Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1955, Blaðsíða 32

Breiðfirðingur - 01.04.1955, Blaðsíða 32
30 BREIÐFIRÐINGUR hljómar alþjóðar lof yfir aldanna rof, því þeir óbornum veg hafa greitt.“ Það er hluti af seininnheimtum launum þeirra manna, er haga sér eins og börn að því leyti að þeir eiga svo heitan hugsjónaeld, að hann bræðir burtu hraunskorpu eiginhagsmunanna jafnóðum og hún vill þrengja að þeirri víðfeðma andrúmslofti. Einn af þessum mönnum var Torfi í Ólafsdal. En Torfi í Ólafsdal gleymdi ekki sjálfum sér að því leyti, að heimilishelgin var þar jafnan hjartanu næst. Um það vitna orð frú Guðlaugar á einhverju erfiðasta tíma- bili ævinnar. Uppkomin börn þeirra hjóna nutu glæsileika æskuáranna og öfluðu sér fræðslu og frama. Hásumri hjónanna sjálfra var tekið að halla. Þá kom sláttumaður- inn mikli og hjó snögglega og óvænt skörð í hóp fjölskyld- unnar í Ólafsdal. Ekki færri en fimm börn þeirra hjóna féllu með stuttu millibili í blóma lífsins fyrir ljánum hans. Þau gleymast vart þeim sem heyrðu orðin, sem höfð eru eftir húsmóðurinni í Ólafsdal frá þessum árum: „Það er hægt að þola allt með Torfa.“ Þessi orð hinnar fögru og tiginbornu konu geymast í íslenzku bókasafni líkt og fögur perla, sem lætur lítið yfir sér, en aldrei fellur á. Ekkert annað en afburðatraust heimilisbygging og trú- arsterkur hugsjónakraftur gat megnað að mynda þær öflugu súlur, er stóðu undir þeirri hvelfingu, sem hér var reist og hér gnæfði hátt um marga áratugi. Sumarið 1873 fór Torfi til Vesturheims. Hugur margra efnilegra Islendinga stefndi þá ört vaxandi í þá átt og átti það eftir að leiða af sér enn meiri fólksstraum þangað en orðið var. I nágrenni Torfa voru nokkrir ungir menn. er
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Breiðfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.