Breiðfirðingur - 01.04.1958, Blaðsíða 18
16
BREIÐFIRÐINGUR
grjóti og styrktur með staurum. En ekki stóðu þau mann-
virki lengi. í aftaka brimi og ofsaroki árið eftir hrundi
garðurinn. Allt var gert, sem í mannlegu valdi stóð, til
þess að bjarga bátunum, og tókst það. En fimm menn týndu
lífinu, er þeir voru að fara fram í einn bátinn á smákænu.
Garðurinn hefur nú verið steyptur, en ekki getur höfnin þó
talizt brúkleg, og allar vonir Sandara munu nú tengdar við
landshöfnina í Rifi.
A bakkanum fyrir ofan gömlu lendinguna á Sandi stend-
ur jarðfastur steinn, er nefnist Álagasteinn. Hann er um
einn metri á hæð og tilvalið festarhald. I steininn neðan-
verðan er sprunga, og þar í hefur verið slett steinsteypu.
Er sú saga til þess, að síldveiðiskip kom fyrir nokkrum ár-
um til Sands, til þess að taka mann. Skipverjar réðust þá í
galsa að álagasteini, brutu hann og veltu niður í fjöru. —
Þegar útgerðarmaðurinn syðra, sem ættaður var frá Sandi,
frétti þetta, fékk hann menn til að draga steininn aftur upp
á bakkann og múra hann saman. En allt kom fyrir ekki.
Einn mann tók út af bát þessum á síldarvertíðinni, og var
sá maður frá Hellissandi. En þau álög voru sögð fylgja
Álagasteini, að sú skipshöfn, sem hann bryti, myndi missa
mann af sér.
Litla hugmynd gátum við ferðalangarnir gert okkur um
brimið á Sandi og reyndar alls staðar þar, sem við komum
að sjó í þessari ferð, því að svo mátti heita, að hvergi lóaði
við stein.
/ Rifi.
Á sunnudagsmorgun var haldið inn í Rif. Þar er búið
myndarbúi, og þar er eitt mesta kríuger, sem menn vita
dæmi til. Stafar það af því, að bóndinn í Rifi harðbannar
öllum að ræna kríueggjum. Á hann það jafnvel til að hræða
baldna stráka með púðurskotum. Krían er fyrtinn fugl og