Breiðfirðingur - 01.04.1958, Síða 23
BREIÐFIRÐINGUR
21
„Bárður minn á Jökli
leggstu á þófið mitt;
ég skal gefa þér lóna
innan í skóna og vettlinga á klóna.“
Hólahólar og Berudalur.
Skammt fyrir utan Sand eru Gufuskálar. Þar var mikið
útræði áður. Nú eru Gufuskálar í eyði. Sömu sögu er að
segja um Saxhól og Bervíkurbæina. A Saxhóli bjó fyrstur
Saxi bróðir Ingjalds. Þar var kirkjustaður fyrst eftir að
kristni var lögtekin, en síðar var kirkjan flutt að Ingjalds-
hóli.
Á hraunbreiðunum vestan undir Jöklinum eru hér og
hvar gíghólar, gömul eldvörp, þar sem jarðeldur hefur
brotizt út, er ekki fékk útrás um aðalgíginn í Jökulkollin-
um. Þannig eru Purkhólar milli Malarrifs og Einarslóns
orðnir til, og norðar Hólahólar, Saxhólar og Ondverðarnes-
hólar og e.t.v. fleiri gígir smærri. I ferð þessari voru Hóla-
hólar skoðaðir. Gígbotn Hólahóla er rennsléttur, og stafar
það af því, að í vorleysingum rennur vatn inn í gíginn, en
hólarnir mynda hálfhring í kring og veit opið mót norðri.
I miðjum botni gígsins er hella, um einn metri á hvern veg.
Er það kallað Beruleiði. Á þar að liggja Bera, sem nam
land á þessum slóðum.
Bera þessi virðist hafa verið dálítið sérsinna, því að hún
mælti svo fyrir, að hana skyldi grafa þar sem aldrei sér
sól, og því var hún grafin á þessum stað.
I Hólahólum var stórbýli, en nú eru um 60 ár síðan
JÖrðin var yfirgefin. Síðastur bjó þar Cyrus faðir Hjartar,
sem allir gamlir Sandarar þekkja. Undir Hólahóla lá Drit-
vík, og hirti Hólahólabóndi afgjald af hverju skipi, sem í
Dritvík réri. Munu það hafa verið drýgstu hlunnindi jarð-