Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1958, Page 30

Breiðfirðingur - 01.04.1958, Page 30
28 BREIÐFIRÐINGUR Andrés Ölafsson Guðrún Halldórsdóttir. venjulega upp að hliði til móts við gesti sína, og húsfreyjan stóð brosandi utan dyra, þegar gestur var leiddur í garð. Samt var gestkoma meira en daglegur viðburður, því að Brekka er svo í þjóðbraut, að framhjá komst enginn, svo að verði ekki vart af öllum þeim, sem fara eina þjóðveginn, sem liggur vestur yfir Barðastrandasýslu. Og þar við bætist að Brekka var póststöð og símastöð frá því fyrsta að slíkar stöðvar urðu til, og staðhættir þannig, að þangað varð lokatakmark langþreyttra ferðamanna að kvöldi, meðan aðeins var ferðast á hestum eða eigin fótum um þessa lengstu strönd einnar sýslu á Islandi. Brekka var því gististaður margra langferðamanna út- lendra og innlendra, áður en bílvegurinn kom, en síðan eru aðeins örfá ár. Myndarlegu bæjarhúsin, sem nú eru að hruni komin, en stóðu áður tigin með fannhvít þil móti geislum kvölds og morguns, hafa því veitt mörgum skjól og yl ásamt góðum beina, og ekki gleymdust heldur hestar

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.