Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.10.2018, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 24.10.2018, Qupperneq 22
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 512 5347 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@ frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@ frettabladid.is, s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429, Í versluninni er mikið úrval af sérvöldum rúmfötum með fallegum mynstrum. Verslunin er rúmgóð og björt og auðvelt að finna óskarúmfötin. Björn segir Íslendinga eiga skilið að sofa betur og að gæðarúmföt geti átt stóran þátt í því. Úrvalið er fjölbreytt, bæði í efnum og litum, og ættu allir að geta fundið rúmföt við sitt hæfi. Allir eiga skilið að sofa í frá-bærum rúmfötum úr allra bestu satín- og damask- efnum sem framleidd eru,“ segir Björn Þór Heiðdal, verslunarstjóri Rúmföt.is, sem er ný rúmfataversl- un við Nýbýlaveg 28 í Kópavogi. Verslunin sérhæfir sig í hágæða lúxusrúmfötum á góðu verði. „Við seljum tilbúin rúmföt frá Ítalíu, Þýskalandi og Kína. Einnig flytjum við inn efni til að sauma úr og við erum með frábæra saumakonu sem saumaði meðal annars fyrir Fatabúðina þegar hún var og hét.“ Það má segja að Rúmföt.is sé arftaki Fatabúðarinnar og Versins að einhverju leyti eða eins og Björn orðar það: „Þegar þessar tvær rúmfatabúðir hættu starf- semi var erfiðara fyrir fólk að fá gæðarúmföt á Íslandi.“ Hann segir að gæði skipti höfuðmáli þegar kemur að því að velja rúmföt inn í verslunina. „Ég spyr aldrei hvað sé ódýrt, bara hvað er það besta. Sumir sætta sig við 200 þræði en ég vil það flottasta, 300 til 600 þræði úr bestu fáanlegu efnum. Sængurföt eru fremur áhugamál en bissness í mínum huga og því reyni ég að hafa álagningu í lág- marki. Verðið á rúmfötunum er því ekki hátt miðað við gæðin,“ segir Björn sem telur fólk hugsa allt of lítið út í í hverju það sefur. „Fólk virðist spara við sig þegar kemur að rúmfötum en þeir sem kynnast almennilegum gæðum snúa ekki til baka. En það má ekki gleyma því heldur að verð er ekk- ert endilega mælikvarði á gæði. Það þýðir lítið að fara inn í ein- hverja verslun og kaupa dýrustu rúmfötin þar. Mögulega ertu bara að kaupa álagningu.“ Með tilkomu Rúmföt.is er hægt að kaupa himnesk rúmföt frá allra bestu og vönduðustu vefurum Ítalíu, til að mynda frá Quagliotti sem vefur dúka og sængurföt fyrir bresku drottninguna og sum flottustu lúxushótel í heimi. Fyrir rúmum 12 árum ákvað Hotel Ritz í París að bjóða gestum sínum upp á rúmföt frá Quagliotti eftir ítarlega leit að bestu rúmfötum í heimi. Hótel eins og The Mark í New York, MGM í Macau, The Peninsula í Hong Kong, Armani í Mílanó og 101 Reykjavík bjóða gestum sínum líka upp á Quagli- otti rúmföt. Áhugi Björns á rúmfötum á rætur að rekja til Þvotthúss A. Smith sem afi hans, Adolf Smith, stofnaði árið 1946 en Björn hefur unnið í þvottahúsinu og með- höndlað rúmföt frá því hann man eftir sér. „Ég veit hvernig góð rúmföt eiga að líta út og hvernig þau eru viðkomu,“ segir hann og bætir við: „Það er alveg ótrúlegt hvað margir Íslendingar eiga léleg rúmföt og ástandið hefur versnað eftir að Verið og Fatabúðin hættu rekstri. Það er eins og fólk viti ekki hvernig gæðarúmföt eiga að vera.“ Þessu vill Björn breyta því hann segist ekki þola að meðhöndla léleg rúmföt og alveg sérstaklega ekki léleg rúmföt sem kosta mikið. Rúmföt.is selur ekki bara vönduð rúmföt heldur einnig borðdúka og skrautleg viskustykki frá Frakklandi. Einnig leggur Björn mikla áherslu á að sinna hótelum og litlum gistiheimilum. „Við flytjum inn mjög vönduð hótelrúmföt beint frá framleið- endum í Kína og einnig erum við með servéttur og borðdúka frá Króatíu fyrir hótel og veitinga- staði.“ Í tilefni af opnun verslunarinn- ar Rúmföt.is er sérstakt opnunar- tilboð í gangi næstu daga þar sem lak og koddaver fylgir keyptum sængurfötum. Það borgar sig því að kíkja á Nýbýlaveginn og skoða fjölbreytt vöruúrvalið. Verslunin á Nýbýlavegi verður opin frá 12-18 virka daga og 11-15 um helgar. Nánari upplýsingar má finna á www.rumfot.is. Sængurföt eru fremur áhugamál en bissness í mínum huga og því reyni ég að hafa álagningu í lágmarki. Verðið á rúmfötunum er því ekki hátt miðað við gæðin. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . O K tÓ B E R 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R 2 4 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 2 7 -1 E 7 0 2 1 2 7 -1 D 3 4 2 1 2 7 -1 B F 8 2 1 2 7 -1 A B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 2 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.