✿ Krabbamein sem hægt er að forðast til 2045 á Íslandi Sviðsmyndir áfengisneyslu ✿ Fjöldi krabbameina sem hægt er að forðast 2016 til 2045 90.00045.000 82.800 12.082 21.579 28.579 Engin neysla áfengis 9% sem drekka hóflega, 1% í óhófi Helmingsfækkun sem drekka í hófi Engin drykkja í óhófi H E i l b r i g ð i s m á l Fæ k k a m á krabbameins tilfellum á Norður­ löndum um tæplega 83.000 á 30 ára tímabili með því að hætta alfarið áfengisneyslu. Helmingun hóflegrar drykkju áfengis hefði jafnframt í för með sér verulega fækkun tilfella, eða í kringum 21.000, á tímabilinu. „Núverandi áfengisneysla veldur gríðarlegum fjölda krabbameins­ tilfella,“ segir Laufey Tryggvadóttir, faraldsfræðingur hjá Krabba­ meinsfélaginu og prófessor við læknadeild Háskóla Íslands. „Þetta eru tilfelli sem ekki hefðu orðið ef enginn væri að neyta áfengis.“ Laufey er einn af höfundum nýrrar rannsóknar þar sem fjöldi krabbameina til ársins 2045 var kannaður út frá mismunandi sviðs­ myndum áfengisneyslu. Rannsókn­ in verður birt í European Journal of Oncology, fagriti Evrópsku krabba­ meinssamtakanna, í nóvember. Þó svo að sú sviðsmynd þar sem gert er ráð fyrir engri neyslu áfengis sé áberandi jákvæðust þegar kemur að fækkun krabbameinstilfella, þá kýs Laufey að einblína á raunhæfari sviðsmyndir þar sem gert er ráð fyrir minni og hóflegri drykkju. „Það er óraunsætt markmið að hætta alfarið áfengisneyslu, en um leið er það ágætt að vera meðvituð um að áfengi veldur krabbamein­ um,“ segir Laufey. Meðhöfundar Laufeyjar eru vís­ indamenn við Karólínsku stofnun­ ina í Svíþjóð, Tampere­háskóla í Finnlandi, Háskólann í Tromsø og dönsku krabbameinssamtökin. Hópurinn horfði til sex mismun­ andi tegunda krabbameina í rann­ sókn sinni sem öll eru tengd áfengis­ neyslu og lýðfræðilegra rannsókna á drykkjumenningu landanna fimm. Tímabilið sem um ræðir er frá árinu 2016 til 2045. Sviðsmyndirnar taka meðal ann­ ars til þess að neysla áfengis verði engin, að hún helmingist hjá þeim sem nú þegar drekka 1 til 4 glös á dag og að enn meiri drykkja verði engin. Engin áfengisneysla myndi leiða til fækkunar sem nemur tæp­ lega 83.000 krabbameinstilfellum, 50 prósenta fækkun þeirra sem drekka 1 til 4 glös mun leiða til rúm­ Færri krabbamein með minni áfengisneyslu Fækka má krabbameinstilfellum um tugi þúsunda á næstu 30 árum með því að draga úr neyslu áfengis samkvæmt nýrri rannsókn. Einn af höfundunum segir niðurstöðurnar mikilvægt innlegg í umræðuna um aðgengi að áfengi. lega 21.500 færri krabbameina og engin óhóflega drykkja mun fækka tilfellum um rúmlega 12.000. Samkvæmt niðurstöðum rann­ sóknarinnar myndi útrýming áfengisneyslu fækka tilfellum krabbameins á Íslandi á tímabilinu um 452 en það að draga úr neyslu þeirra sem drekka 1 til 4 glös á dag mun fækka þeim um 55. „Það er alveg klárt að ef áfengis­ neysla eykst þá munu fleiri fá krabbamein,“ segir Laufey, aðspurð um hvernig beri að túlka niður­ stöðurnar. „Að mínu viti eru þetta gagnlegar upplýsingar, sérstak­ lega núna þegar aðgengi að áfengi er í umræðunni. Stjórnvöld verða að horfast í augu við þetta. Aukið aðgengi eykur neyslu . Það á ekki að auka hana, heldur frekar að reyna að hafa hemil á henni.“ Í niðurlagi rannsóknarinnar benda höfundarnir á að nýta megi niðurstöðurnar til að efla frekar for­ varnir. „Þetta er einkar mikilvægt,“ segja þeir. „Þá sérstaklega í ljósi þess að tengsl áfengisneyslu og krabba­ meins eru ekki vel þekkt meðal almennings. Til dæmis kannast 70 prósent Bandaríkjamanna ekki við þessi tengsl og aðeins 20 prósent Dana nefna krabbamein aðspurðir um sjúkdóma sem tengjast neyslu áfengis.“ kjartanh@frettabladid.is Rannsóknir sýna skýr tengsl á milli nokkurra tegunda krabbameins og áfengisneyslu. NoRdicpHotos/Getty Það er alveg klárt að ef áfengisneysla eykst þá munu fleiri fá krabbamein. Laufey Tryggva- dóttir, prófessor og faraldsfræð- ingur hjá Krabba- meinsfélaginu FÉlAgsmál „Sterkari saman“ er yfirskrift 43. þings ASÍ sem verður sett í dag en þingið stendur fram á föstudag. Fimm meginefni verða til umfjöllunar á þinginu en það eru tekjuskipting og jöfnuður, jafn­ vægi atvinnuþátttöku og einkalífs, tækniþróun og skipulag vinnunnar, heilbrigðisþjónusta og velferðar­ þjónusta og húsnæðismál. Á föstudaginn verða afgreiddar tillögur og kosið í embætti ASÍ en ljóst er að nýr forseti verður kjör­ inn. Tveir hafa lýst yfir framboði í embætti forseta, þau Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasam­ bandsins, og Sverrir Már Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs. Þá hafa þrír boðað framboð í embætti varaforseta ASÍ. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sækist eftir embætti 1. varaforseta, Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, embætti 2. varaforseta og Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðn­ aðarsambandsins, sækist eftir öðru hvoru embættinu. – sar Tímamótaþing ASÍ hefst Gylfi Arnbjörnsson hættir sem forseti AsÍ á föstudag. FRÉttABLAÐiÐ/ViLHeLm 2 4 . o K t ó b E r 2 0 1 8 m i ð V i K U D A g U r6 F r É t t i r ∙ F r É t t A b l A ð i ð 2 4 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 2 7 -1 4 9 0 2 1 2 7 -1 3 5 4 2 1 2 7 -1 2 1 8 2 1 2 7 -1 0 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 2 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.