Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1958, Page 29

Breiðfirðingur - 01.04.1958, Page 29
Br ekkuh j ónin Við austan verðan Gufufjörð brosir fallegur bóndabær móti suðri og sól. Túnið er slétt og fallegt undir hárri og brattri brekku, sem skýlir því fyrir norðannæðingunum, sem eru svo ásæln- ir við Breiðaf jörð snemma á vorin. Þetta tún er því oft orðið grænt löngu áður en önnur tún umhverfis jafnvel þótt skafl sé enn fyrir ofan garðinn. Allt í kring er ilmandi kjarrviður og blómsælar lautir undir lágum, ávölum hæðum, sem mynda lítinn, fallegan dal. Þetta er Brekka í Gufudalssveit, eitt af þekktustu höfð- ingjasetrum í Barðastrandasýslu á öndverðri 20. öld. Hjónin, sem þarna réðu húsum í meira en hálfa öld, voru einhver þau svipmestu og höfðinglegustu í allri sinni ró- semi og látleysi, sem unnt er að hugsa sér. Heimilið allt gætt þeim þokka, sem fögur sál og hreint hjarta veitir um- hverfi sínu nær ósjálfrátt. Allt var í föstum skorðum og svipmikið utan húss og mnan, hver hlutur á heimilinu virtist eiga sérstaka aðild og sérstök réttindi, meira að segja skepnurnar nutu virð- ingar eftir verðleikum, hestum búin gröf áður en þeir voru felldir, enginn fugl í mónum styggður af hreiðri sínu að óþörfu, engum hlut kastað hugsunarlaust að loknu dagsverki, Gestrisnin var með þeim hætti, að húsbóndinn gekk

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.