Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.10.2018, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 24.10.2018, Qupperneq 20
Síðustu ár hafa verið ágæt í takt við uppsveifluna í bygg-ingariðnaðinum en þetta er fljótt að koma og fljótt að fara enda er engin atvinnu-grein jafn sveiflukennd. Það koma mögur ár og þá er gríðarlega mikilvægt fyrir fyrirtæki í þessum bransa að hafa mikið og gott eigið fé til þess að takast á við sveiflurnar,“ segir Gylfi Gíslason, framkvæmda- stjóri og einn eigenda Jáverks, í viðtali við Markaðinn. Hann nefnir í þessu samhengi að fyrir fjármálahrunið 2008 hafi um 15.000 manns starfað í mannvirkjageiranum. Sá fjöldi hafi síðan skroppið saman í nánast ekk- ert á einum degi. „Það er dýrt að reka fyrirtæki sem þarf að vera eins og harmóníka.“ Jáverk hefur skilað hagnaði öll ár frá stofnun fyrir utan eitt. Hagnaður fyrirtækisins tvöfaldaðist á árinu 2017 þrátt fyrir að tekjur hefðu dregist saman um 12 prósent, eða úr sex milljörðum króna í 5,3 milljarða. Spurður hvort hann finni mun á umsvifum í byggingariðnaðinum í heild sinni á árunum 2017 og 2018 segist Gylfi ekki hafa fundið fyrir miklum samdrætti en eðli verkefn- anna sé að breytast. „Sú gríðarlega uppbygging í ferða- þjónustunni sem hefur átt sér stað á síðustu árum er langt komin og ég tel að henni sé að ljúka. Það er orðið erfiðara að fjármagna stór verkefni í greininni. Á móti kemur að sveitar- félög eru byrjuð að fjárfesta í skólum og öðrum innviðum í auknum mæli eins og þörf hefur verið á. Svo eru fram undan verkefni hjá ríkinu sem hefur varla byggt hús mjög lengi,“ segir Gylfi og bætir við að hann telji það hafa verið skynsamlega stefnu hjá stjórnvöldum. „Gamla hagstjórnin á Íslandi var alltaf þannig að ríki og sveitarfélög mögnuðu sveiflurnar með því að bæta í meðan á uppsveiflu stóð og skera alveg niður í niðursveiflum í stað þess að nota opinberar fram- kvæmdir til sveiflujöfnunar. Ég vona að það sé komin meiri skynsemi í hagstjórnina og að það hafi verið ástæðan að baki því að stjórnvöld hafa haldið að sér höndum. Það er auk þess mun hagstæðara fyrir stjórn- völd að framkvæma með þeim hætti.“ Stórfelld uppbygging sameini fylkingar Framkvæmdastjóri Jáverks segir að uppbyggingu í ferðaþjónustu sé að ljúka þar sem erfiðara sé orðið að fjármagna stór verkefni. Þá telur hann að ákall um stórfellda uppbyggingu íbúða geti sameinað fylkingar í þeirri kjaradeilu sem vofir yfir vinnumarkaðinum. Gylfi segist vona að meiri skynsemi sé komin í hagstjórnina á Íslandi og að það hafi verið ástæðan að baki því að stjórnvöld hafa haldið að sér höndum í uppbyggingu síðustu ár. Fréttablaðið/Eyþór Blanda af viðskiptaviti og tækniviti Gylfi réði sig hjá verktakafyrirtæki eftir stúdentspróf og vann þar í sjö ár. Þá hóf hann viðskiptafræði- nám við Háskólann á Bifröst og eftir það lá leiðin út í mastersnám í fjármálum í Edinborg. Þegar Gylfi kom heim úr námi vann hann meðal annars sem fjármálastjóri hjá stóru verktakafyrirtæki í fjögur ár og árið 2004 keypti hann Jáverk ásamt viðskiptafélaga sínum, Guðmundi B. Gunnarssyni húsa- smíðameistara. Síðan þá hafa tveir starfsmenn bæst við eigenda- hópinn. „Ég hef ólíkan bakgrunn miðað við marga aðra í þessum geira og það hefur hjálpað til. Verktaka- fyrirtækjum hefur jafnan verið stýrt af húsasmíðameisturum eða tæknimenntuðum einstaklingum sem er gott og gilt en við höfum haft öðruvísi nálgun með því að blanda saman tækniviti og við- skiptaviti. Það hefur til dæmis komið sér vel þegar við erum að fara yfir tilboð. Við vinnum mikið í hópavinnu og það er alltaf kostur þegar það koma ólík sjónarmið á hlutina.“ Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@frettabladid.is Það eru margir sem átta sig ekki á því hversu mikil áhrif gengið hefur á byggingariðnaðinn. Það er nánast ekkert annað íslenskt byggingarefni en mölin í steypunni og því hafa gengissveiflur samdægurs brein áhrif á byggingar- kostnað. Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri Jáverks Jáverk lauk í ár við stórfellda uppbyggingu fyrir bláa lónið sem fól m.a. í sér byggingu lúxushótels. mynd/anton brink 2 4 . o k t ó b e r 2 0 1 8 M I Ð V I k U D A G U r6 markaðurinn 2 4 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 2 7 -0 A B 0 2 1 2 7 -0 9 7 4 2 1 2 7 -0 8 3 8 2 1 2 7 -0 6 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 2 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.