Breiðfirðingur - 01.04.1958, Qupperneq 9
BREIÐFIRÐINGUR
7
en Jón, enda bjuggu þeir í sama herbergi á námsárum i
Kaupmannahöfn og Jón giftist Ingibjörgu Einarsdóttur,
systur sr. Ólafs svo að þeir voru líka mágar, eins og áður
er vikið að.
Annars ólst séra Ólafur upp fyrir sunnan og móðir
lians var Ingveldur Jafetsdóttir verksmiðjumanns í Reykja-
vík. Munu þau hjónin, Einar og Ingveldur lengst hafa búið
í Þerney á bernskuárum Ólafs, því að hann er fermdur í
Gufuness kirkju.
Lítið var hann í skóla, en lærði í 6 vetur hjá Árna
Helgasyni stiftsprófasti og tók stúdentspróf frá honum.
Það er því einnig líkt með námsbraut þeirra frændanna,
þeir hafa hvorugur þekkt námsleiða frá skólabekkjum nú-
tímans. Háskólanám Ólafs fór svo fram í Kaupmannahöfn.
En þangað lágu leiðir flestra, sem á annað borð ætluðu sér
að búa sig vel undir embætti, enda enginn skóli hérlendis
eftir að stúdentsprófi lauk. Ekki verður séð, að sr. Ólafur
hafi verið neinn sérstakur námsmaður, þótt próf hans séu
sæmileg og mun þar einhverju hafa valdið ónógur undir-
búningur, og hins vegar áhugi fyrir öðru en skólabókum.
Hann vígðist svo að loknu guðfræðiprófi að Breiðaból-
stað á Skógarströnd hinn 27. ág. 1837, en fór þangað ekki
fyrr en vorið eftir.
Vart mun Reykjavík, en Ólafur taldist þá Reykvíkingur,
nokkru sinni hafa fært Breiðafirði betri gjöf en þennan
unga, eldlega prest.
Hann var þá nýlega giftur Sigríði dóttur sr. Þorláks
Loftssonar í Móum á Kjalarnesi.
Er það stytzt af að segja, að allt fór þessum hjónum úr
hönd með sérstökum myndarskap. Byggði presturinn upp
flest staðarhús á Breiðabólstað, en fór þaðan eftir þrjú ár
eða 1841 að Stað á Reykjanesi í Barðastrandasýslu.
Var þeirra sárt saknað á Skógarströnd, en þar vakti sr.