Breiðfirðingur - 01.04.1958, Page 13
BREIÐFIRÐINGUR
11
En þó er sagt, að hann viknaði, þegar hann kvaddi Ingi-
björgu systur sína og Jón forseta á Austurvelli haustið
1852, en þá fylgdi hann Þorláki syni sínum til Reykjavíkur,
og nokkru síðar fór Þorlákur til náms í Englandi og dvaldi
þar árum saman. En þar hugði faðir hans bezt áhrif frelsis
og frama honum til handa, en sendi hann ekki til Kaup-
mannahafnar eins og þá var algengast. Þorlákur Johnsen
varð síðar einn hinn kunnasti kaupsýslumaður í Reykjavík
og er enn hér verzlun sem kennd er við nafn hans og sonar
hans, sem ber nafn prófastsins sr. Olafs. Tvö af yngri börn-
um prestshjónanna á Stað náðu aldri og eignuðust börn.
Það voru þau Guðrún kona sr. Steingríms Jónssonar í Otra-
dal og Jóhannes Davíð sýslumaður í Skagafjarðarsýslu,
faðir Alexanders Jóhannessonar prófessors og fyrrv. há-
skólarektors og þeirra systkina. Þykir myndarskapur og
gáfur ættföður og móður hafa gengið í arf til göfugra niðja
og orðið íslenzkri þjóðmenningu æ til blessunar.
Sr. Ólafur kenndi mörgum námssveinum á heimili sínu.
Sagt er að 20 piltar hafi lært þar meira og minna undir
skóla og 6 vandalaus börn ólust þar upp að mestu.
Af lærisveinum sr. Ólafs er þekktastur Björn Jónssou,
ritstjóri og ráðherra, faðir Sveins Björnssonar fyrsta forseta
hins endurreista lýðveldis á Islandi.
Þannig rættust hinir djörfustu draumar stjórnmálaskör-
ungsins á Stað, sem þrátt fyrir misskilning, raunir og sár-
ustu harma hélt vöku sinni Islandi til handa til hinztu stund-
ar. Hann andaðist á Stað 17. apríl 1885.
Þau eru ekki út í bláinn orð skáldsins sem söng:
Á Stað er foss, sem fellur
með fjöri haust og vor,
hann syngur Ólafs sögu,
þá sól er bak við Skor.