Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1955, Side 60

Breiðfirðingur - 01.04.1955, Side 60
Þrjár breiðfirzkar konur á raunastund Ein fyrsta frásögn íslenzkrar sögu segir frá skipbroti við suðurströndina. Það virðist svo sem undarleg mildi góðra afla hafi þó stýrt því til hinnar mestu giftu. Má telja, að þar hafi orðið eitt hið fyrsta og mesta björgunar- afrek í sögu landsins. Og er það nokkur tilviljun, að upp úr brotna skipinu stígur fyrsta kristna konan á Islandi? Hin konungborna móðir göfgustu sona og dætra. Engri er fremur tiltrúandi en henni að kunna réttu ráðin. Djörf hetjulund hennar, frelsisþrá, móðurást og guðsást hefur eygt úrræði þar, sem öllum öðrum voru luktar dyr. Auður hin djúpúðga stígur eins og gyðja upp úr öldunum, og lyftir höndum til himins í hljóðri bæn eða helgum lofsöng og blessar þessa auðu strönd og öll hennar ófæddu börn. Og vart getur betri táknmynd hinnar íslenzku móður, sem þakkar fyrir björgun sona sinna og blessar hvert það starf, sem unnið er til varnar sonum hafsins. Og mundi það of djarft að álykta, að bænir Auðar djúpúðgu hefðu átt undra- mátt trúarinnar og móðurástarinnar, sem ásamt hetjulund hennar og dugnaði hafa alltaf verið öruggasta undirstaða alls þess, sem bezt hefur verið unnið í mannheimum. Mun það ekki aflið, sem bezt verður til verndar og varnar gegn öllum hættum og vandræðum?

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.