Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1958, Side 43

Breiðfirðingur - 01.04.1958, Side 43
15RE1ÐFIRÐINGUR 41 veðráttu yfir hafið og alla leið, hann hefur lent í eindreg- inni austanátt með hreinviðri og er hún ekki ótíð hér við suðvesturland þegar fer að líða á vorið. Hann hefur getað siglt rúman vind eins og það er kallað, alla leið frá Noregi og vestur að Reykjanesi á Islandi. Skip þeirra höfðu frem- ur stór segl og hafa því getað náð töluvert miklum hraða á undanhaldi, en þeir gátu ekki beitt skipum sínum eins nálægt vindi og með nútíma seglaútbúnaði. Þeir hafa varla getað siglt mikið minna en hálfan vind, sem kallað er, og það er einmitt ástæðan fyrir því, hvert Þórólfur siglir. Því að þegar hann kemur fyrir Reykjanes, er austanátt út úr Faxabugt, svo að hann gat ekki náð landi með skjótum hætti, en þeir sjá Snæfellsjökul og að þangað er hægt að ná með sömu vindstöðu, og taka því það ráð að reyna að "á þsr landi. En allir vita, sem siglt hafa fyrir Jökul, að í hreinviðris austanátt er logn vestan undir Jöklinum, og þar á lognið við, sem sagan getur um, en ekki suður við Reykjanes, og súlunum var heldur ekki kastað þar í sjóinn. En nú var komið logn og ekki hægt að sigla, en hafi nú eins og álíta má af sögunni, og því hvort þeir komust, verið byrjun austurfalls þegar þeir komu í lognið undir Jöklin- um, þá er vitað að straumur þungur liggur með austurfalli norður um ræsið og hefði því getað borið skipið norður undir Svörtuloft eða Ondverðarnes. En við Breiðfirðingar þekkjum vel veðurlag í góðri tíð að vorinu, sem við köllum tilgönguveður. — Austanvindur að kvöldinu og yfir nótt- ina fram undir hádegi, svo logn um stund og síðan norð- vestan stinnings kaldi fram á næsta kvöld, og því skarpari vindur, sem innar dregur, og það er þessi hafgola, sem sagan talar um þegar þeir sigldu vestur fyrir Snæfellsnes. Eftir þessu hefur hin fyrsta sigling inn á Breiðafjörð að sunnanverðu — svo vitað sé — farið fram um hádegi undir

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.