Breiðfirðingur - 01.04.1958, Qupperneq 39
BREIBFIRÐINGUR
37
Jæja, nú skulum við byrja á því að seinka svolítið klukk-
unni, við seinkum henni um svo sem rúmar tíu aldir, við
erum ekki lengi að því. Svo ferðumst við í andanum til
eyjunnar Mostur fyrir Sunnhörðalandi í Noregi og reynum
að fylgjast með því sem þar gerðist á þeim tíma og ferð-
umst svo með fólkinu alla leið til Islands.
Eins og sagan getur um er nú vetur liðinn og farið að
vora. Þórólfur hefur fengið að vita um kosti Haralds kon-
ungs og þótti hvorugur góður og óvíst hvorn skyldi taka, þó
uiikið hafi sjálfsagt verið um það rætt. En Þórólfur var
trúmaður mikill á sína vísu og honum hefur farið eins og
fleirum á þeim dögum og mörgum fer enn í dag að láta
guð og lukkuna ráða, og gekk því að blóti miklu og gekk
til frétta við Þór ástvin sinn, hvort hann skyldi sættast við
konung eða af landi brott og leita sér svo annarra forlaga,
en fréttin vísaði Þórólfi til Islands. Þar með var teninguri-
um kastað.
A hvern hátt, eða hvað það hefur verið sem hér skar úr
málum er ekki hægt að vita um, en margt af því sem frum-
stæðar þjóðir enn í dag taka mikið mark á og leggja mikið
upp úr við þess konar athafnir, finnst okkur nú ósköp ó-
merkilegt, en ég held að varlegast sé að fullyrða sem minnst
um þesskonar hluti. Nokkuð er það, að fólk var á þeim dög-
Um sterkt í trú sinni, eins og víða kemur fram og í þessu til-
felli var henni treyst, nú var enginn efi lengur. Nú var
hafizt handa til undirhúnings brottflutnings frá ættlandinu,
yfir lítt þekkt haf og í ókunnugt land. Að líkindum hefur
margt af því fólki ekki skilið við ættland sitt með glöðu
geði, eða sársaukalaust, en hér varð engu um það þokað
lengur, nú varð að byrja á undirbúningnum. Þórólfur fær
sér stórt hafskip til ferðarinnar. Það er sagt að margir vinir
Þórólfs hafi ráðist til ferðar með honum, svo skipið hefur
hlotið að vera töluvert stórt, fráleitt minna en 70—80