Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1955, Page 45

Breiðfirðingur - 01.04.1955, Page 45
BREIÐFIRÐINGUR 43 Hinum, sem aukvisar voru og höfðu hálmvisk þar sem hjartað skyldi, þeim þeytti hann langt af leið sinni eða tróð þá undir fótum. Oft hafði Þorri boð inni fyrir vini sína og vildarmenn. Veitti hann þá vel og kappsamlega, og að þeim veizlum mat hann mest þá, sem gerrastir voru og flest gátu hroðið fötin af þeim fagnaði, sem fram var borinn. Matur var fábreyttur en kjarngóður. Neyttu menn einkum kjöts af holdi galtarins Gullinbursta, hreinsins Kvíslhorna og bjarn- arins Igultanna, en supu með Heiðrúnardropa til brjóst- birtu. Að veizlum þessum var oft „gleði í höll, svo glumdu hlátrasköll“, eins og hjá Goðmundi á Glæsivöllum, en annars voru þeir Þorri og Goðmundur ekki líkir um allt. Þó að Þorri liði átölulaust smáhnútur flvgju um borð, ef hógvær orð fylgdu, þá var hann svo hreinn og ríklyndur, að engum leiðst fláttskapur eða opinberar illdeilur. Þar urðu allir að vera sáttir og samværir, svo að ölri sem að áti. Þegar nú Þorri var allur og genginn til feðra sinna, hófu menn hann í sessi og skipuðu honum á bekk með öðrum goðum. — Þar lifir hann enn í vitund manna. — Þeir helg- uðu honum þá þann mánuð ársins, sem honum þótti lík- astur í viðmóti, og nefndu Þorra. Þeir efndu þá til blóts mikils, er þeir nefndu „Þorrablót“. Þetta voru hin fornu norrænu jól. Að þessum blótum reyndu menn að líkja eftir háttum þeim, er haft hafði Þorri konungur. Vitið þið því, góðir hálsar, hvað til ykkar friðar heyrir, og til hvers er af ykkur ætlast á þessu blóti, ef þið viljið sýna Þorra þá vi ðingu, sem honum er sæmandi og hann mun við una. Það er: að ganga gerrir og ánægðir til matarins, en þó með hæversku að nútímahætti. Um eitt skeið ævinnar þekkti ég Þorra nokkuð, var þó aldrei honum handgenginn. Og ef þið viljið vita um hverja

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.