Fréttablaðið - 24.10.2018, Page 35
Pósturinn er stórt fyrirtæki með um þúsund starfsmenn og 62 starfsstöðvar sem dreifð-
ar eru um allt land. „Við þjónustum
fólk um landið allt og snertum því
líf mjög margra Íslendinga. Það
skiptir okkur miklu máli að starfs-
fólki okkar líði vel svo það geti
veitt bestu mögulegu þjónustu, og
viljum því búa vel að þeim hvað
varðar kjör og að jafnrétti ríki á
öllum sviðum,“ segir Sigríður.
Pósturinn hefur nýverið lokið
viðamikilli vinnu sem miðaði að
því að hljóta jafnlaunavottun.
„Við vorum að fá skjalið í hús fyrir
stuttu og erum afar ánægð. Þetta
er búin að vera gríðarlega mikil
vinna sem hefur staðið yfir í tæpt
ár. Forstjóri, starfsmannastjóri og
gæðastjóri hafa komið að henni
ásamt öllum lykilstjórnendum.
Þessi vinna hefur verið afskaplega
gagnleg enda erum við búin að
fara yfir öll störf og starfslýsingar
í fyrirtækinu. Við erum búin að
safna ótrúlega miklum upp-
lýsingum og á þeim höfum við
byggt upp okkar jafnlaunakerfi
sem við nú höfum fengið vottun
á. Núna vitum við að við erum að
greiða jöfn laun fyrir jafn verðmæt
störf,“ segir Sigríður. Niðurstöður
vinnunnar komu henni og öðrum
innan fyrirtækisins ánægjulega á
óvart. „Þegar rýnt var í kerfið okkar
var kynbundinn launamunur
fremur lítill, aðeins 2,2 prósent af
heildarlaunum og 0,65 prósent af
grunnlaunum. En auðvitað getum
við alltaf gert betur.“
Sumir efins í upphafi
Sigríður vill koma á framfæri sér-
stökum þökkum til þess starfs-
fólks sem tók þátt í vinnunni við
jafnlaunavottunina með henni.
„Margir voru efins í upphafi,
ekki bara hér innan Póstsins,
heldur heyrði maður frá öðrum
fyrirtækjum og mannauðsstjórum
efasemdaraddir um að þessi jafn-
launavottun myndi gera eitthvert
gagn. Það kom okkur því skemmti-
lega á óvart þegar upp var staðið
hversu gríðarlega gagnleg vinnan í
kringum allt ferlið var. Mitt mat er
að þetta komi til með að tryggja að
fyrirtæki á landinu greiði jöfn laun
fyrir jafn verðmæt störf.“
Jafnt kynjahlutfall
Kynjahlutfallið hjá Póstinum er
nokkuð jafnt, 51% konur og 49%
karlar. „En hlutfallið innan hverrar
starfseiningar er mismunandi, til
dæmis eru konur í meirihluta á
pósthúsum en karlar eru fleiri í
útkeyrslunni. Eitt af okkar mark-
miðum er að jafna kynjahlutföllin
í ólíkum störfum innan fyrirtækis-
ins með ýmsum aðgerðum.“
Jafnrétti fyrir alla
Í jafnréttisáætlun Póstsins er ekki
aðeins lögð áhersla á jafnrétti milli
kvenna og karla heldur einnig að
fólki sé ekki mismunað út frá aldri,
kynþætti, kynhneigð, þjóðerni,
trúar- eða stjórnmálaskoðun.
„Við höfum verið með jafnrétt-
isáætlun í nokkuð langan tíma en
vorum nú í fyrsta sinn að vinna
framkvæmdaáætlun jafnréttis-
mála þar sem ætlunin er að auka
fræðsluþáttinn til starfsmanna. Við
horfum til okkar stjórnenda í þeim
efnum og stefnum á að þeir nýti
starfsmannafundi á vinnustöðum
um allt land til að auka fræðslu til
starfsmanna með það að leiðarljósi
að auka jafnréttisvitund þeirra.“
Góður vinnumórall
Starfsstöðvar Póstsins eru 62 um
land allt en Póstmiðstöðin er
stærst. Þá eru dreifingarstöðvarnar
á höfuðborgarsvæðinu einnig
tiltölulega stórar. Sigríður segir
andann á vinnustöðunum góðan.
„Alls staðar þar sem ég hef komið
hefur mér þótt ríkja góður starfs-
andi og vinnumórall. Ég er búin
að koma mjög víða á pósthús um
allt land og alls staðar mætir mann
brosandi starfsfólk.“
Starfsfólk Póstsins notar forritið
Workplace til að tengjast betur.
„Það er notað til að skipuleggja alls
kyns skemmtilega hluti sem lætur
fólki líða sem hluta af stærri heild.“
Jöfn kynjahlutföll í
framkvæmdastjórn
Sigríður segir samstarf karla og
kvenna hjá Póstinum mjög gott.
„Í framkvæmdastjórninni er til
dæmis jafnt kynjahlutfall. For-
stjórinn er karl en þrír af fimm
framkvæmdastjórum eru konur.
Okkar samstarf er afar gott og
ekki síður samstarf okkar við
bæði karl- og kvenstjórnendur í
fyrirtækinu, sér í lagi hvað varðar
jafnlaunavottunina og vinnuna
í kringum hana, sem hefur verið
alveg frábær.“
KYNNINGARBLAÐ 11 M I ÐV I KU DAG U R 2 4 . o k tó b e r 2 0 1 8 JAfNRéttI
Kynjahlutfall er nokkuð jafnt hjá Póstinum en markmið fyrirtækisins núna er að jafna hlutfallið innan hverrar starfseiningar. xxxxxxxxxxx
Við þjónustum fólk
um landið allt og
snertum því líf mjög
margra Íslendinga. Það
skiptir okkur miklu máli
að starfsfólki okkar líði
vel.
Mikil en gagnleg vinna
Pósturinn hf. fékk nýverið jafnlaunavottun. Vinnan að baki verkefninu var mjög mikil en reyndist
afar gagnleg að mati Sigríðar Indriðadóttur, framkvæmdastjóra starfsmannasviðs.
2
4
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
2
7
-0
5
C
0
2
1
2
7
-0
4
8
4
2
1
2
7
-0
3
4
8
2
1
2
7
-0
2
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K